Feykir - 15.11.2017, Blaðsíða 1
43
TBL
15. nóvemer 2017
37. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BLS. 6–7
BLS.4
Ólína Sif Einarsdóttir spilar
knattspyrnu í USA
Hefur náð frábær-
um árangri með
Missouri State
BLS. 9
Norræn samvinna
á prjónunum
Prjónagleðin mun
vaxa og dafna
Heiða Úlfars svarar Degi í lífi
brottfluttra alla leið frá Dubai
Írönsku landa-
mæraverðirnir
höfðu aldrei heyrt
um Ísland
Holræsa- og stífluþjónusta
Bjóðum alhliða lagnahreinsun
og lagnamyndun
Leitið nánari upplýsinga í síma 452 2958.
Sími 452 2958 | Oddagata 18 | 545 Skagaströnd | gamar.is | vilhelm@gamar.is
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps stóð
uppi sem sigurvegari í sjónvarpsþætt-
inum Kórar Íslands í lokaþættinum sem
sýndur var á Stöð 2 sl. sunnudagskvöld.
Kórinn sigraði í símakosningu þar sem
rúmlega 40 þúsund atkvæði voru greidd
og hlaut hann fjórar milljónir króna í
sigurlaun.
Húni.is greindi frá því að um hundr-
að manns hafi mætt í Félagsheimilið á
Blönduósi til að fylgjast með þættinum
þar sem hann var sýndur og var
stemningin frábær. „Allt ætlaði um koll
að keyra þegar úrslitin voru kunngerð,“
segir á Húna.is.
Höskuldur Birkir Erlingsson, for-
maður kórsins, var himinlifandi þegar
Feykir ræddi við hann um þessa
frægðarför kórsins. Sagði hann stemn-
inguna hafa verið frábæra eftir að úrslit
höfðu verið kunngjörð og gleðin mikil
eftir mikla vinnu og tíma.
Árangurinn þakkar hann markviss-
um æfingum, jákvæðni kórmanna og
gleði. „Allir voru tilbúnir til að taka þátt
í þessu með okkur og ekki var verra að
árangurinn var góður. Ekki má gleyma
þætti Skarphéðins Einarssonar kórstjóra,
hann var vakinn og sofinn yfir þessu
verkefni og ég veit að hann lá oft andvaka
yfir því hvernig mætti bæta hlutina,“
segir Höskuldur og bætir við að þessir
þættir á Stöð 2 hafi vakið athygli á því
mikla kórstarfi sem er í landinu og
fagnar hann því.
En skyldi þessi heiður hafa einhver
áhrif á vetrarstarf kórsins? „Já, að því
leyti að við vorum búnir að ákveða að
fara í suðurferð í haust með dagskrá sem
við vorum með sl.vetur en það breyttist
allt. Við munum því leggjast í víking
eftir áramót,“ segir Höskuldur.
Verðlaunaféð, fjórar milljónir, sem
kórinn fékk í hendurnar kemur í góðar
þarfir þar sem fyrirhuguð er utanför
næsta sumar. Að sögn Höskuldar verður
það rætt á stjórnarfundi í vikunni
hvernig peningunum verður ráðstafað.
„En ljóst er að við vorum búnir að
ákveða að fara til Ítalíu næsta sumar og
ekki ósennilegt að vinningurinn renni í
það að einhverju leyti.“
Höskuldur segir það gefandi og
gaman að vera í kór og vill hann hvetja
alla, konur og karla, til að taka þátt ef
þau hafa áhuga á tónlist og söng. /PF
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps er Kór Íslands
Stóð uppi sem sigurvegari
í lokaþætti á Stöð 2
Við þjónustum bílinn þinn!
Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570
Nýttu þér
netverslun
Skoðaðu vöruúrvalið
www.lyfja.is
Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða-
menn með áralanga reynslu.
Þú hringir í síma 540 2700
Ánægðir karlakórsmenn eftir að úrslit urðu ljós í Kórar Íslands síðastliðið sunnudagskvöld. MYND: HÖSKULDUR BIRKIR ERLINGSSON