Feykir - 15.11.2017, Síða 2
Þetta getur þýtt breytta sam-
setningu gestahópa á svæðinu,
en til þessa hafa Mið-
Evrópubúar verið mest áber-
andi. Þá er einnig alltaf gott
fyrir þá sem eru í þessum rekstri
að máta sig við praktíska hluti
eins og nauðsynlegar tryggingar
og mikilvægi þess starfs, sem
Markaðsstofan er að vinna,“
segir Davíð.
Að lokinni dagskrá gafst
gestum tækifæri til að skoða
nýjustu viðbót í atvinnulífinu á
Sagaströnd sem Davíð var
ánægður með. „Svo var auð-
vitað rúsínan í pylsuendanum
að fá að kynnast nýjum fyrir-
tækjum á Skagaströnd, Vöru-
smiðju Biopol og Salthús
gistiheinili, sem eru hvort á
sinn hátt frábær viðbót í flóru
ferðaþjónustunnar á Norður-
landi vestra og því sem henni
tengist.“ /PF
Á morgun er dagur íslenskrar tungu. Frá árinu 1996 hefur
16. nóvember verið haldinn hátíðlegur og þá blásið til
ýmissa viðburða til að vekja athygli á málinu okkar og
mikilvægi þess. Í skólum lands-
ins er gjarna efnt til hátíða-
dagskrár og á þessum degi hefst
Stóra upplestrarkeppnin í 7.
bekk formlega á ári hverju.
Það ætti öllum að vera ljóst hve
mikilvægt það er að vanda mál
sitt – eða er það ekki? Svarið er
því miður „nei, svo er ekki“. Ég
er ekki ein um að standa í þeirri
trú að einmitt nú standi íslenskan frammi fyrir óvenju
mikilli ógn þar sem eru erlend áhrif í gegn um hin ýmsu
snjalltæki sem margir, ekki bara börn og unglingar, hafa
mun meiri samskipti við en fólkið í nánasta umhverfi. Við
þessu verður að reyna að bregðast og það strax ef við ætlum
ekki að reisa íslenskunni bautastein innan fárra ára.
En ég ætla ekki að orðlengja meir um erlend áhrif,
heldur snúa mér aðeins að upplestri og framburði. Ég
minntist á Stóru upplestrarkeppnina hér að framan en hún
hefur án nokkurs vafa gert mikið fyrir margan unglinginn
sem með þátttöku í keppninni hefur bæði hlotið góða
þjálfun í upplestri og þá ekki síður öðlast öryggi í fram-
komu með því að þurfa að standa frammi fyrir hópi
áheyrenda og lesa með viðeigandi framburði og blæ-
brigðum. Mér verður býsna oft hugsað til þessarar þjálfunar
og mikilvægis hennar þegar ég hlusta á veðurfréttir frá
Veðurstofu Íslands á Rás 1. Alveg er það merkilegt að þeir
sem lesa þær ágætu fréttir skuli upp til hópa hafa tamið sér
þennan ótrúlega framburð: „Sunnan gola við ströndinaaa.
Hægari á Austurlandiii. Lægir á morguuuun. Skýjað með
köfluuuum, hiti 2-6 stiiiig. Loftþrýsingur 990 milliböör,
fallandiiiiiii.“ Það skýtur dálítið skökku við að eini þulurinn
(að ég held) sem ekki hefur tamið sér þennan annarlega
upplestrartón sé hálfur útlendingur, fæddur í Danmörku og
alinn upp á Grænlandi og í Noregi.
Og svo rétt aðeins um það hvað tilviljanir geta verið
skemmtilegar. Er það ekki dásamlegt að veðurfréttamaður
skuli bera nafnið Bjarki Kaldalóns Friis (frb. Frýs)?
Fríða Eyjólfsdóttir,
blaðamaður
LEIÐARI
Íslensk tunga
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744,
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Rýnt í hinn enda keðjunnar
Haustdagur ferðaþjónustunnar
Haustdagur ferðaþjónustunnar
á Norðurlandi vestra fór fram
sl. mánudag í Félagsheimilinu
Fellsborg á Skagaströnd. Að
sögn Davíðs Jóhannssonar,
ráðgjafa hjá SSNV, tókst
dagurinn ljómandi vel en
tæplega sextíu manns af öllu
Norðurlandi vestra sótti
atburðinn.
„Ég held að það hafi verið
áhugavert fyrir þá, sem þarna
voru og flestir eru að þjónusta
ferðafólk á einn eða annan hátt,
að fá svona innsýn í hinn enda
keðjunnar og þá markaði
Íslandsferða sem annars vegar
er stærstur í augnablikinu,
USA, og þess sem er í einna
mestum vexti, Kína og Asía.
15 bátar lönduðu á Skagaströnd í síðustu viku
tæpum 175 tonnum. Á Sauðárkróki var
landað tæplega 600 tonnum úr 10 skipum og
bátum og á Hofsósi lönduðu tveir bátar
tæpum 28 tonnum.
Einn bátur landaði á Hvammstanga rétt um
11 tonnum. Heildarafli vikunnar var 812.395
kíló. Þess ber að geta að inn í tölurnar frá
Sauðárkróki vantar löndun Grundfirðings SH
síðasta laugardag. /FE
Aflatölur á Norðurlandi vestra 5. – 11. nóvember 2017
Tæp 600 tonn til Sauðárkróks
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
HVAMMSTANGI
Bergur Vigfús GK 43 Lína 10.925
Alls á Hvammstanga 10.925
HOFSÓS
Ásmundur SK 123 Landbeitt lína 2.016
Þorleifur EA 88 Dragnót 25.610
Alls á Hofsósi 27.626
SKAGASTRÖND
Alda HU 112 Landbeitt lína 3.490
Auður HU 94 Landbeitt lína 3.633
Álfur SH 414 Landbeitt lína 15.112
Blíðfari HU 52 Handfæri 398
Dagrún HU 121 Þorskfiskinet 644
Dúddi Gísla GK 48 Lína 13.451
Fengsæll HU 56 Handfæri 97
Guðmundur á Hópi HU 203Lína 2.988
Hafdís HU 85 Handfæri 245
Hafrún HU 12 Dragnót 1.882
Kári SH 78 Landbeitt lína 16.898
Kristinn SH 812 Landbeitt lína 44.465
Magnús HU 23 Landbeitt lína 10.532
Steinunn SF 10 Botnvarpa 50.896
Stella GK 23 Landbeitt lína 9.819
Alls á Skagaströnd 174.550
SAUÐÁRKRÓKUR
Fjölnir GK 157 Lína 75.350
Grundfirðingur SH 24 Lína 9.435
Jóhanna Gísladóttir GK 557 Lína 86.277
Klakkur SK 5 Botnvarpa 123.557
Kristín GK 457 Lína 68.025
Málmey SK 1 Botnvarpa 147.933
Már SK 90 Handfæri 674
Onni HU 36 Dragnót 7.360
Sighvatur GK 57 Lína 78.835
Sæfari HU 212 Landbeitt lína 1.848
Alls á Sauðárkróki 599.294
Frá Degi ferðaþjónustunnar á Norður-
landi vestra. Tómas Árdal í pontu.
MYND: ÁRNI GEIR INGVARSSON
700 þættir frá Guðmundi á 30 árum
Lífsseigur vísnaþáttur
Þau skemmtilegu, og ekki síst
merkilegu, tímamót eru í þessu
blaði að sjöhundraðasti
vísnaþáttur Feykis lítur dagsins
ljós. Fyrsti þátturinn birtist í
Feyki 1. apríl 1987 og fögnum
við því 30 ára úthaldi einnig
hér á blaðinu.
Sá er haldið hefur utan um
þáttinn frá upphafi er
Guðmundur Valtýsson, bóndi á
Eiríksstöðum í Svartárdal. Sagði
hann, á 30 ára tímamótunum, að
yfirleitt hafi verkefnið verið
honum til gleði, þrátt fyrir að
stundum hafi staðið á tæpasta
vaði með að skila inn efninu á
réttum tíma.
Feykir nýtti tækifærið, þegar
Guðmundur kom með 700.
þáttinn, og leysti hann út með
smá gjöf í þakklætisskyni fyrir
þann dugnað og eljusemi sem
hann hefur sýnt með því að
setja saman þátt aðra hverja viku
fyrir blaðið. Vonum við að
þátturinn eigi eftir að lifa lengi
enn. /PF
Slétt skipti, 700. vísnaþátturinn og hóstastillandi söngolía. MYND: ÓAB
2 43/2017