Feykir - 15.11.2017, Qupperneq 3
Breyting á
blóðprufutíma
www.hsn.is
Frá 1. desember nk. verða blóðprufur
teknar á eftirtöldum tímum:
Alla virka morgna kl. 8:20 til 9:30
og þriðjudaga til fimmtudaga kl. 13:00 – 13:30
Öðrum sýnum skal skilað á sama tíma!
Starfsfólk rannsóknastofu HSN Sauðárkróki
Guðni og Jóhannes hlakka til að kitla hláturtaugar Skagfirðinga. MYND AÐSEND
Jóhannes og Guðni mæta
Eftirherman og orginalinn í Miðgarði
Eftirherman og orginalinn,
Jóhannes Kristjánsson og
Guðni Ágústsson, munu
heimsækja Skagafjörðinn
laugardaginn 25. nóvember nk.
og láta gamminn geisa í
Menningarhúsinu Miðgarði. Ef
að líkum lætur má búast við
mögnuðu sagnakvöldi með
skemmtilegum þjóðsögum og
eftirhermum.
Feykir náði tali af Guðna
Ágústssyni og spurði hann frétta
af skemmtiferð þeirra félaga um
landið. „Við hófum þessar
sýningar í apríl síðasta vor og
höfum komið fram á yfir 30
sýningum víða um land. Tilefnið
er leikafmæli Jóhannesar
Kristjánssonar en það eru orðin
40 ár síðan hann hóf sinn feril
sem eftirherma og skemmti-
kraftur. Hann hefur komið í öll
félagsheimili landsins og
skemmt þjóðinni lengur en
flestir aðrir, kannski eru það
bara Geirmundur ykkar og
Raggi Bjarna og Ómar Ragnars-
son sem eiga lengri feril. Ég er
svo einn af þeim mörgu sem
hann gerði frægan en þeir eru
nú æði margir sem koma í
gegnum barkann á honum. Ég
held því reyndar fram að
Jóhannes sé miklu meira en
eftirherma, jafnvel miðill sem
nánast fellur í trans og
fórnarlambið birtist holdi klætt
á sviðinu. Við hlökkum mjög til
að koma í Skagafjörð, þar á ekki
bara söngurinn heima heldur
hláturinn og mikil lífsgleði,“
segir Guðni.
En hvernig skyldi aðsóknin
hafa verið? „Það er nánast
húsfyllir alls staðar. Vorum t.d. í
Valaskjálf, þar sem komu 200
manns. Eins vorum við á Vopna-
firði og Kirkjubæjarklaustri,
fullir salir af fólki og svo erum
við að byrja í IÐNÓ, gamla
þjóðarleikhúsinu. Þetta er gef-
andi og okkur er afar vel tekið og
við vonumst eftir fullu húsi í
Miðgarði. Fólkið hlær nánast
allan tímann en prógrammið
stendur í tvær klukkustundir.
Og nú er þetta uppistand
öðruvísi en í pólitíkinni, nú
erum við klappaðir upp.“ /PF
ÍBÚAFUNDUR
Verndarsvæði í byggð
– Sauðárkrókur
Sveitarfélagið Skagafjörður boðar til íbúafundar um verkefnið
Verndarsvæði í byggð – gamli bærinn á Sauðárkróki norðurhluti.
Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 21. nóvember kl. 17
í fundarsal sveitarfélagsins í Húsi frítímans.
Árið 2015 voru samþykkt lög um verndarsvæði í byggð. Markmið þeirra er að stuðla að
verndun sögulegrar byggðar. Verndarsvæði í byggð er skilgreint sem afmarkað svæði sem
nýtur sérstakrar verndar ráðherra vegna svipmóts, menningarsögu eða listræns gildis.
Samkvæmt lögunum skulu sveitarstjórnir, að loknum sveitarstjórnarkosninum, meta hvort
innan sveitarfélagsins sé byggð sem hafi slíkt gildi að ástæða sé til að útbúa tillögu til ráðherra
um að hún verði gerð að verndarsvæði í byggð. Með lögunum er því lagður grundvöllur að því
að vernda menningarsögulegt og listrænt gildi einstakra bæjarhluta um ókomna tíð.
Verkefnið skiptist í húsakönnun, fornleifaskráningu og greinargerð með mati á varðveislugildi
og gerð skilmála um vernd og uppbyggingu innan svæðisins.
Sveitarfélagið hlaut styrk frá Minjastofnun til að vinna tillögur um verndarsvæði í byggð á
Sauðárkróki og Hofsósi og á þessum fyrsta íbúafundi um verkefnið verður farið yfir stöðu
verkefnisins á Sauðárkróki, það kynnt og leitað samráðs við íbúa.
Áhugasamir eru hvattir til að mæta.
Fh. Skipulags- og byggingarnefndar
Jón Örn Berndsen skipulags - og byggingarfulltrúi
www.skagafjordur.is
N
Ý
PR
EN
T
eh
f.
/
1
12
01
7
Yfirlitsmynd sem sýnir afmörkun svæðisins.
2017Jólablaðið
Venju samkvæmt kemur Jólablað Feykis út fyrir aðventuna
– fullt af ómissandi norðlensku jólaefni.
Stefnt er að því að blaðið komi út 29. nóvember og er þá dreift í öll hús á Norðurlandi vestra
og til áskrifenda Feykis víðsvegar um landið auk þess sem hægt er að fletta blaðinu á Feykir.is.
AUGLÝSING SEM LIFIR
Jólablað Feykis er lesið allan desember-mánuð. Efni blaðsins er fjölbreytt en í því eru
viðtöl, uppskriftir, frásagnir og annað jólaefni. Fjölmargir safna Jólablaði Feykis.
TRYGGÐU ÞÉR AUGLÝSINGAPLÁSS Í JÓLAFEYKI
Pantaðu auglýsingapláss fyrir 15. nóvember nk.
Sendu tölvupóst á nyprent@nyprent.is eða hringdu í síma 455 7171.
Sjáumst í Jólablaði Feykis!
Smellt'á okkur einum...
Feykir.is
43/2017 3