Feykir - 05.12.2017, Síða 2
Guðný Hrund Karlsdóttir,
sveitarstjóri Húnaþings vestra,
segir í samtali við RUV að
greinilega sé að aukast að
dýrbítur leggist á fé heima á
túnum og hafi það gerst á fleiri
bæjum í sveitarfélaginu í vetur.
„Það er aðeins óvenjulegt að
tófan er eiginlega bara komin
upp við bæi, það er ekki verið
að bíta féð sem er á beit uppi á
heiðum. Það hefur auðvitað
alltaf verið eitthvað um þetta,
en það virðist vera að tófan sé
að færa sig upp á skaftið,“ segir
hún.
Mismunandi er hvaða fyrir-
komulag er á refaveiðum hjá
sveitarfélögum. Grenjaskyttur
fá mismikið greitt fyrir veið-
arnar og á sumum svæðum er
minna greitt fyrir vetrarveiði á
ref. Guðný segir að hugmyndir
hafi verið uppi um að færa
tímabilið til. „Við eigum eftir að
taka þetta til alvarlegrar
umfjöllunar. Hvort að greiðslu-
fyrirkomulaginu verður breytt
eða ekki, á eftir að koma í ljós.
En að sjálfsögðu tökum við
þessu mjög alvarlega.“ /FE
Þá er nú aðventan gengin í garð með öllum sínum
skemmtilegu atburðum og uppákomum, aðventusam-
komum, tónleikum, mörkuðum, jólaföndri og svo má
lengi telja. Sannarlega er úr nógu að velja ef maður vill
lyfta sér upp í skammdeginu og
næla sér í smá jólaanda til
viðbótar við þann heimafengna.
Af nógu er að taka og spilar
tónlistin stórt hlutverk að
vanda enda á hún mikinn þátt í
að flytja okkur réttu stemning-
una.
Jólin eru hátíð barnanna (stórra
og smárra) og ánægjulegt er að
sjá hvað þau eiga veglegan hlut í
þeim viðburðum sem boðið er
upp á. Á aðventusamkomunum í kirkjunum sjá þau um
stóran hlut af dagskránni, tónlistarskólarnir halda jólatón-
leika þar sem nemendur spila og syngja, skólarnir eru
margir hverjir með samkomur þar sem nemendur flytja
fjölbreytta dagskrá og þar fram eftir götunum.
Um helgina fór ég á aðventutónleika Sönglaganna þar
sem fjórar ungar stúlkur úr Skagafirði sýndu svo um munar
hvað unga fólkið getur gert stórkostlega hluti. Ég er enn í
skýjunum, svo dásamlega gaman var að heyra þær syngja,
og kannski ekki síður að sjá hvað sviðsframkoma þeirra var
örugg og áreynslulaus. Það getum við örugglega ekki síst
þakkað þeirri þjálfun sem krakkarnir fá í því að koma fram
á hinum ýmsu samkomum á vegum skóla og tónlistarskóla
og er seint fullmetin. Þeir Sönglagaforkólfar, Stebbi og
Einar, eiga líka mikinn heiður skilinn fyrir sinn þátt í því að
koma tónlistarfólki úr héraði á framfæri á þeim hreint
frábæru skemmtunum sem þeir hafa staðið fyrir undanfarin
ár. Þeir eiga bestu þakkir skildar.
Við skulum endilega vera dugleg að njóta þess sem
desember hefur upp á að bjóða, við getum bara þrifið
skápana í janúar.
Fríða Eyjólfsdóttir
blaðamaður
LEIÐARI
Verum dugleg að njóta
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744,
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. m.vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Aflífa þurfti þrjár skepnur strax
Dýrbítur í Fitjárdal
Tófur hafa ráðist á sauðfé á
bænum Fremri-Fitjum í
Fitjárdal. Bitu þær nokkrar
kindur mjög illa svo þurfti að
aflífa þrjár skepnur strax og
hugsanlega þarf að lóga
fleirum. Frá þessu var greint í
fréttum Ríkisútvarpsins.
Rætt var við Helgu Rós
Níelsdóttur á Fremri-Fitjum í
fréttum RUV og segir hún að
vart hafi orðið við að kindur,
sem voru á gjöf á túni nokkur
hundruð metra frá fjárhús-
unum, hafi komið heim að
húsum, bitnar í framan. Í fyrstu
var talið að hundarnir á bænum
ættu hlut að máli en þegar farið
var að kanna málið nánar kom í
ljós að mikið var um spor eftir
tófu á túninu. Helga segir að 26
kindur séu bitnar eftir tófuna
og sumar mjög illa. „Þetta er
flestallt neðan í kjálka, eða í
munnvikum og framan á trýni.
Bitið framan af snoppum, bitið
úr vör, bitið mikið í kjálka,“
segir hún.
Heildarafli nýliðinnar viku var 530.737 kíló.
15 bátar lönduðu á Skagaströnd og var afli
þeirra rúmlega 143 tonn.
Á Sauðárkróki lönduðu einungis fimm skip
og bátar rúmum 383 tonnum og á Hofsósi
landaði einn bátur 4.388 kílóum. Engu var
landað á Hvammstanga. Heildarafli síðustu viku
var 530.737 kíló.
Aflafréttir tóku sér frí í jólablaðinu sem út
kom í síðustu viku en þá var rúmum 26 tonnum
landað á Skagaströnd, tæplega þremur tonnum
á Hvammstanga, einu og hálfu tonni á Hofsósi
og tæpum 1.200 tonnum var landað á
Sauðárkróki. /FE
Aflatölur á Norðurlandi vestra 26. nóvember – 12. desember 2017
383 tonn til Sauðárkróks
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
HOFSÓS
Ásmundur SK 123 Landbeitt lína 4.388
Alls á Hofsósi 4.388
SKAGASTRÖND
Alda HU 112 Landbeitt lína 16.282
Auður HU 94 Landbeitt lína 3.955
Álfur SH 414 Landbeitt lína 21.936
Bergur sterki HU 17 Landbeitt lína 4.682
Dagrún HU 121 Þorskfiskinet 2.322
Dísa HU 91 Handfæri 273
Fengsæll HU 56 Landbeitt lína 1.040
Guðmundur á Hópi HU 203 Lína 22.561
Hafdís HU 85 Handfæri 683
Kambur HU 24 Landbeitt lína 862
Kári SH 78 Landbeitt lína 17.988
Magnús HU 23 Landbeitt lína 22.900
Onni HU 36 Dragnót 3.433
Stella GK 23 Landbeitt lína 20.115
Sæfari HU 212 Landbeitt lína 4.088
Alls á Skagaströnd 143.120
SAUÐÁRKRÓKUR
Kaldi SK 121 Þorskfiskinet 1.699
Klakkur SK 5 Botnvarpa 110.732
Kristín GK 457 Lína 75.071
Málmey SK 1 Botnvarpa 194.919
Sæfari HU 212 Landbeitt lína 808
Alls á Sauðárkróki 383.229
Kind með bitför. MYND: HELGA RÓS NÍELSDÓTTIR
Gjöf til verðandi foreldra
Húnavatnssýslur
Soroptimistaklúbburinn Við Húnaflóa hefur
ákveðið að gefa verðandi foreldrum í
Húnavatnssýslum bókina Fyrstu 1000
dagarnir, barn verður til eftir Sæunni
Kjartansdóttur sálfræðing.
Fyrstu 1000 dagarnir er eftir Sæunni
Kjartansdóttur, sálgreini. Í umsögn um bókina
segir að hún sé aðgengileg handbók fyrir foreldra
og byggi á tengslakenningum og nýjustu rann-
sóknum í taugavísindum og sálgreiningu. Í henni
sé að finna góð ráð um hvernig foreldrar geti búið
sig undir fæðingu barns og annast það og örvað
fyrstu árin með það að leiðarljósi að byggja upp
heilbrigðan og ástríkan einstakling.
Þetta verkefni Soroptimistasystra Við Húna-
flóa er hugsað sem þriggja ára verkefni og er það
von þeirra og sannfæring að bókin muni nýtast
foreldrum vel í því mikilvæga hlutverki sem í því er
fólgið að eignast og annast barn. /FE
Gjaldskrá fæðis hækkar
Skólar í Skagafirði
Á fundi byggðarráðs
Skagafjarðar fyrir helgi var
lögð fram tillaga um að
gjaldskrá fæðis í leik- og
grunnskólum Skagafjarðar
hækki um 3,5% frá og með 1.
janúar 2018.
Byggðarráð samþykkti gjald-
skrána og vísaði henni til af-
greiðslu sveitarstjórnar.
Bjarni Jónsson lét bóka að
VG og óháð í Skagafirði leggist
gegn frekari hækkunum á gjald-
skrá fæðis í leikskólum í Skaga-
firði og telja að stefna beri að því
að gera þær gjaldfrjálsar. /PF
2 46/2017