Feykir - 05.12.2017, Qupperneq 9
AÐSENT Guðmundur Sigurður Jóhannsson skrifar
Nokkur orð um nærgætni og
heilindi Þórarins Tyrfingssonar
Á lífsferli mínum hef ég kynnst
mörgum sem hafa verið í meðferð hjá
SÁÁ. Sumir þeirra hafa greint mér frá
því hvernig fyrrverandi
yfirlæknir samtakanna,
Þórarinn Tyrfingsson,
hefur talað niður til
meðferðarþega sinna -
þeirra og annarra - með
hroka og gikkshætti sem
varla getur talist sæmandi
manni í þeirri stöðu sem
hann gegndi.
Í ljósi þess að SÁÁ eru að
stórum hluta rekin fyrir
almannafé og hafa ítrekað
gert við hið opinbera þjónustusamninga
sem hlaupa á milljónum króna, tel ég
fyllstu ástæðu til að láta þessar upplýsingar
um ummæli Þórarins og annað háttalag
hans koma fyrir almenningssjónir, ekki
síst vegna þess að þau veita nokkra innsýn
í sálarástand og siðferði þess manns sem
undanfarin fjörutíu ár hefur haft frjálsar
hendur um að móta bróðurpartinn af
meðferðarstarfi á Íslandi og skapa þann
anda sem ríkir í meðferðarstöðvum SÁÁ.
Ég vil taka skýrt fram að hér er
einungis um að ræða atvik og ummæli
sem tengjast beinlínis störfum Þórarins í
þágu SÁÁ, en einkalíf hans - sem og allra
annarra manna - er mér óviðkomandi.
Ennfremur vil ég árétta að hér er
ekki um að ræða ,,kjaftasögur“ sem hafa
farið á milli margra manna og tekið
breytingum í meðförum þeirra, heldur
voru heimildamenn mínir í öllum
tilvikum heyrnarvottar
að ummælum Þórarins
þegar hann lét þau falla.
Hér koma dæmin
og rek ég þau fram
efnislega á nákvæmlega
sama hátt og mér var
greint frá þeim.
1. ,,Það fæðist nú eng-
inn þunglyndur“, sagði
Þórarinn við meðferðar-
þega sinn sem hafði
þunglyndi í ættinni. (Ég
ætla ekki að sitja á þeim
strák mínum sem vill
benda á, að ef Þórarinn
hefði verið spurður að því, hvort
einhverjir væru fæddir alkóhólistar, þá
hefðu honum væntanlega farist öðruvísi
orð!)
2. Einn meðferðarþegi fékk frá honum
þessa hughreystandi yfirlýsingu: ,,Ger-
irðu þér grein fyrir því að þú ert einhver
sjúkasti maður sem hefur komið hér
inn?“
3. Annar meðferðarþegi fékk frá honum
þessa vingjarnlegu athugasemd: ,,Ég vil
ekki þurfa að sjá þig hér aftur eftir tíu ár!“
4. Einhver besti vinur minn á seinni
árum var innritaður í meðferð og gat
þess skilmerkilega við þá sem innrituðu
hann, að á ákveðnum
tímapunkti þyrfti hann
bráðnauðsynlega að fá
leyfi til að bregða sér út
af meðferðarstofnuninni
til að sinna aðkallandi
málefni. Var honum tjáð
að ekkert ætti að verða því
til fyrirstöðu. En þegar
að því kom, var Þórarinn
kominn í spilið og sagði
manninum að hann fengi
ekki að skreppa eitt eða
neitt, annað hvort kláraði
hann meðferðina eða færi alfarinn. Vinur
minn sagði að það yrði þá svo að vera, því
erindi það sem hann þyrfti að reka, þyldi
enga bið. Ekki fékk hann þó að fara fyrr
en gangarnir voru orðnir auðir að lokinni
,,staðardagskrá“.
5. Eitt sinn skeði það á Vogi að einn
meðferðarþeginn tognaði á handlegg
eða fótlegg og var hann fluttur á spítala
á höfuðborgarsvæðinu þar sem vakt-
hafandi læknir bjó um áverkann. Að því
loknu var maðurinn fluttur aftur á Vog
og fór Þórarinn þá að skoða hvernig
staðið hefði verið að málum. Honum
hugnaðist ekki umbúnaður læknisins og
það hnussaði fyrirlitlega í honum: ,,Þetta
er bara alkóhólisti!“
Úr því að ég er á annað borð farinn að
stinga niður penna um Þórarin, ætla
ég að tilfæra fleiri ummæli hans sem
bera heilindum hans
og vísdómi hið fegursta
vitni.
Árið 2015 þegar eitt
af áfengisfrumvörpun-
um svokölluðu var í
pípunum, kom magnað
viðtal við Þórarinn í
ríkisútvarpinu. Það var
spilað fyrir hann lag
að eigin vali og rætt
við hann um lífið og
tilveruna.
Þórarni fórust mjög
skaplega orð framan
af þessi viðtali. Hann
spjallaði um foreldra
sína sem hann kvað hafa verið nánast
bindindisfólk. Svo ræddi hann um Yeltsin
vin sinn og áfengismálastefnu hans í
Rússlandi sem hann kvað hafa orðið til
mikils ófarnaðar. Aðspurður hvort hann
væri andvígur áfengisfrumvarpinu, kvað
Þórarinn svo vera af því að hann tæki
,,þetta frá lýðheilsusjónarmiði“ en það
væri ,,svo sem hægt að taka það öðruvísi“.
Þegar útvarpsmaðurinn spurði Þórar-
in hvort hann hefði áhyggjur af aukinni
unglingadrykkju, ef frumvarpið gengi
í gegn, kvað hann svo ekki vera, því
ungmennin væru létt á fæti og kæmust
erfiðislaust það sem þau ætluðu sér. En það
væri verra með gamalmennin sem væru
orðin þung á sér; þau gætu freistast til að
grípa með flösku eða dós þegar þau væru
að versla í matvörubúðum, ef áfengi yrði
þar á boðstólum. (Þegar hér var komið
viðtalinu, láðist útvarpsmanninum alveg
að benda Þórarni á, að þegar væri búið
að koma upp vínstúkum á elliheimilum
í Reykjavík til afnota fyrir vistmenn!)
Þórarinn klykkti viðtalið út með því
að segja að í góðu samfélagi þyrfti sá
sterki að beygja sig, það væri þekkt úr
öllum vísindum, og við könnuðumst
öll við sterka menn sem væru ljúfir og
lítillátir.
Um þessar staðhæfingar er fyllsta
ástæða til að fara nokkrum orðum. Það
er vel hægt að temja sér ljúfmannlega
framkomu, hógværð og lítillæti, án þess
að beygja sig! Það sem felst í því að beygja
sig er að menn láta yfir sig ganga eitthvað
sem þeir telja óásættanlegt, ósæmilegt og
rangt! Í góðu samfélagi þarf enginn að
beygja sig fyrir öðrum! Í góðu samfélagi
fá menn einfaldlega að
hafa frið með líf sitt svo
lengi sem þeir láta aðra í
friði!
En við skulum spila
þetta aðeins lengra og
taka persónu Þórarins
Tyrfingssonar sjálfs til
enn frekari greiningar
á grundvelli þessara
bollalegginga. Hefur
hann getið sér orð fyrir
ljúfmennsku og lítillæti?
Varla! Hann liggur
undir því ámæli að vera
samvalinn vini sínum
og sálufélaga, Kára
Stefánssyni, í hroka og
yfirgangi! Hefur hann
fengið orð fyrir það að honum sé gjarnt
að beygja sig? Tæpast! Hins vegar hefur
hann talsvert verið orðaður við það að
reyna að beygja aðra!
Á fyrra árshelmingi 2016 eða um
mitt ár lögðu SÁÁ upp í rétt eina
betliherferðina. Af því tilefni kom
örstutt viðtal við Þórarin Tyrfingsson í
ríkisútvarpinu, þar sem hann lýsti því
að lyf sem væri gefið fíklum á Vogi,
hefði stórhækkað í verði. Aðspurður
hvort nokkur gild rök lægju til þeirrar
verðhækkunar, kvað Þórarinn svo ekki
vera og sagði að þetta væri mjög bagalegt
fyrir ,,litla sjúkrastofnum, lítið sjúkrahús“,
eins og hann orðaði það.
Hinn 5. mars 2016 hafði það borið við
á Vogi, að kona að nafni Guðný María
Arnþórsdóttir sem um árabil hefur
unnið sjálfboðastörf fyrir SÁÁ, glataði
þar veski sínu með öllu sem í því var, og
varð ekki betur séð en að því hefði verið
stolið. Konan hringdi þá í lögreglu til að
tilkynna hvarfið og óska eftir rannsókn.
En þegar lögreglumenn komu á staðinn
til að rannsaka málið ,,var þeim bannað
að fara inn á sjúkrahúsið samkvæmt
fyrirmælum frá vakthafandi lækni“ og
urðu frá að hverfa.
Þetta mál var síðar borið undir
Þórarin Tyrfingsson. Varði hann alfarið
þá málsafgreiðslu að meina lögreglunni
aðgang að Vogi og sagði af þessu tilefni:
,,Þetta er stórt og mikið
sjúkrahús og það verður
líka að gæta að öryggi
sjúklinganna og öllu
því sem hér fer fram
...." Má lesa ítarlega
umfjöllun um þetta mál
á fréttamiðlinum DV 30.
september 2016.
Þegar þessi tilvitn-
uðu orð úr umfjöllun
DV eru borin saman
við ummælin í útvarps-
viðtalinu um lyfið dýra,
vekur það sérstaka
athygli hvað upplýsing-
arnar um stærð sjúkra-
hússins eru misvísandi.
Læðist að sá grunur
að Þórarinn búi yfir einhverjum þeim
töfrakrafti sem geri honum kleift að
þenja Vog út eða draga hann saman eftir
því sem honum hentar best hverju sinni.
Og maður spyr sig: Skyldi Vogur vera
lítið eða stórt sjúkrahús?
8
...tel ég fyllstu
ástæðu til að láta
þessar upplýsingar
um ummæli Þórarins
og annað háttalag
hans koma fyrir
almenningssjónir
8
...Í góðu samfélagi
þarf enginn að beygja
sig fyrir öðrum! Í góðu
samfélagi fá menn
einfaldlega að hafa frið
með líf sitt svo lengi
sem þeir láta aðra í
friði!
Frjálsar 2017
Uppskeruhátíð frjálsíþróttafólks
Uppskeruhátíð frjálsíþróttafólks
í Skagafirði var haldin 26.
nóvember síðastliðinn en þar var
afreksfólk UMSS á árinu 2017
verðlaunað.
Afreksmenn og afrekskonur voru
verðlaunuð fyrir Íslandsmeistara-
titla og Unglingalandsmótstitla en
einnig var tilkynnt um val á ungum
og efnilegum frjálsíþróttapilti og
-stúlku en það voru þau Óskar Aron
Stefánsson og Aníta Ýr Atladóttir
sem þann heiður hlutu.
Ísak Óli Traustason er frjáls-
íþróttamaður Skagafjarðar og Þór-
anna Ósk Sigurjónsdóttir frjáls-
íþróttakona Skagafjarðar. /PF
Þóranna Ósk og Ísak Óli, í forgrunni ásamt öðrum
verðlaunahöfum. MYND AF FB UMSS
46/2017 9