Bæjarbót - 05.01.1989, Blaðsíða 10
10 Bæjarbót, óháð fréttablað
Janúar 1989
Vegna skrifa um langlegumál:
Athugasemdir við
athugasemdir frá
Ólafi Björnssyni
Ólafur Bjömsson, formaöur
stjómar Sjúkrahúss Keflavíkur-
læknishéraðs, sendir Bæjarbót
og reyndar Grindvíkingum öll-
um heldur betur tóninn í grein
sinni: Á tilgangurinn að helga
meðalið?”
Þar sem nokkur atriði grein-
arinnar verða væntanlega skoð-
uð sem síðbúið framhald af ára-
mótaskaupinu, ætti ekki að
leggja vinnu í að svara henni.
Það verður samt gert hér, enda
verður Ólafi að lærast að þekkja
sín takmörk eins og okkur hin-
um.
1. Bæjarbót hefur miðlað
upplýsingum um heilsugæslu-
mál Grindvikinga til lesenda af
stakri samviskusemi. Birt ítar-
lega greinargerð Heilsugæslu-
nefndar Grindavíkur, greina-
skrif áhugasamra borgara, við-
töl við bæjarfulltrúa ásamt frétt
af mótmælum tæplega 800
borgara vegna áforma um bygg-
ingu heilsugæslu á 2. hæð Vík-
urbrautar 62. Skilgreining Ólafs
á hlutverki blaðsins í því máli er
aumkunarverð.
2. Rétt er hjá Ólafi að Karl
Steinar lagði ekki fram kröfu
um 400 milljóna framlag til
D-álmu. Hann óskaði eftir
framlagi og fékk 9 milljónir
samþykktar. Reyndar ekki endi-
lega til D-álmu heldur ,,til öld-
runarþjónustu almennt á
Suðurnesjum”, eins og liðurinn
heitir á fjárlögum. Talan 400
milljónir var margnefnd af
ýmsum aðilum sem áætlaður
heildarkostnaður við D-álmu,
en ekki fundin upp í Bæjarbót.
Einnig skal fúslega leiðrétt að
fjöldi rúmanna verður
væntanlega meiri en blaðið gat
um samkvæmt upplýsingum
sem taldar voru áreiðanlegar.
3. Ólafur sendir Grindvík-
ingum almennt tóninn. Segir þá
trega til samvinnu og vilja
sleikja rjómann. Grindvíkingar
eru líklega ekki á sama máli.
Hafa afsalað sér fjölda starfa,
best reknu rafveitunni, landi
undir HS og fleiru vegna sam-
vinnu sveitarfélaganna. Standa
auk þess best í skilum vegna
sameiginlegra útgjalda. í af-
stöðu Ölafs til Grindvíkinga
gætir neikvæðni og hroka. Von-
andi verða einhverjir til að svara
honum betur en hér er gert.
4. Vitaskuld er það vilji allra á
Suðurnesjum að D-álman rísi.
Það á hins vegar ekki að koma í
veg fyrir að aðrar úrlausnir í
dvalarmálum aldraðra (hraustra
eða sjúkra) geti orðið að veru-
leika. Ríkið krefst ennþá al-
gjörrar samstöðu meðal
„heimamanna” um ráðstöfun
fjár til þessa málaflokks. Sú
samstaða er ekki fyrir hendi,
nema að allir hafa lýst stuðningi
við byggingu D-álmunnar í
Keflavík. Bæjarbót er ókunnugt
um að sú afstaða sé breytt, en
hefur upplýsingar um að jafn-
framt vilji t.d. bæjarstjórn
Grindavíkur leggja sitt að mörk-
um til þess að Heimili aldraðra í
Grindavík klárist og komist í
gagnið, enda byggingin langt
komin, en D-álman ekki komin
úr startholunum.
5. Krafa (ósk) Karls Steinars
um framlag kom seint fram,
reyndar á loka spretti fjárlaga-
gerðarinnar og var af ýmsum,
m.a. Ólafi Ragnari fjármálaráð-
herra, túlkuð sem sprengja inn í
stjórnarsamstarfið. Þar mun
fréttaflutningur Stöðvar 2 hafa
skapað ákveðinn misskilning.
Bæjarbót fagnar sérhverri til-
raun þingmanna til að bæta
aðstöðu aldraðra og sjúkra á
Suðurnesjum, en lýsir jafnframt
vanþóknun á að krafa ríkisins
um 100% samstöðu „heima-
manna” (í sjö sveitarfélögum)
bindi hendur þeirra.
Atvinnulífið:
Konur á
Suður-
nesjum!
Stofnið
fyrirtæki!
Iðntæknistofnun íslands
og Atvinnuþróunarfélag
Suðurnesja hf. hafa ákveðið
að bjóða upp á 26 kennslu-
stunda námskeið um stofnun
og rekstur fyrirtækja sem
sérstaklega er ætlað konum á
Suðurnesjum.
Námskeiðið spannar yfír
tvær helgar og mun hefjast
föstudaginn 3. febrúar næst-
komandi og hefst klukkan
18.00.
Kennsluefnið er í vandaðri
möppu og meðal efnis er:
Stofnandi og stjórnun, gerð
stofnáætlana. markaðsmál,
fjármál, reikningsskil og
eignarform fyrirtækja.
Leiðbeinendur verða Emil
Thoroddsen félagsfræðingur
og Guðbjörg Pétursdóttir
viðskiptafræðingur frá Iðn-
tæknistofnun. Frá Atvinnu-
þróunarfélaginu Jón E. Unn-
dórsson verkfræðingur. Auk
þess verður lögfræðingur og
endurskoðandi af Suðurnesj-
um með fyrirlestra.
Konur eru ekki síðri körl-
um í rekstri fyrirtækja nema
síður sé. Smærri fyrirtæki
standa oft og falla á því
hvernig til tekst með stjórnun
fjármálanna og þar sem kon-
ur eru yfirleitt ráðdeildar-
samar og þekktar að því að
láta enda ná saman, þrátt
fyrir lítil fjárráð, eiga þær
fullt erindi í stjórnunarstörf.
Það hefur komið í ljós að
konum líkar betur þátttaka í
námskeiði sem þessu án þátt-
töku karla. Ástæðan fyrir
þessu er að þær stofna öðru-
vísi fyrirtæki en karlarnir,
oft lítil þjónustufyrirtæki og
eru óframfærnari.
Kennslugögnin sem verða
notuð hafa verið sérstaklega
útbúin fyrir þetta námskeið
og taka mið af því.
Kr. Ben
hættur.
Frímann
tekinn við
Kristinn Benediktsson (Kr.
Ben.) hefur látið af störfum
sem fréttaritari Morgun-
blaðsins og er farinn til sjós.
Við fréttaritarastarfinu tekur
Frímann Ólafsson kennari.
Hann er ekki alveg ókunnug-
ur þeim starfa, þar sem hann
hefur áður starfað fyrir Tím-
ann sem fréttaritari.
Sorp-
gámarnír
Enn einu sinni skal ítrekað að sorpgámarnir
á lóðinni bak við Festi eru einungis ætlaðir
fyrir úrgang frá heimilum.
— Ekki frá fyrirtækjum —
Hvert heimili í bænum borgar kr. 500.- á ári í
gámagjald vegna þessarar þjónustu. Fyrir-
tækin greiða ekki þetta gjald, enda eru gám-
arnir ekki ætlaðir þeim.
Vinsamlegast takið þetta til greina.
Bæjartæknifræðingur
Það er TRE-X ánægja að
6=33 uppfylla kröfur vandlátustu
viðskiptavinanna!
Parket gerir íbúðina fallegri og hlýlegri og íbúana
ánægðari!
• Spónparket (11 mm) kr. 1.195.- ferm.
• Langmoen-beykiparket (natur) kr. 2.677.- ferm.
• Langmoen-eikarparket kr. 2417.- ferm.
—' ^ J Glæsilegt útlit!
Nýtt þiljuefni í tískulitum,
einnig til spónlagt.
— Einstaklega áferðarfallegt efni
Vantar þig innihurðir
fyrir fermingarnar!
Við eigum yfir
20 tegundir!
Verð frá: Kr. 8.800.-