Þjóðólfur


Þjóðólfur - 21.06.1943, Side 4

Þjóðólfur - 21.06.1943, Side 4
ni. árg. 23. tbl. ÞÍOiMilR 21. júní 1943 21. júní Dægupmál Átök í Framsókn. Um alllangt undanfarið skeið hefur það verið á almannavitorði, að eigi væri kyrrt í Framsóknar- flokknum. Hafa gerzt þvílíkar greinir með mönnum í fylking- arbrjósti flokksins, að forusta hans hefur raunverulega verið klofin, þótt kyrrt væri að kalla á yfir- borðinu og ekki tekið að skipta liði meðal kjósenda flokksins. Annars vegar hafa skipað sér formaður flokksins, Jónas Jóns- son, ásamt framkvæmdastjórn Sambands ísl. savinnufélaga. Hins- vegar hafa tekið sér stöðu Her- mann Jónasson og Eysteinn Jóns- son og hefur fylgt þeim að mál- um meginhluti af þingflokki Framsóknarmanna. — Stefnumun- ur þessara aðila hefur enn lítt komið í ljós nema í einu máli: AfstöSunni til kommúnista. Hvaö skilur? Eiginlegur stefnumunur hinna andstæðu aðila í Framsóknar- flokknum er sem sagt óljós enn, þegar sleppt er viðhorfinu til kommúnista. En þó má leiða lík- ur að ýmsum atriðum í þeim efn- um. Fyrir Jónasi og Sambands- mönnum vakir án efa hreinrækt- aðri bændapólitík en flokkurinn hefur rekið til þessa, svo og al- hliða tillit til framleiðslustarfsem- innar yfirhöfuð. Þeir munu og hafa hug á nokkurri „lireinsun“ í flokknum: Firra hann frekari ámæli af ýmsum létt virtum mönn- um, sem í auðgunarskyni hafa haldið sig í útjöðrum flokksins á undanfömu valdatímabili hans. Þeim mun og vera farið að of- bjóða skattarán það, sem er hið eina og sanna „evangelium“ Ey- steinsliða. Um afstöðuna til kommúnista er aftur það að segja, að formaður flokksins og hans fylgjendur munu vilja halda fast við fyrri yfirlýsingar flokksins um það, að samvinna við kommúnista komi ekki til greina, þar ’eð þeir viljr kollvarpa þjóðskipulaginu og séu þjónustuskyldir erlendu stórveldi. — Hermannsliðar vilja hins veg- ar ná samstarfi við kommúnista, hvað sem það kostar og að því er virðist alveg án tillits til málefna. Er þeim Hermanni og Eysteini svo mikið í mun í þessu efni, að þeir eru óðfúsir að ganga til þess- arar samvinnu yfir pólitískt lík foringja síns og velgerðamanns, Jónasar Jónssonar. Þögnin rofin? Um nokkurt skeið hefur verið fjölyrt um þessa ókyrrð í Fram- sóknarflokknum í andstöðublöð- um flokksins. Hins vegar hefur verið þagað um hana innan flokks- ins,nema hvað snertir undirróð- ursstarf í kyrrþey. Þó hafa farið þar fram þögul átök, sem sýna gerla, hvað er að gerast.. Á aðalfundi miðstjómar flokks- ins náði Jónas nauðulega endur- kosningu sem formaður flokksins. Hins vegar var annar maður val- inn sem formaður þingflokksins. Á sömu leið fór um blaðstjórn Tímans. Þar komst Jónas í minni- hluta og var bolað frá formenn- sku. Hefur hann ekki skrifað staf í Tímann síðan, enda engan veg- inn átt óhindraðan aðgang að blaðinu. Fyrir stuttu síðan sendi Jónas út dreifibréf, þar sem hann gerir nokkra grein fyrir stefnum meiri- hlutans og minnihlutans í stjórn Framsóknarflokksins. Lætur hann þess jafnframt getið, að hann muni nii taka að skrifa í „Dag“ á Akureyri, annað aðalblað flokks- ins. — Síðan Jónas sendi út bréf sitt liefur það hins vegar spurzt, að hann hafi ekki fengið „inni“ í „Degi“ þegar til átti að taka. Leikur mönnum nú jafnframt grunur á því, að hann muni ganga hreint til verks og kljúfa flokkinn og stofna sitt eigið málgagn.' — Má nú ætla, að raunvemlega sé rofin sú þögn innan Framsóknar- flokksins, sem öllum þorra flokks- mannanna hefur óneitanlega þótt nokkuð óviðfeldin. Taflsta&an. Það er ekki auðvelt að geta sér neins til um endalok þeirra átaka, sem nú virðast standa fyrir dyr- um innan Framsóknarflokksins, enda í sjálfu sér þarflaust. Tím- inn mun leiða það í Ijós eins og allt annað. Hermann og fylgjendur hans hafa „Tímann“ á sínu valdi, En svo liefur bragðið við, eftir að Jón- as hætti að skrifa í blaðið, að það er mjög ólæsilegt og áreiðanlega þrautleiðinlegasta blað, sem út et gefið á Islandi. Enda er ekki hlut- ur Þórarins ritstjóra slíkur, að þess sé að vænta að mikið kveði að lionum. Hann var ámm sam- an algerlega háður Jónasi og örl- aði aldrei á sjálfstæðum skoðun- um í málflutningi hans. Síðar gekk hann Hermanni á hönd jafn gagnrýnilaust og er nú álíka þægt verkfæri hans og Jónasar áður. Hermann og Eysteinn skrifa hvor- ugur að staðaldri — og munu al- drei gera. Um aðra flokksmenn í Reykjavík, sem helzt hafa lagt blaðinu til efni nú undanfarið, er bezt að fjölyrða sem minnzt. Það virðist því gersamlega fyrirmun- að þessum armi flokksins að halda úti blaði, sem nokkurs virði geti talizt. — Hins vegar er stílsnilld Jónasar löngu þjóðkunn og óum- deilanleg, hvaða afstöðu, sem menn kunna að hafa gagnvart stefnu hans. Þarf ekki að draga í efa, að heitar muni eggjar hans, þegar hann fer að skera fyrir meinin á flokkslíkamanum. Munu þau sár, er hann þá veitir and- stæðingum sínum, gróa seint og illa. Málefnagrundvöllurinn. Jónas mun vafalaust hasla sér völl sem málsvari bænda, sam- vinnuhreyfingarinnar og smærri framleiðenda. Hann mun taka skýra afstöðu gegn kommúnistum á þeim grundvelli, að þeir séu ó- þjóðhollur niðurrifsflokkur og vilji feiga framleiðslustarfsemina í landinu í því skyni að skapa hran og neyðarástand. Hermann og Eysteinn standa illa að vígi málefnislega. Þeir hafa engin mál á oddinum. 1 allmarga undanfarna mánuði virðast þeir hafa átt eitt, aðeins eitt áhugamál: Að ná sam- starfi við kommúnista. Tilgangur slíks samstarfs hefur verið alger- lega óljós. Það hefur aðeins ver- ið stefnt að þessu markmiði mark- miðsins vegna. Átökin í Framsóknarflokknum snúast því fyrst og fremst um af- stöðuna til kommúnista og þá um leið um afstöðuna til efnahags- starfsemi þjóðarinnar. Hermann og Eysteinn hafa forystu hinna kommúnistísku afla í flokknum. Færi langbezt á því, að sá armur lians hreinlega sameinaðist komm- únistum. Hins vegar verður að á- líta, að meginliluti bændastéttar- innar telji sig ekki eiga samleið með því fólki. Og sama máli gegn- ir væntanlega um meginstyrk sam- vinnuhreyfingarinnar. Happdrætti verkafólksins er í Ráðningarskrifstofu landbiínaðarins Lækjargötu 14 B. — Sími 2151. t Opið daglega kl. 9—12 árdegis og 1—7 síðdegis. Þar er úrval sveitaheimila, sem vantar kaupafólk í sumar, bæði konur, karla og unglinga. Þeir, sem fyrstir verða til að gefa sig fram til vinn- unnar, liafa úr mestu að velja. Komiö fljótt og látiö ekki happ úr hendi ganga. » Framleiðsla til fæðis og klæðis er ávallt þjóðar- nauðsyn, en aldrei fremur en nú. AÐSENT EFNl! ■ Réttur gangandi fólks á götum Reykjavíkur. Þegar talað er um umferð og umferðarreglur í Reykjavík, er, auk gangandi manna, átt við öku- tæki svo sem bifreiðar, reiðhjól og bifhjól. Ríðandi menn eða hest- ar með vagna í eftirdragi sjást sjaldan nú orðið, samanborið við það, sem áður var. Á flestum helztu götum bæjar- ins standa nálega óslitnar raðir af bifreiðum, annaðhvort uppi við húshliðarnar, þar sem ekki era afmarkaðar gangstéttir, eða utan við stéttirnar. Er þá víðast hvar ekki lengra bil á milli bifreiða- raðanna en svo, að ökumenn geta aðeins þrætt miðja götuna. Þetta torveldar mjög gangandi fólki að komast leiðar sinnar. Það verður að sæta lagi að sneiða hjá bifreið- unum, þegar lilé er á umferð eft- ir miðri götunni. Sumstaðar er varla liægt fyrir gangandi menn að komast að hús- um sínum fyrir bílaþvögu, sem hinir og þessir eiga. Bílarnir era látnir standa vikur og mánuði á götunni framundan íbúðarhúsun- um til óþæginda og skapraunar íbúunum, ekki sízt því fólki, sem er svo óheppið að búa í kjöllur- um, þar sem gluggar snúa út að götunni. Þar byrgja bílamir fyrir birtu og útsýni. Lengi vel, eftir að farið var að nota bifreiðar til fólks- og vöru- flutninga hér í bæ, fóru menn sér- lega vel með þessi farartæki sín, og þótti vænt um þau, að því er virtist. 1 vondum veðrum, vetur og sumar voru bifreiðamar geymdar inni í skúrum, þegar ekki þurfti að nota þær. Sumir klæddu þær með dúkum til að verja þær snjó og regni, ef óhjákvæmilegt var að hafa þær undir beru lofti. Nú er þessu öðruvísi varið. Mönn- um virðist standa alveg á sama, hvernig fer um þessi verðmæti. Bifreiðarnar eru látnar standa úti alla daga og nætur, árið um kring, í livaða veðri sem er, og eru þá sérstaklega illa til fara. Svo kveð- ur rammt að liirðuleysinu, að lög- reglan hefur orðið að taka bifreið- ar af götunni sem óskilavarning. — Minnir þettá á meðferð sumra bænda á landbúnaðarvélum sín- um. i ★ Sumstaðar er stórgrýti, á víð og dreif á gangstéttum eða þar sem þær eiga að vera. Torveldar það mjög umferð gangandi fólks og er því til mikils ama. Þá er enn eitt, sem angrar gang- andi fólk og er því til mikilla ó- þæginda á götum úti en bænum til stórlýta. En það er hinn stanz- lausi vatnsstraumur ofan á gang- stéttirnar úr þakrennum á mörg- um húsum í bænum, þegar dropi kemur úr lofti. Ég get ekki hugs- að mér, að slíkt geti átt sér stað í nokkurri höfuðborg í veröldinni, annarri en Reykjavík. I rennurnar safnast sót úr reyk- háfum og ryk af götunum. Þetta skolast svo með regnvatninu ofan í kollinn á gangandi fólki, og fatn- að þess. Sumstaðar kveður svo rammt að þessu, að ekki verður komizt inn um dyr í sölubúðum, eða öðrum húsum án þess að fá þetta steypibað rétt við húsdym- ar — og það í ríkum mæli. Þetta er svo almennt í bænum, að lík- indi era til, að það sé einmitt boð- ið, en ekki bannað, í lögreglusam- þykkt bæjarins, að þakrennur húsa séu í slíku ásigkomulagi. Alltítt er það, einkum í út- hverfagötum, að skólpi er hellt út á götuna og jafnvel stundum skvett út úr gluggum. Sumstaðar hér í bæ standa ein- stök hús nálega úti í miðri götu (sbr. Hverfisgatan, Smjörhúsið o. s. frv.) Gangstétt er þá víðast hvar engin meðfram húshliðunum, eða þá svo örmjó, að ein manneskja getur trauðlega þrætt hana í senn. Þegar nú bifreiðar standa í röðum báðum megin á aðalgötunni, er lítið öryggi fyrir gangandi fólk, sem verður að neyðast til að sk jót- ast út á miðja götu milli bifreið- anna, til þess að komast leiðar sinnar. Ef umferðaréttur gangandi manna hér í bæ á eingöngu að vera bundinn við gangstéttirnar þar, sem þær era, hlýtur bæjar- stjórn að sjá um að fólk geti not- ið þeirra og þurfi hvorki að ganga undir fossandi þakvatn né klof- ast yfir stórgrýti eða annað, sem tálmar umferðina. Svipur. Kynlegur siður. Engin vörutegund er eins illa umbúin, af hálfu seljendanna, eins og brauS. Það er ekki ótítt, að af- greiðslustúlkur í brauðbúðum af- hendi viðskiptamönnunum brauð, sem eru aðeins að nokkra leyti vafin inn í pappír. Litlu pappírs- blaði er vafið utan um miðbik brauðanna en endarnir látnir vera umbúðalausir. Þegar bezt lætur, er sveipað utan um brauðin bréfi, sem raunverulega er nógu stórt, en þá er forðast að ganga þann- ig frá umbúðunum, að þær geti tollað. Giimmiteygjur og límpapp- ír virðast vera óþekktar nauðsynj- ar í brauðbúðum. Umbúðirnar eru brotnar lauslega fyrir enda brauð- anna. Um leið og viðskiptamað- urinn er kominn út úr búðinni brettast þær upp og brauðin eru tilbúin að taka á móti moldryki götunnar. Hvað á svona liáttalag að þýða ? Hvers vegna grípa ekki heilbrigð- isyfirvöldin hér inn í og fyrir- skipa eigendum brauðbúðanna að búa sæmilega um vöru sína? Það hefur að vonum verið átalið harðlega, að ýmsar fiskbúðir skuli leyfa sér að afhenda viðskipta- mönnum sínum fisk, án þess að búa um liann á sómasamlegan hátt. En hversu miklu alvarlegri er þó ekki meðferðin á brauðun- um? Þau eru etin í óbreyttu á- standi eins og þau koma frá búð- unum. Fiskurinn er þó soðinn. Sóttkveikjurnar, sem ásamt götu- rykinu setjast á brauðin, fara ó- skaddaðar á borð neytendanna. Á að þola Skrælingjabrag í meðferð einnar helztu neyzluvöra almenn- ings miklu lengur en orðið er? HúsmóSir. Ef þið óskið að geta tal- að með um aðalskipun þjóðmálanna þá lesið ritið Það er nú komið út í ódýru upplagi á aðeins 4 kr. og fæst hjá bóksölum.

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/1424

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.