Þjóðólfur


Þjóðólfur - 20.12.1943, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 20.12.1943, Blaðsíða 2
2 ÞJÓÐÓLFUR Þrjár athnga§emdir nm Kristindóm og Kirkjn ÞJÓÐÖLFUR Útgefandi: MUNINN h.f. Riutjóri: HALLDÓR JÓNAS30N Afgreiðsla: j(til bráðabirgSa) Mánagötu 25 — Sími 4416 — Þjóðólfur kemur út á hverj- um mánudegi og aukablöð eftir þörfum. Miuiriiverð kr. 12,00, f lauiaiölu 35 aura. Prentimiðja Jóni Helgaionar Hvað skal gera? Þjó'Smál vor eru nú kom- in í algera órei'ðu. I með- ferð þeirra ríkir engin stefna, en allt undir kasti komið hvernig hvert mál er meðfarið eða hvort þa<5 fœr nokkra afgreiðslu. — A með an þetta öngþveiti ríkir, kunnum vér engin rað önn- ur en þau, að fylgja aðferð annarra þjóða og gera stjórn vora dð venjulegri stríðs- stjórn með víðtœku neyðar- umboði til að standa á verð- inum og mœta hinum óvenju legu og erfiðu truflunum með virkum ráðstöfunum. Að láta við svo búið standa er bókstaflega ekkert vit. Oll þing með snefil af ábyrgðartilfinningu gagn- vart þjóð sinni, mundu ekki hugsa sig utn eitt augnablik dð grípa til þessa ráðs, í stað þess að sitja aðgerðalaus til almenns hneykslis, og gera ekkert annað en að standa í vegi fyrir því að eitthverj- um bjargráðum verði við komið. Og það er þó ekki allt af að tilbúin situr óflokksbund in stjórn, sem vel má treysta til að leiia hinna beztu úr- ræða ef hún aðeins fengi að beita sér. — Auðvitað mœtti ekki œtl- ast til að stjórnin fyndi strax virkustu læknislyfin, en því aðeins finnast þau, að ein- hverjum lœkni sé þó leyft að líta á sjúklinginn og reyna til við hann allt hvað hœgt er. — Mundum vér horfa lengi á það með köldu blóði — ef einhver ágœtur vinur vor og velgerðamaður lœgi hættu- lega veikur — að þeir sem teldu sig erfingja hans, sœtu allt af á ráðstefnu í húsum hans undir því yfirskyni að þeir vœru lœknar hans? — Og svo þegar vér sendum þangað trúnaðarlœkni vorn, þá vœri ráðum hans ekki \ sinnt, en til þess að losna við heimsóknir hans, væri hann úrskurðaður ónýtur og hon- um meira að segja kennt um hið versnandi ástand sjúkl- ingsins. Frh. ÞaS er auðvitað ekki hægt að neita því, að kenning- armáti Kirkjunnar sé að ýmsu sá sami nú og fyrir öldum síð- an, en aðalatriðið er, livort hann út af fyrir sig er verulega framfaravænlegur fyrir mann- kynið enn sem komið er. Allt er kezt í hófi. Það mundi lítt duga á veraldlega sviðinu, til að halda mönnum í skefjum og góðri framkomu, að semja lög og banna alls konar brot og yfirsjónir, en gefa jafnframt fyllilega í skyn, að sá seki fái fyrirgefningu á öllum sínum brotum án fyrirhafnar, eða með mjög hægu móti, eða að afnema allar hegningar. Nei, maðurinn er áreiðanlega ekki kominn enn svo langt, að það dugi. Óttinn einn er fær um að halda mönnum í skefjum, og mun svo lengi enn verða. Eða er nokkuð greinilegra en það, að sjá þetta endurgjalds- lögmál í okkar tilveru, ef við viljum athuga liana? Og hrædd ur er ég um, að það gildi á fleiri sviðum tilverunnar en okkar. „Eins og maðurinn sá- ir, svo mun hann og uppskera“. Ég neita ekki þar með, að fyr- irgefning sé til, en ég tek hana ekki víðtækara en það, að hafi maðurinn gengið algerlega frá því sem rangt er, í hverju sem það er fólgið, t. d. hefnigjarn maður verði sáttfús, ágjarn maður greiðugur, ósannsögull maður sannsögull, eða að hin verri eðlishvöt, hver svo sem hún er, hafi lotið í lægra haldi fyrir hinni betri, þá er honum fyrirgefningin vís á því sem hann liefur yfirunnið og sigr- ast á en áður aðhafst. Og til þeirrar áreynslu stendur hverj- um manni hjálp til boða að of- an, ef hann vill þiggja hana og notfæra sér. Það er „náðin“ eftir mínum skilningi. Ég talaði áðan um, hvort breyting hefði orðið á kenning- Það er nú á valdi þings- ins, hversu viðeigandi þetta dœmi verður talið. ★ En hvort sem þingið hlýð- ir skynsamlegum ráðum í þetta sinn eða ekki, þá geta íslenzkir ríkisborgarar með snefil af sómatilfinningu ekki lengur átt velferð sína og þjóðarinnar undir þingi, sem ekki fer lengur með um- boð fyrir þá, ekki ber neina ábyrgð gagnvart þeim, en hefur þegar því sýnist vilja þeirra og álit að engu! Til þess að hefja sókn um leiðréttingu á þessu óhæfa og niðrandi ástandi, verðum vér að leita á náðir holl- vætta þjóðarinnar og stefna saman þjóðfundi á Þingvelli á sumri komanda. armáta Kirkjunnar manna. Ég átti þar við, ef borið er samau t. d. kenningarmáti Jóns bisk- ups Vídalíns og sá, sem nú er viðhafður. Þar var hegningunni í Víti óspart haldið fram, fyrir illa breytni. Ég er nú ekki að halda því fram, að þar hafi ekki verið of langt gengið, en grunur minn er nú samt sá, að það hafi haft mikil áhrif til bóta, að minnsta kosti á hans tíð. En auðvitað fór þetta út í öfgar, og það líklega mikið fyr- ir skort á þekkingu eða fast- lieldni hans við forna trúarskoð un um hinn „eilífa eld, sem aldrei slokknar“, eða hina afar fornu og grimmdarlegu skoðun, að það sé fögnuður heilagra að horfa á kvalir fordæmdra í Víti. Miklu má nú skipta og skammt er jafnan öfganna á milli. Nú er þetta orðinn úreltur kenningarmáti og þá er farið út í aðrar öfgar. Nú er ábyrgð- ar- eða endurgjaldslögmálið af- numið, eða þess gætir orðið svo hverfandi lítið í kenningumfi, að það hefúr misst öll áhrif sín. Nú er það hin takmarkalausa fyrirgefning og náð, sem mest ber á. Eftir því sem syndin er stærri, er „náðin“ — sem á að skiljast svo sem fyrirgefning — meiri. sbr. Rómv. 5, 20. Að ég ekki tali um að minnst sé á „Víti“ eða vansælustað. Það er orðið úrelt, það er komið úr móð. En ætli að það geti nú ekki skeð, að „Víti“ sé samt til ennþá? Og þá væri sjálfsagt að vara við því, eins og maður, sem vill segja íétt til vegar; hann talar líka um hætturnar, sem sé að varast., ef út af hinni réttu leið er farið; annars hef- ur hann brugðizt mannúðar- skyldu sinni. Hitt er annað mál, að fyrir framþróun þekkingar- innar hefur fengizt vitneskja um það, að engin endalaus eða óumbreytanleg vansæla eðí, Víti er til; ef viljann til betrun- ar ekki vantar, en hann er und- ir liverjum einum kominn, þá er hjálpin eða náðin til boða, og er það ólíkt eðlilegra tilveru lögmál en hið fyrra. Þessu lög- máli hefur verið haldið fram í mörgum hinum heztu sann- analeiðbeiningum, sem komið hafa frá þeim, sem héðan eru farnir og hafa getað gefið full- gildar sannanir fyrir tilvist sinni. I Júlíubréfunum stend- ur á einum stað þetta: „Fögn- uður okkar hérna megin er, að vera alltaf að tæma Víti“. Hjálpin er boðin, ef hún er þeg in. Þetta er óneitanlega fram- för í þekkingu, sem fengizt hef ur nú á síðustu tímum og er ekki minna virði fyrir því, þótt hún sé ekki margra alda göm- ul. Hér er endurgjaldið hvorki afnumið né óumbreytanlegt, og mun það vera það rétta (sbr. t. d. Matt. 18, 34.). Til hvers væri að vanda breytni sína, ef fyrirgefningin er alltaf vís og því meiri, sem brotin eru stærri eða, að til þess að öðla3t hana, þurfi ekki nema einhverja vara játningu. Eða að til sé einhver almennur fyrirgefningarsjóður, sem allir eigi aðgang að nieð hægu móti. Þetta er stórhættu- leg kenning og er líklega ein af megin orsökum að áhrifaleysi Kristindómsins, enda mun hún eiga litla stoð í kenningum Krists, ef þær eru rétt skildar og rannsakaðar eftir beztu þekkingu og án viðbótar frá mannanna liálfu. Mun sú skoð- un eiga stoð sumra lærðustu og frjálslyndustu guðfræðinga. Þess má líka geta í sambandi við þetta, að það var gamall austurlenzkur talsmáti — og er kannske til enn í dag — að tala í öfgum fyrir utan oft þungskilið líkingamál. Eða hver vill álíta að ekki sé talað í öfgum í niðurlagi Jóhannesar guðspjalls, en þar stendur þetta: „Margt annað hefur Jes- ús gert, og ef það alt, eitt og sér livað, ætti að skrásetjast, hugsa ég að jafnvel heimurinn mundi ekki taka þær bækur, sem þá yrðu skrifaðar“. Nú var Jesús barn sinnar tíðar, eins og það er kallað. Getur þá ekki skeð, að hjns sama gæti sumstaðar í framsetningu hans? Mér finnsl þess víða gæta í guðspjöllun- um og eigi því ekki að skiljast bókstaflega, eins og það er kall að, eða skilja það einhliða eins og orðin gefa í skyn, fíjótt á lit- ið. Ég vil t. d. benda á Mark. 2, 5. Þar segir Jesús berum orð- um, að hann fyrirgefi hinum limafallssjúka manni, sem hann var búinn að lækna, syndir sín- ar, en hinum skriftlærðu þótti þetta guðlöstun. Því svarar Jes- ús þeim með þessum orðum. „Hvort er auðveldara að segja liinum limafallssjúka: syndir þínar eru þér fyrirgefnar, eða segja: Statt upp, tak sæng þína og gakk“. Þetta virðist vera dá- lítið annað. Seinni orðin virðast ekki benda til neins annars en að maðurinn sé orðinn heill líkamlegrar lieilsu, hann skuli því fara á fætur (sbr. Jóh. 5, 8.), liann hafi læknað sjúkdóm- iun. Orðin sem á eftir koma benda til hins sama. Synda- fyrirgefningin þýðir því lækn- ing sjúkdómsins, og þar sem stendur, að „syndga ekki fram- ar“, verður þá sama sem nú- tímamaður mundi orða svo, að varast að stofna sér út í sömu liættuna aftur eða mynda or- sök til þess. Þessi skilningur er í samræmi við Mark. 5, 34. Þessi austurlenzki öfgatalsmáti kemur líka fram í Lúk. 14, 26., Jóh. 12, 25. og Jóh. 5, 14., sam- anber 8. Syndafyrirgefningin virðist því þýða það, að hann sé búinn að lækna hin líkam- legu mein þessara manna og á- minnir þá um að þeir skuli gæta heilsu sinnar framvegis, eins og við mundum orða það. Ég get lieldur ekki fundið i guðspjöllunum — sem eru aðal heimildirnar fyrir kenningu Jesú — sannanir fyrir þessum mikla fyrirgefningarlærdómi, sem hann eigi að hafa haldið fram, og því hef ég heyrt vel lærðan guðfræðing einnig halda fram. Miklu fremur finnst mér þar einmitt koma mjög skýrt fram, að hver verði að bera fulla ábyrgð á gjörðum sínum, og það er hin mikla fræðsla, sem hann veitti mönnunum, að sú ábyrgð nær út fyrir þetta líf, af því að það er til annað líf, sem hann sannaði eftir líkams- dauða sinn. Það er einnig marg staðfest bæði fyrr og síðar, þó að menn séu tregir til að trúa því enn í dag, og það jafn- vel sumir þeir, sem tekið hafa að sér flutning þe6sa boðskap- ar. Jesús var í svo nánu og full- komnu sambandi við æðri stig tilverunnar, að honum var þetta full ljóst, og þess vegna gat liann líka gjört ýms undra- verk-, sem aðrir ekki geta, en þó áttu að halda áfram, og hafa líka gert það þegar skilyrði hafa verið til þess. Og sannan- ir eru fyrir þeim nýrri langtum betri og fullkomnari heldur en hinum fornu, sem eðlilegt er, því þau eru nær okkur og því kostur á að sanna þau betur. Þau hafa staðfest undraverk Krists og rneira að segja aðal- kenningar hans líka, svo þar er engin hætta á ferðum fyrir Kirkjuna. Fyrir þessar kenning- ar sínar og undra- eða krafta- verk fórnaði hann hinu jarð- neska lífi sínu, þegar ekki varð hjá því komizt vegna síngimi og fastheldni kennivaldsins við fornar skoðanir. Hann vildi flytja mönnunum þennan gleði boðskap, sem hann kallaði, og var langt á undan hans tíma, með því að hefja guðshugmynd ina á hærra stig en áður og sanna mönnunum tilveru ann- ars heims og hvað það væri, sem þar liefði gildi. Fyrir það gat hann kallað sig sannleikans konung. Og hann er það. Það er líka í samræmi við guðshug- mynd hans, þar sem hann seg- ir: „Ég og Faðirinn emm eitt“, eða „þar sem þið sjáið mig, þar sjáið þið Föðurinn“. Hann meinti ekki sinn jarðneská lík- ama, eða „mannssoninn“, held- ur hið innra kærleikseðli sitt. Fyrir þenna boðskap sinn til mannanna, til að reyna að hef ja þá á hærra andlegt menningar- stig, gekk hann fúslega í dauð- ann, og meira getur enginn lál- ið en lífið. Á þennan hátt og frá þessu sjónarmiði er hann sannnefnd- ur frelsari manna. Hann lagði allt í sölurnar fyrir aðra og varðaði veginn. Annarra er að vilja að láta sig leiðrétta. Vilji menn ekki sinna því, geta þeir ekki átt von neinnar frelsunar, þar til sú blindni hefur mnnið af hverjum einum, hvenær sem það verður. En það gerist ekki áreynslulaust. Enginn getur hrósað sigri nema hann hafi unnið stríðið. En hjálpin stend- ur alltaf til boða, ef hennar er leitað og yfimnnir brestir, og þá mun og annarra glapstiga ekki að eilífu minnst verða. Ég gat þess hér að framan, að ég gæti ekki fundið í guð- spjöllunum eða í kenningu Krists, eins og hún er þar til okkar komin, sannanir fyrir hinum mikla fyrirgefningarlær Frh. á 4. síðn.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/1424

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.