Sendisveinablaðið - 22.12.1931, Blaðsíða 1

Sendisveinablaðið - 22.12.1931, Blaðsíða 1
SENmSVEINABLAÐIÐ — ÚTGEFENDUR. NOKKRIR SENDISVEINflR ■—■ 1. ápg. Reykjavík 22. desembep 1931 1. blað Sendisveinarnip og jólin Nú eru jólin óðum að nálgast, og þrátt fyrir þessa mjög erfiðu atvinnuleysistíma, sem hér hafa verið, eykst óðum salan í búðun- um, og vinnutími þeirra sem við þær vinna lengist. Jólin eru hátíð barnanna, kveður altaf við, en samt sem áður eru það einmitt jólaaiinir, sem beita sendisveinána, yngstu verkamennina, þeim herfi- legasta órétti hvað vinnuþrælkun snertir, sem hér þekkist. Um jólin verða sendisveinarnir að rogast með óheyrilega þungar byrðar lang- ar vegalengdir, langt fram á nótt fyrir sötnu smánarborgun og vana- lega. Hvernig sem færðin er eru þeir hiklaust sendir, stundum langt út fyrir bæ, og ekki dugar að kvarta, því þá er þeim sagt, að þeir geti bara farið úr vinnunni, það verði nógir til þess að koma í staðinn. En þó að kaupið sé lítið, og jafnvel svo lítið, að það nægi ekki fyrir brýnustu nauðsynjum sendisveinanna sjálfra, þá er það þó betra en ekkert þegar faðirinn gengur atvinnulaus og hefir ekk- ert handa á milli, oe þess vegna dugar ekki að kvarta heldur verða sendisveinarnir að basla áfram miskunnarlaust. í fyrra fyrir jól var stungið up'p á því, að við sendisveinar þyrft- um að koma upp samtökum með oss. Nú höfum við stofnað félag með okkur og nú verðum við að nota félag okkar til þess að koma í veg fyrir aðra eins kúgun fyrir þessi jól eins og undanfarið. Það er langt síðan komið var fram með kröfur fyrir okkur t sendi- sveinadeildinni, en Gfísli vísaði þeim frá og neitaði að bera þær upp vegna þess að málið væri svo illa undirbúið. En hann hefir ekk- ert gert til þess að undirbúa það betur. Hann hefir ekkert gert til þess að eggja okkur til baráttu, til þess að bæta þau smánarkjör, sem við höfum eða til þess að gera okkur jólin dálítið þolanlegri. Sendisveinar! Við verðum að krefj- ast þess sjálfir að við fáum eftir- vinnukaup greitt, sérstaklega fyr- alla eftirvinnu eftir klukkan 7 á

x

Sendisveinablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sendisveinablaðið
https://timarit.is/publication/1432

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.