Sendisveinninn - 23.12.1931, Blaðsíða 4
U'é 1 a gsm ál
Sunuudaginn 12. desember hélt
Sendisveinadeildin nokkurs konar
dansskemmtun, sem fór ágætlega
fram. Sóttu hana um 50 drengir
með dömur. Mun félagið heldur
hafa hagnast að þeirri skemmtun
heldur en hitt. Bráðlega mun
verða haldin nýársfagnaður og
mun verða mjög til hans vandað.
Sendisveinar! Sækið ykkar eig-
in skemmtanir fremur en aðrar.
Því fleiri sem koma, því raeiri
verður ágóðinn fyrir deildina.
Kvöldskóli sendisveina hefir
starfað í vetur og hafa sótt hann
eitthvað um 60 drengir. En vegna
þess að atvinnuleysi og fjárhags-
erfiðleikar hafa verið allvíða í
vetur hafa margir orðið að hætta.
Eftir nýárið mun skólinn taka
til starfa aftur og mun verða í
einni deild og ef til vill tveimur.
Sendisveinar! Sækið skóla ykk-
ar af því að það er nauðsynlegt
fyrir ykkur alla að menntast.
Ráðningaskrifstofa „Merkúrs“
hefir útvegað mörgum sendi-
sveinum atvinnu. — Hafa kaup-
menn leitað til hennar og á þann
hátt hafa margir sendisveinar
fengið atvinnu og þar á meðal
sá, sem þetta ritar.
Atvinnulausir sendisveinar, lát-
ið skrásetja ykkur á ráðninga-
skrifstofu Merkúrs, Lækjarg. 2.
„Við megum ekki láta kljúfa
samtökin, þó við séum ekki sam-
mála í stj órnmálum".
V erzlunarmannaf élagið
;M E E; K TJ E,
starfar í þrem deildum:
Karlmannadeild,
Kvennadeild,
Sendisvei nadeild.
Ráðningarskrifstofa.
Lögfræðishjálp.
Námsskeið fyrir verzlunarmenn.
Kvöldskóli sendisveina.
Ársgjald: karla .. .. kr. 10.00
kvenna. . . . — 6.00
sendisveina.. — 2.00
Þetta segja kommúnistar í
blaði, sem þeir nefna „Sendi-
sveinablaðið". En hverjir hafa
reynt að veikja samtökin aðrir
en þeir, sem þetta segja? Fyrsta
tilraun þeirra var sú, að þeir létu
fulltrúa sinn í Sendisveinadeild-
inni bera út illmæli um umsjónar-
mann deildarinnar og jafnframt
duglegasta mann hennar. — End-
aði sú árás með því, að komm-
únistanum var vikið úr deildinni.
— Margar fleiri tilraunir hafa
þeir gert til að kljúfa samtökin
og telja sendisveinum trú um að
duglegasti maður deildarinnar
væri svikari.
Skora ég hérmeð á alla sendi-
sveina að láta ekki blekkjast af
þessum klofningsmönnum.
Guðbj. Guðbjörnsson.
ítitstjóri og ábyrgðarmaður:
Gísli Sigurbjörnsson.
Prentsm. Acta.