Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.1985, Qupperneq 4

Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.1985, Qupperneq 4
15. ágúst 1984 1019 Nr. 522 mestu lengd meiri en 15 metrar, skulu fuilngægja ákvæöum þessa reglna við fyrstu búnaðarskoðun eftir 1. janúar 1987. 2. Fastur slökkvibúnaður vélarúms. 2.1. Almenn ákvæði. 2.1.1. Vélarúm fiskiskipa, sem búin eru aðalvélum, hjálparvélum eða hvers kyns búnaði fyrir brennsluolíu, skulu búin gasslökkvibúnaði í samræmi við ákvæði greinar 2.2. eða öðrum hliðstæðum föstum slökkvibúnaði vélarúms, sem vióurkenndur hefur verið af Siglingamálastofnun ríkisins. 2.1.2. Siglingamálastofnun getur veitt undanþágu frá einstökum ákvæðum þess- ara reglna, ef umrædd ákvæði, að mati Siglingamálastofnunar, teljast óeðlileg og ónáuðsynleg og öryggi skipsins telst ekki lakara en ella. 2.1.3. Búnaðinn skal yfirfara og prófa eftir því sem mögulegt er, og a. m. k. árlega. Siglingamálastofnunin getur falið aðilum, sem til þess hafa fengið sérstaka viðurkenningu stofnunarinnar að annast prófun og eftirlit með búnaðinum. 2.1.4. Fiskiskip, sem búin eru föstum slökkvibúnaði í véla- og ketiirúmi í samræi við ákvæði 6. greinar núgildandi reglna um eldvarnir í fiskiskipum, skulu álitin fullnægja ákvæðum þessara reglna. 2.1.5. Reglur þessar gilda um ull fiskiskip 500 brl. og stærri, og um þau vélarými annarra fiskiskipa, sem þegar eru búin föstum slökkvibúnaði. Reglurnar gilda einnig um fiskiskip með mestu lengd 15 metrar eða meiri, sem smíði er hafin á eftir gildistöku þessarra reglna. Þá skulu önnur fiskiskip, 100 brl. og stærri, þar sem aðalvél er endurnýjuð, fullnægja ákvæðum þessarra reglna við fyrstu vélbúnaðarskoðun, sem fram fer að því verki loknu. 2.2. Gasslökkvibúnaður. 2.2.1. Almenn ákvæði. 2.2.1.1. Gasslökkvibúnaður, sem komið er fyrir í skipum, skal vera viðurkenndur af Siglingamálastofnun ríkisins. Gasslökkvibún- aðinn má aðeins nota í vélarúmum skipa. 2.2.1.2. Lagnir gasslökkvimiðils frá geymsluhylki að dreifistútum skulu búnar stjórnloka. Lokinn skal vera handstýrður, annaðhvort beint eða með fjarstýringu. Sjálfvirk stjórnun stjórnlokans er óheimil. Ganga skal þannig frá lokanum og öðrum hlutum búnaðarins, að gasslökkvimiðill geti ekki vegna mistaka komist úr geymsluhylkjunum. Sé stjórnlokinn búinn fjarstýribúnaði, skal fjarstýribúnaðurinn þannig gerður, að hann sé nothæfur, þó mikill eldur sé í vélarúmi. Sé fjarstýribúnaðurinn rafdrifinn, skal hann tengjast neyðarraforkugjafa skipsins, nema að búnaðinum tilheyri sér- stök rafhlaða til notkunar í neyðartilvikum. 2.2.1.3. Fyrirkomulag lagna og stúta skal vera þannig, að dreifing gassins um vélarúmið verði sem jöfnust og áhrifamest. 2.2.1.4. Oll op að vélarúminu skulu búin tryggum og handhægum lokunarbúnaði. Lokunarbúnaðurinn skal vera fjarstýrður, ef lokunin, að mati Siglingamálastofnunarinnar, að öðrum kosti, er of seinvirk. 2.2.1.5. Stjórnbúnaöur gasslökkvibúnaðarins, þ. e. handfang eða rofi, skal staðsettur á aðgengilegum stað utan vélarúms og utan þess

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.