Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.1985, Page 6

Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.1985, Page 6
15. ágúst 1984 1021 Nr. 522 vera vel einangrað og loftræst. Öll op að slíku rúmi skulu vera frá opnu þilfari. Öll þil og þilför rýmisins, sem liggja að vistarverum, vinnurýmum, lestarrýmum og vélarúmum, skulu vera fullkomlega loftþétt. f>ó er unnt að fallast á að geymslu- hylkin séu staðsett í vélarúmi, ef eftirfarandi ákvæðum er fullnægt: — Hylkjunum skal komið fyrir á öruggum stað, þar sem hvorki þau né stjórnlokinn verður fyrir hnjaski eða skemmdum. Setja skal sérstaka hh'f utan um hylkin og stjórnlokann, sé þess talin þörf. — Hylkin skulu búin þrýstimæli og öryggisventli, sem opnar fyrir slökkvimiðilinn, ef þrýstingur í hylkinu verður óeðli- lega hár. Jafnframt skal hylkið búið viðvörunarbúnaði, sem gerir viðvart ef slökkvimiðill lekur út af hylkinu. — Eldur í vélarúminu skal ekki koma í veg fyrir, að búnaðurinn sé áfram í nothæfu ástandi og að eftir sem áður sé unnt að opna fyrir stjórnlokann. 2.2.3. C02 — slökkvibúnaður (Total flooding). 2.2.3.1. C02 — slökkvibúnað er því aðeins heimilt að nota í fiskiskipum, að hann fullnægi ákvæðum greina 2.2.1. og 2.2.3. 2.2.3.2. Rými þau, sem búin eru C02 — slökkvibúnaði, skulu búin aðvörunarsírenu, nema að viðkomandi rými séu varanlega lokuð og ómönnuð. Aðvörunarsírenan skal gefa viðvörun í nokkurn tíma, minnst eina mínútu, áður en unnt er að opna stjórnlokann. 2.2.3.3. Hljómur sírenunnar skal vera bæði auðgreinanlegur og auðheyranlegur, hvar sem er í vélarúminu, þó svo allur vélbún- aður þess- sé í gangi samtímis. Sé sírenan rafknúin, skal hún tengd neyðarraforkugjafa skipsins. 2.2.3.4. Aðalvélar, hjálparvélar og loftblásarar viðkomandi vélarúms skulu þannig útbúin, að eldsneytis- og afltilfærsla til þeirra stöðvist sjálfkrafa, áður en unnt er að opna fyrir stjórnlokann. 2.2.3.5. Magn CÓ2 — slökkvimiðils í vélarúmi skal við eðlilegan loftþrýsting og lofthitastig aldrei vera minna en 35% af heildar- rúmtaki vélarúmsins. Við útreikning á rúmtaki þess skal taka með rúmtak reisna, loftstokka, ganga og annarra hluta rýmisins, sem ekki eru aöskildir frá vélarúminu með loftþéttum lokunar- búnaöi. Jafnframt skal taka tillit til lofts á loftkútum véla og tækja. Við rúmmálsútreikninga skal miða við að rúmstuðull C02 sé 0,56 nv'/kg. 2.2.3.6. Fyrirkomulag búnaðarins skal vera þannig, að tilskilið magn C02 geti fyllt vélarúmið á skemmri tíma en 2 mínútum. 2.23.1. Lagnir fyrir C02 — slökkvimiðil skulu vera úr stáli eða öðru sambærilegu efni. Efnismál þeirra skulu ekki vera minni en sýnt er í töflunum hér að neðan.

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.