Pullus - 15.01.1930, Page 6
-6-
stúdentsprófi Q. e. d. Nú óx mjer svo ásmegin
að jeg keypti mjer skip, og eftir rjettu stóra
tók jeg land í Þýskalandi, volunte deo. Þegar
keisa.rinn frjetti af skipskvámu ljet hann
vinnumann sinn söðla Þann gráskjótta og
reið til strandar. "Sie werden vetrarsetu bei
mir haben meistari Durgur", sagði hann, Þegar
hann sá mig. "Warum nicht, herra keisari",
sagði jeg und machte zwanzig KratzfUsse rechts
und links. Jeg komst nú brátt i hið mesta
uppáhald hjá hirðinni, Því á kvöldin las jeg
upp úr lesarkasafninu, sem jeg hafði samið
á námsárum mínum. Þetta Þótti keisara hin
mesta skemtun, og mikið Þótti honum koma txl
skipparasagna Boga. - Nú sótti að mjer óyndi
mikið og fýsti mig til suðurgöngu. Leysti
keisari mig Þá út með góðum gjöfum - skip-
pundi af bjór og halgldabrauði.- Kom jeg nú
til páfa og tók hann mjer sem einkasyni sinum.
Gerði jeg ýmist að hlýða á nautaat i Colosseum
eða jeg sat og tefldi við páfann. Það var góð
skemtun og holl. Yera min i páfagarði var mjer
yfirleitt til hinnar mestu ánægju og Það við
jeg segja páfatrúnni til hróss, að hún var
óspör á hangikjöt, rikling og skyr, að ógleymd-
xim blessuðum hákarlinum og brennivininu. Þeg-
ar jeg nú loksins sleit mig lausan frá Þessum
sæmdarhjónum, gaf páfinn mjer skriflegt leyfi
til Þess að drýgja svo margar syndir og mig
fraimvegis lysti, hvað jeg auðvitað hefi not-
að mjer. - Þegar jeg nú aftur kom heim i
barbariiö á íslandi samdi jeg einsamall oröa-
bók Sigfúsar Blöndals. Rak nú hvert höfuðritið
annað zum ftespil Verkefni i stila og endur-
sagnir handa alÞýðu, og er óhætt að segja að
Þetta hafi valdið straumhvörfum i heimsmenn-
ingunni. Lox má geta Þess að jeg er maður
siðprúður, reglusamur, friður sxnum og sómi
mjer hvarvetna vel.- Til Þess að sanna mönnum
að Þetta er sist oflof, birtum vjer hjer
ljósmynd af viðkomanda.
nattúrubarn.
Eins og önnur mannkind hefir Pullus nátt-
úruna i hávegum. Hjer birtum vjer Þvi ljós,_
mynd af furðulegasta náttúruviðundri, sem
uppi hefir verið siðan kolkrabbann mikla i
Kyrrahafinu leið, á öúdvBðu Silurtimabilinu.
Myndina sýnum vjer og til Þess, að menn Þurfi
ekki að ganga að Þvi gruflandi að Þeir sjeu
komnir af apa. Guðmundur gebárðarson átti 5
ára afmæli nú um jólin. Af Þvi að pálmar
eru að verða tiska sendum vjer honum slikan
í afmælisgjöf. Að lokum óskum vjer Guðmundi
til lukku og væntum Þess að hann megi lifa
núverandi aldur sinn tuttugfaldan. Vjer vilj-
um gera Guðmund að preláta, prófasti, prófess-
or eða einhverju sliku, i hvelli. Þaö eru
til nógir pálmar til Þess að troða lærdóminum
um hina göfugu nát túru i nemendur.
, Guð blessi Gvend.