Fréttablaðið - 04.06.2020, Blaðsíða 18
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
Mulier Fortis þýðir sterk kona. Okkur þótti nafn-giftin vel við hæfi. Við
erum sterkar á okkar sviði og
búum yfir mikilli reynslu og þekk-
ingu sem við viljum miðla áfram til
viðskiptavina,“ segir Íris Gunn-
arsdóttir sem stofnaði fyrirtækið
Mulier Fortis með vinkonu sinni,
Ingu Kristjánsdóttur, á haust-
dögum í fyrra.
„Við Inga unnum lengi saman
hjá Lyfju hf. og varð vel til vina. Við
höfum báðar óbilandi áhuga á öllu
sem viðkemur heilsu og vellíðan og
fannst kominn tími til að gera eitt-
hvað fyrir eigin hagsmuni, að njóta
þess að skapa og vinna að eigin
verkefnum. Tímapunkturinn var
því hárréttur; við vorum algjörlega
tilbúnar í slaginn og vissum að
markaðurinn væri tilbúinn fyrir
okkur,“ segir Íris.
Óraði ekki fyrir sprittinu
Mulier Fortis tók formlega til
starfa í febrúar og hefur nú þegar
vakið athygli fyrir frábærar heilsu-
vörur.
„Áður en við fórum af stað
rýndum við í heilsuvörumarkað-
inn, undirbjuggum okkur vel,
framkvæmdum markaðs- og sam-
keppnisgreiningu og sáum mörg
ónýtt tækifæri,“ segir Inga. „Því
ákváðum við að fara inn á þennan
spennandi markað með vörur
sem við höfðum í huga en einnig
að þróa íslenskar heilsuvörur frá
grunni. Það er okkur hvatning að
búa til vandaðar og áhrifaríkar
heilsuvörur og eftir mikla yfir-
legu og vangaveltur við þróunar-
vinnuna er einstök tilfinning að
sjá endanlega söluvöru verða til og
sem bjóðast nú í hillum verslana.“
Ein af íslensku, nýju heilsuvör-
unum frá Mulier Fortis er Númer
eitt handspritt með ilmkjarna-
olíum.
„Okkur óraði auðvitað ekki fyrir
því að fara út í framleiðslu á spritti
og tókum okkur örlitla stund til
að taka ákvörðun um að fara út á
þá syllu. En svo sáum við tæki-
færi með okkar eigið vörumerki,
Númer eitt, sem við skráðum í lok
síðasta árs og erum nú að þróa enn
stærri vörulínu undir því merki
sem mun líta dagsins ljós í haust,“
upplýsir Íris um eina af afar vin-
sælum vörum Mulier Fortis.
„Við komumst á snoðir
um heilsuvörur Mulier
Fortis eftir ýmsum
leiðum,“ segir Inga.
„Auðvitað leitum við
vítt og breitt en
samt sem áður
hafa vörumerkin
mörg hver komið
einhvern veginn
upp í hendurnar á
okkur. Við höfum
skýra sýn á hvað
við viljum bjóða
á markaði og það
gerir leitina ein-
faldari. Við höfum
að leiðarljósi
að bjóða ávallt
gæðavörur, sem
hreinastar og helst
af öllu umhverfis-
vænar.“
Draumur sem rættist
Slagorð Mulier Fortis er „Þín
heilsa – Okkar ástríða“.
„Við trúum því að fólk geti
gert svo margt fyrir sig og sína
heilsu. Lykillinn að því er að
hlúa vel að líkama og sál, hvort
sem það er að borða hollan
mat, taka inn góð bætiefni
eða anda að sér fersku lofti og
hreyfa sig. Hver og einn hefur
stjórn á sínu lífi og velur fyrir
sig. Ekki eru allir eins og því er
mikilvægt að velja sér heilsu-
Íris og Inga
stofnuðu
Mulier Fortis
á hárréttum
tímapunkti
fyrir báðar og
segjast hafa
vitað að heilsu-
markaðurinn
væri tilbúinn
fyrir þær. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/VALLI
Handspritt frá Númer eitt er
blandað ilmkjarna og hafþyrnisolíu.
Membrasin eru byltingarkenndar vörur fyrir konur sem
þjást af leggangaþurrki og þurrki í slímhúð og húð.
Gúmmíbangsarnir frá Vegums eru gómsætt vegan
bætiefni sem heldur allri fjölskyldunni sprækri.
Framhald af forsíðu ➛
vörur með eigin þarfir í huga,“
segir Inga sem er menntaður
næringarþerapisti og hefur starfað
sem ráðgjafi og fyrirlesari til fjölda
ára. Íris er menntuð í viðskipta- og
verkefnastjórnun, með MBA-gráðu
frá Háskóla Íslands.
Þær segjast hálf tjúllaðar af eftir-
væntingu og gleði yfir næsta kafla
lífs síns og því að vinna með heilsu
og vellíðan viðskiptavina sinna.
„Við erum ótrúlega sáttar og
hamingjusamar, þakklátar og
glaðar. Draumurinn er svo
sannarlega að rætast og þótt
það sé ekki alltaf draumur
í dós að stunda viðskipti
og hlaupa af sér rassgatið
fyrir sjálfan sig höfum við
mjög skýra stefnu og sýn
og reynum eftir fremsta
megni að halda okkur
á þeirri línu sem við
höfum skilgreint. Það er
kominn tími til að gera
eitthvað hrikalega
skemmtilegt með
öllum hinum og
huga að sjálfum
sér. Það drífur
okkur áfram að
skapa og búa til
eitthvað nýtt til
að svara eftir-
spurn þeirra sem
vilja hugsa vel
um heilsuna.
Tímarnir breytast
og mennirnir
með og við viljum
öll axla ábyrgð og
hlúa vel að hvert
öðru og veröld-
inni okkar,“ segir
Íris.
Upp á sitt allra besta núna
Þær Inga og Íris eru duglegar að
leggja rækt við eigin líkama og sál.
„Við höfum alltaf verið áhuga-
samar um heilsu og vellíðan. Það
hefur auðvitað gengið á ýmsu og
við tökumst á við alls konar, eins
og allir aðrir. Það er hins vegar
alltaf hægt að bæta sig og breyta
lífsstílnum og misjafnt eftir hverju
tímabili lífsins fyrir sig hvað
gengur upp og hentar hverjum og
einum,“ segir Inga.
Íris tekur í sama streng:
„Okkur líður allavega stórkost-
lega vel og erum jafnvel upp á
okkar allra besta akkúrat núna
enda er lífið dásamlegt eftir
fimmtugt. Við höfum lært að for-
gangsraða betur og höfum tekið
upp á því að stunda hreyfingu að
lágmarki þrisvar í viku hjá Gurrý í
Yama heilsurækt. Það er virkilega
hvetjandi enda teljum við einn af
lykilþáttum velgengni felast í að
huga vel að eigin líðan, fyrst og
fremst.“
Mulier Fortis er í mikilli upp-
sveiflu enda er vöruúrvalið
heillandi.
„Vörurnar eru ólíkar og ein-
stakar á sinn hátt. Þá eru ýmsar
hugmyndir á teikniborðinu hjá
Mulier Fortis, til dæmis fræðsla
af ýmsu tagi. Við höfum þörf fyrir
að vera í miklum samskiptum við
viðskiptavini okkar og reynum
eftir fremsta megni að hlusta á
þarfir þeirra. Við getum hrein-
lega ekki beðið eftir því að miðla
því sem við bæði kunnum og
getum, öðrum til heilsubótar og
hamingju,“ segja þær vinkonur,
fullar tilhlökkunar fyrir fram-
tíðinni.
Númer eitt fyrir hreinlæti
Númer eitt handsprittið er ein-
stakt og yndislegt því sítrónu-ilm-
kjarnaolía, lavender-ilmkjarna-
olía og haf þyrnisolía gefa því
dásamlega angan og mýkt sem
varnar þurrki á höndum.
„Nú megum við ekki hætta að
spritta okkur. Við erum ekki alveg
sloppin og megum ekki sofna á
verðinum. Það er alveg klárt að
við eigum eftir að kljást við alls
kyns kvef og f lensur í framtíðinni
og áhugavert að sjá á tímum
COVID-19 að fólk hefur veikst
minna af öðrum pestum en áður
og það má meðal annars þakka
almennum handþvotti og betra
hreinlæti,“ segir Inga.
Nú er unnið að heilsutengdri
vörulínu Númer eitt.
„Nýja línan kemur á markað í
haust og hefur verið einstaklega
skemmtilegt ferli að vinna að
þeim vörum sem verður ef laust
tekið jafn fagnandi og hand-
sprittið.“
Membrasin fyrir konur
Membrasin eru byltingarkenndar
vörur fyrir konur með legganga-
þurrk, þurrk í slímhúðum og húð.
„Aðalinnihaldsefnið er haf-
þyrnisolía sem er einstaklega nær-
andi og mýkjandi. Enn sem komið
er eru vörutegundirnar tvær;
krem fyrir leggöng og bætiefni til
inntöku. Membrasin er framleitt í
Finnlandi og við féllum gjörsam-
lega kyllif latar fyrir þeim,“ segir
Inga.
Nikura-ilmkjarnaolíur
„Við höfum báðar mikla reynslu af
notkun ilmkjarnaolía og duttum
niður á vörumerkið Nikura sem
uppfyllir allar okkar væntingar
um góðar ilmkjarnaolíur. Nikura
eru 100 prósent hreinar olíur á
frábæru verði og meðlimur í ATC
(Aromatherapy Trade Council)
í Bretlandi sem er mikill gæða-
stimpill,“ upplýsir Íris.
Þær Inga nota ilmkjarnaolíur
á marga vegu, til dæmis í sturtu-
sápuna, handsápuna, uppþvotta-
löginn og þvottavélina.
„Svo er dásamlegt að setja ilm-
kjarnaolíu í ilmolíulampa,“ segir
Inga. „Ilmkjarnar eru líka góðir
til að blanda í grunnolíu og bera
á húðina. Ilmkjarnaolíur geta
haft margvísleg áhrif á líðan og
tegundirnar hafa mismunandi
virkni. Á næstu dögum kemur ný
og spennandi vara á íslenskan
heilsuvörumarkað undir merki
Nikura en það er vara sem
margir kunna að fagna þegar hún
kemur.“
Vegums bætiefni
Bætiefnin frá Vegums eru einstök
og koma í formi gómsætra gúmmí-
bangsa sem halda allri fjölskyld-
unni sprækri.
„Vegums er hugsað fyrir alla, en
kannski sérstaklega þá sem borða
lítið sem ekkert af dýraafurðum.
Umbúðirnar eru umhverfisvænar,
ekkert plast og engin gervibragð-
efni eða litarefni í Vegums-böngs-
unum sem eru að sjálfsögðu
vegan,“ segir Íris.
Heilsuvörurnar frá Mulier Fortis
fást í apótekum, stórmörkuðum,
heilsuvöruverslunum og sérversl-
unum. Nánar á mulierfortis.is
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . J Ú N Í 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R