Fréttablaðið - 04.06.2020, Blaðsíða 36
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@
frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar
Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
VIÐ FENGUM GÓÐA
DÓMA Í ERLENDUM
MIÐLUM OG GESTIRNIR OKKAR
ELSKUÐU HÁTÍÐINA EN EKKI
SÍÐUR AKRANES.
Facade
Beton er
gæðamálning
fyrir stein
• Málningin er sterk og teygjanleg
• 100% akrýlmálning
• Gljástig 5
• Einstaklega þægileg í vinnslu,
fer vel í pensli, rúllu og sprautu
• Veðurþolin og hrindir frá óhreinindum
• Yfirborðið er öndunarvirkt, þannig
að vatnsgufa sem kemur að innan
á greiða leið út
• Hindrar myglu- og sveppagróður
Fyrir mér eru heimildar-myndir spegill á sam-félög, það er líka hægt að sýna manni mun ótrúlegri hluti í heim-ildarmynd heldur en
leikinni af því að það er eitthvert
sannleiks element í þeim sem fær
okkur til að trúa. Við leitumst við
að sýna heimildarmyndir þar sem
kvikmyndamiðilinn er notaður til
að segja sögur,“ segir Ingibjörg Hall-
dórsdóttir, framkvæmdastýra Ice-
Docs-heimildarmyndahátíðarinnar
sem fram fer helgina 15. til 19. júlí á
Akranesi.
Þetta er í annað sinn sem hátíðin
er haldin en fyrsta IceDocs-hátíðin
fór fram síðasta sumar.
„Fyrsta hátíðin gekk mjög vel og
hróður hennar hefur borist mjög
hratt í þessum hátíða-heimi. Við
fengum góða dóma í erlendum
miðlum og gestirnir okkar elskuðu
hátíðina en ekki síður Akranes.
Við vorum með samstarf við Kvik-
myndasafn sem við ætlum að halda
áfram í ár og sýndum yfir 50 heim-
ildarmyndir og héldum viðburði á
hverju kvöldi,“ segir Ingibjörg .
Að sögn Ingibjargar stendur stór
alþjóðlegur hópur að skipulagningu
hátíðarinnar.
„Hátíðin varð til eftir spjall okkar
Halls Árnasonar, sem stofnaði
hátíðina með mér. Við elskum bæði
heimildarmyndir og fannst að þær
mættu fá meira vægi í menningunni
og ákváðum að gera bara eitthvað
í því. Þegar ég fékk það í gegn að
svona hátíð ætti hvergi annars stað-
ar heima en á Akranesi þá fengum
við Heiðar Mar með okkur í lið og
við rekum hátíðina. Það er svo stór
hópur sem hefur hjálpað okkur með
verkefnið, alls staðar að úr heim-
inum,“ segir Ingibjörg.
Færri komast að en vilja
Leikkonan Steinunn Arinbjarnar-
dóttir er viðburðastýra hátíðar-
innar.
„Þetta er alveg ótrúlega skemmti-
legt verkefni. Ég sé að miklu leyti
um viðburði á hátíðinni. Í forgrunni
verða svo auðvitað myndirnar. Við
munum sýna heimildarmyndir
hvaðanæva úr heiminum. Þetta
er fjölbreytt og f lott úrval mynda
og það var mikil ásókn í að sýna
myndir á hátíðinni. Það var ótrú-
lega skemmtilegt og því þurftum
við að velja úr stórum hópi frábærra
mynda til að sýna,“ segir hún.
Steinunn segir að skipuleggj-
endur hátíðarinnar hafi vissulega
þurft að aðlaga hana breyttum
aðstæðum en að það hafi verið
gleðilegt að lendingin varð sú að
hátíð færi fram í ár.
„Við ákváðum að halda hátíðina.
Kvikmyndahátíðir um allan heim
hafa farið fram með breyttu sniði
og frjóar hugmyndir hafa fengið að
blómstra í þessum málum undan-
farið. Hátíðin er náttúrulega haldin
á Akranesi sem er alveg ofsalega
skemmtilegur staður. Ég held að það
sé algengt að fólk þekki ekki nógu
vel til bæjarins, þar sem hann er
aðeins út úr leið, maður keyrir ekki
í gegnum bæinn á leiðinni norður til
dæmis. En það svífur alveg ótrúlega
mikill sjarmi yfir bænum. Gamall
bær, falleg hús og margt að skoða.
Í sumar á fólk endilega að sækja
sem mest út á land og í sitt nærum-
hverfi,“ segir Steinunn.
Það sé því kjörið að skreppa upp
á Akranes í júlí og horfa á nokkrar
fræðandi, áhugaverðar og skemmti-
legar heimildarmyndir.
„Það er stutt að fara en svo allt
öðruvísi stemning. Bíóhöllin á
Akranesi er eitt fallegasta bíóhús
sem til er á landinu að mínu mati.
Svo erum við líka að nota alls konar
óhefðbundin rými fyrir aðra við-
burði. Svo erum við búin að bóka
alveg ótrúlega frábæra dagskrá,
uppistand og tónlistaratriði. En
við fylgjumst vel með ef einhverjar
frekari takmarkanir verða settar á
fjölda gesta,“ segir hún.
Klukkan 17.00 í dag hefst sér-
stakt upphitunarhóf fyrir hátíðina
á Hlemmi Square þar sem dagskrá
hennar verður kynnt.
steingerdur@frettabladid.is
Heimildarmyndahátíð
á Akranesi í sumar
Í kvöld er sérstakt upphitunarhóf á Hlemmi Square fyrir heimildar-
myndahátíðina IceDocs. Ingibjörg Halldórsdóttir er framkvæmda-
stýra hátíðarinnar og Steinunn Arinbjarnardóttir viðburðastýra.
Steinunn hvetur fólk til að sækja Akranes heim til að sjá
einstakar heimildarmyndir í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ingibjörg er framkvæmdastýra heimildarmyndahátíð-
arinnar og annar stofnenda hennar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
4 . J Ú N Í 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R28 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð