Víkurfréttir - 06.02.2020, Blaðsíða 22
22 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 6. febrúar 2020 // 6. tbl. // 41. árg.
Tveir nýir íþróttasalir í nýrri viðbygg-
ingu við íþróttahúsið í Grindavík
voru vígðir formlega á sunnudag.
Bjarni Már Svavarsson, formaður
Ungmennafélags Grindavíkur, segir
að nýju salirnir verði frábær viðbót
og muni gjörbreyta æfingaaðstöðu
félagsins. Félagið fagnar 85 ára afmæli
um þessar mundir.
Um er að ræða stóran keppnisvöll
fyrir körfubolta, alls 900 fermetra að
flatarmáli, og annan minni sal fyrir
aðrar greinar. Samtals er nýja viðbygg-
ingin rúmlega tvö þúsund fermetrar að
stærð. Framkvæmdir við hana hófust í
lok árs 2017. Verktaki var Grindin ehf.
Fannar Jónasson, bæjarstjóri, sagði
að mikil vinna hafi hvílt á starfs-
mönnum tæknideildar Grindavíkur-
bæjar og fleirum sem hann þakkaði
fyrir vel unnin störf.
„Grindvíkingar hafa síðustu viku
verið minntir á ofurkrafta náttúrunnar.
Á liðnum áratugum og árhundruðum
hafa Grindavíkingar þurft að standa
saman þegar á reynir. Samheldni fólks í
sjávarbyggðum eins og Grindavík hefur
verið mikil alla tíð. Það var nauðsynlegt
áður fyrr til að lifa af í harðri baráttu við
óblíða náttúru og veðurfar. Hér hefur
fólk stundum tekist á og látið skoðanir
sínar tæpitungulaust í ljós en þegar á
reynir standa íbúarnir saman sem einn
maður, styðja hvert annað og fagna líka
þegar vel árar,“ sagði bæjarstjóri meðal
annars í ávarpi sínu.
Við vígsluathöfnin var einnig undir-
ritaður samstarfssamningur við Janus
Guðlaugsson, doktor, um fjölþætta
heilsueflingu eldri borgara í Grindavík.
Í minni sal verður góð aðstaða fyrir aðrar greinar.
Nýtt íþróttahús í Grindavík
Fannar bæjarstjóri og Janus skrifuðu undir samning
um heilsueflingu í Grindavík.
Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Ungmennafélags Íslands,
afhenti formanni UMFG áritaðan skjöld frá UMFÍ. Hún sagði starf UMFG í
blóma og ný aðstaða myndi auðvelda starfið. VF-myndir/pket.
Einnig er fjallað um nýja íþróttahúsið í Suðurnesjamagasíni
fimmtudagskvöld kl. 20:30 á vf.is og á Hringbraut