Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.02.2020, Qupperneq 22

Víkurfréttir - 06.02.2020, Qupperneq 22
22 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 6. febrúar 2020 // 6. tbl. // 41. árg. Tveir nýir íþróttasalir í nýrri viðbygg- ingu við íþróttahúsið í Grindavík voru vígðir formlega á sunnudag. Bjarni Már Svavarsson, formaður Ungmennafélags Grindavíkur, segir að nýju salirnir verði frábær viðbót og muni gjörbreyta æfingaaðstöðu félagsins. Félagið fagnar 85 ára afmæli um þessar mundir. Um er að ræða stóran keppnisvöll fyrir körfubolta, alls 900 fermetra að flatarmáli, og annan minni sal fyrir aðrar greinar. Samtals er nýja viðbygg- ingin rúmlega tvö þúsund fermetrar að stærð. Framkvæmdir við hana hófust í lok árs 2017. Verktaki var Grindin ehf. Fannar Jónasson, bæjarstjóri, sagði að mikil vinna hafi hvílt á starfs- mönnum tæknideildar Grindavíkur- bæjar og fleirum sem hann þakkaði fyrir vel unnin störf. „Grindvíkingar hafa síðustu viku verið minntir á ofurkrafta náttúrunnar. Á liðnum áratugum og árhundruðum hafa Grindavíkingar þurft að standa saman þegar á reynir. Samheldni fólks í sjávarbyggðum eins og Grindavík hefur verið mikil alla tíð. Það var nauðsynlegt áður fyrr til að lifa af í harðri baráttu við óblíða náttúru og veðurfar. Hér hefur fólk stundum tekist á og látið skoðanir sínar tæpitungulaust í ljós en þegar á reynir standa íbúarnir saman sem einn maður, styðja hvert annað og fagna líka þegar vel árar,“ sagði bæjarstjóri meðal annars í ávarpi sínu. Við vígsluathöfnin var einnig undir- ritaður samstarfssamningur við Janus Guðlaugsson, doktor, um fjölþætta heilsueflingu eldri borgara í Grindavík. Í minni sal verður góð aðstaða fyrir aðrar greinar. Nýtt íþróttahús í Grindavík Fannar bæjarstjóri og Janus skrifuðu undir samning um heilsueflingu í Grindavík. Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Ungmennafélags Íslands, afhenti formanni UMFG áritaðan skjöld frá UMFÍ. Hún sagði starf UMFG í blóma og ný aðstaða myndi auðvelda starfið. VF-myndir/pket. Einnig er fjallað um nýja íþróttahúsið í Suðurnesjamagasíni fimmtudagskvöld kl. 20:30 á vf.is og á Hringbraut

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.