Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.02.2020, Qupperneq 4

Víkurfréttir - 27.02.2020, Qupperneq 4
4 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 27. febrúar 2020 // 9. tbl. // 41. árg. Leiga á húsnæði 100 m2 rými til leigu að Hafnargötu 61, á besta stað við Hafnargötu. Laust strax Áhugasamir hafið samband við: Þröst Ingvason sölustjóra Slippfélagsins throstur@slippfelagid.is Kristján Ásgeirsson kristjan@malning.is Ánægja í Suðurnesjabæ Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar lýsir ánægju með niðurstöður þjónustu- könnunar Gallup sem framkvæmd var í lok árs 2019 og í byrjun árs 2020 á meðal tuttugu stærstu sveitar- félaga landsins. Suðurnesjabær raðar sér með fremstu sveitarfélögunum og er í meðaltali eða yfir meðaltali í flestum þáttum sem mældir eru. Þá raðast Suðurnesjabær númer tvö í könnuninni þar sem ánægja með þjónustu grunnskóla er mæld og einnig þegar spurt er hvernig starfsfólk sveitarfélagsins leysir úr erindi eða erindum fólks. Suðurnesjabær raðast númer þrjú, með 4,3 stig af fimm, þar sem spurt er um hversu ánægt eða óánægt fólk er með sveitarfélagið sem stað til að búa á. Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að vinna áfram með niðurstöður með það að leiðarljósi að bæta þjónustu Suðurnesjabæjar. Fermingarkynning sunnudaginn 1. mars kl. 14 Hólagötu 17 Langanes vélarvana utan við Sandgerði Netabáturinn Langanes GK 525 varð vélarvana utan við Sandgerði á sunnudag. Björgunarskipið Hannes Þ. Haf- stein var kallað út og tók það Langanes í tog. Haldið var til Njarðvíkur þar sem gert var við bilunina, sem ekki var talin alvarleg. Hafnsögubáturinn Auðunn dró Langanes GK síðasta spölinn en Auðunn og Hannes Þ. Hafsein hjálpuðust svo að við að koma Langanesi GK að bryggju. Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar bátarnir komu í höfn um miðjan dag á sunnudag. VF-myndir: Hilmar Bragi Tilkynni grunsamlegar mannaferðir að næturlagi Lögreglustjórinn á Suðurnesjum biður íbúa í Reykjanesbæ að tilkynna til Neyðarlínunnar, í síma 112, eða í gegnum Facebook verði þeir varir við grun- samlegar mannaferðir að næturlagi. Er það vegna aðila sem hefur verið að fara inn í heimahús og bílskúra á svæðinu. „Íbúar eru sérstaklega hvattir til að læsa öllum hurðum, bifreiðum og geymslum. Ef fólk er með eftirlitsmyndavélakerfi við hús sín þá biðjum við ykkur endilega um að renna í gegn um efnið og kanna hvort að eitthvað sé þar að finna sem getur aðstoðað okkur við leitina,“ segir í tilkynningu frá lögreglustjóranum. Meðfylgjandi eru myndir af aðilanum sem náðust úr öryggismyndavélakerfi. Leikfélag Keflavíkur frumsýnir Benedikt búálf í Frumleikhúsinu Leikfélag Keflavíkur frumsýnir föstudaginn 28. febrúar fjölskylduleikritið Benedikt Búálf í leikstjórn Ingridar Jónsdóttur sem hefur komið víða við sem leikstjóri og leikkona. Að sögn Ingridar er leikhópurinn frábær. „Þetta er góð blanda af reyndu fólki og nokkrum sem eru að stíga sín fyrstu skref á leiksviðI, valin manneskja í hverju hlutverki.“ Æfingar hafa staðið yfir frá því eftir áramót en undir- búningur hófst í desember. Sýningin er ákaflega lífleg, flott dansatriði og geggjaðir búningar. Þá má ekki gleyma hljómsveitinni sem spilar stóran þátt í sýningunni. Þegar blaðamaður leit inn á æfingu í vikunni var verið að leggja lokahönd á sviðsmynda- og ljósavinnu sem umgjörð um þessa skemmtilegu sýningu. Þá er gaman að geta þess að Frumleikhúsið hefur heldur betur fengið upplyftingu þar sem búið er að parketleggja fremri salinn og taka gestasalernin í gegn. Það er óhætt að láta sig hlakka til að mæta í fallegt Frumleikhús með alla fjölskylduna og horfa á enn eina snilldaruppfærslu Leikfélags Keflavíkur. Allar nánari upplýsingar um sýningatíma má finna á Fésbókarsíðu Leikfélags Keflavíkur.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.