Íþróttablaðið - 01.03.1941, Síða 3
VI. árgangur
Reykjavík, marz 1941.
1.—2. tölublað.
Sundknattleiksmót
Reykjavíkur
Ármenningar urðu Reykjavíkurmeistarar.
Meistaramót í sundknattleik
fyrir Reykjavík hófst síðast i
janúar og lauk þann 7. febrúar.
Þátttakendur voru Ármann, K.R.
og Ægir (2 sveitir). Einstakir
leikir fóru sem hér segir:
Ægir (A) — K. R..... 9:0
Ármann — K. R....... 8:0
Ármann — Ægir (R) . . 10:1
Ægir (A) — Ægir (R) . . 9:1
Ægir (R) — K. R..... 3:2
Ármann — Ægir (A) .... 4:1
K.R. og Ægir (B) kepptu um 3.
sætið og vann B-lið Ægis með 3
nxörkum gegn 2. Þessi lið voru
nokkuð svipuð að styrkleika.
K.R. setti fyrsta markið, en Ægir
næstu 2. Hið síðara setti Magnús
B. Pálsson með fallegu skoti af
löngu færi. Pétur Jónsson (K.R.)
setti 4. markið einnig með prýði-
legu skoti, en Ægir setti hið 5.
og þar með úrslitamarkið. Bæði
liðin skorti samleik og' yfirleitt
var of mikið um samþyrpingu
leikmanna, en það er ekki sigur-
vænleg aðferð í sundknattleik
frekar en i knattspyrnu. Dómari
var Björgvin Magnússon.
Úrslitaleikurinn milli Ármanns
og A-liðs Ægis var ójafnari en
nxenn höfðu húizt við. Ármenn-
ingar sýndu töluverða vfirburði
og voru þeir sýnilega i betri æf-
ingu. Kom það bæði fram í meira
þoli og betri staðsetningu. Þrátt
fyrir það var leikurinn
skemmtilegur, og spenn-
andi á köflum. Eftir
fyrri hálfleik hafði Ár-
mann sett 2 mörk, en
Ægir ekkert. I síðari
hálfleik setti Ármann
einnig 2 mörk, en Ægir
1. Ármannsmörkin settu
þeir Guðm. Guðjónsson,
Gísli Jónsson, Magnús
Kristjánsson og' Stefán
Jónsson, en Jónas Hall-
dórsson skoraði markið
fyrir Ægi.
Ármannsliðið var
nokkuð jafnt og hafði
engan veikan punkt, en
lið Ægis var aftur á
móti „götótt“, t. d. var
markvörður þeirra ekki
nógu öruggur. Úr því að
ég minnist á markvörð,
vil ég geta þess, að Jón
Ingi (K.R.) er enn sem
fyrr langbezti markvörð
urinn, sem sést hér í sundknatt-
leik. — Dómari í úrslitaleiknum
var Jón Pálsson.
Ég gat þess, þegar ég' skrifaði
um sundknattleiksmótið hér í
hlaðið í fyrra, að það væri erfiít
verk og vanþakklátt að vera
sundknattleiksdómari. Það situr
því ekki á mér að koma með
miklar aðfinnslur út af dómum
Siindknattleiksflokkur Ármanns.
þessara tveggja manna, sem virð-
ast vera þeir einu, sem dæmt
geta sundknattleik hér í bænum.
En þó vildi ég mega segja þetta:
Björgvin er betri nú en í fyrra,
cn er þó ekki nógu nákvæmur
og tekur ekki nægilega strangt á
ólöglegum leik. Jón fannst mér
aftur á móti hetri i fyrra en nú.
Það, sem ég finn sérstaklega að