Íþróttablaðið - 01.03.1941, Page 15

Íþróttablaðið - 01.03.1941, Page 15
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ 13 „Inn milli fjallanna". Sunnudagurinn 9. febrúar var einn af hinum fáu skíðadögum Reykvíkinga á þessum vetri. - Veðrið var dásamlegt, sólskin, logn og hæfilegt frost. Ég lagði leið mína í Jósepsdal og lmgði að dveljast þar meðan sól væri á lofti. En er þangað kom, var snjóléttara en ég hafði ljúizt við. Botn dalsins var ísi lagður, en harðfenni í brekkum. Við, sem komum úr hænum þennan morg- un, bjuggumst við að hitta all- marga Ármenninga i skála sín- um, sem verið hefðu þar nætur- langt, en skálinn var mannlaus og Ármenningarnir auðvitað komnir upp á Bláfjöll. Þeim verður ekki skotaskuld úr því að komast á skíði, þó að dalur- inn „þeirra“ sé snjólaus. um. Og satt að segja undraðist ég dugnað sexmenninganna við að koma þessum skála upp, eftir að ég frétti að þeir hefðu orðið að bera lrann á bakinu að vísu ekki í heilu lagi — upp þetta skarð, sem mörgum okkar fannst nægilega erfitt, óklyfjuðum. Og þótt skálinn sé ekki stór hann er aðeins ætlaður sex manns til næturvistar, en getur þó rúmað mildu fleiri — þá hefir hann vafalaust kostað marga svita- dropa, og er Ijóst dæmi um ósér- plægni sumra íþróttamanna. En þeir félagar fá þetta erfiði á- byggilega endurgoldið í mörgum ánægjustundum, því að staður- inn, sem þeir liafa valið, hefir mikið aðdráttarafl fyrir skíða- menn. Skiðalandið allt umhverf- is skálann er hið ákjósanlegasta. Þar eru langar hrekkur og bratt- ar brekkur og yfirleitt brekkur við allra hæfi, — og snjór er þar nægilegur, þótt autt sé á láglend- inu. Sjálfur er skálinn hinn vist- legasti og byggður i áferðarfalleg- um fjallaskálastíl. Og nú býst ég við að einhvern langi til að vita hverjir þessir vösku Bláfjallasynir séu. Mér finnst það ekki nema eðlilegt og hefi því svarið á reiðum hönd- um: Sveinn Ólafsson, Skarpliéð- inn Jóhannsson, Egill Krist- björnsson, Bjarni Ágústsson, Hörður Þorgilsson og Eyjólfur Einarsson. Um leið og ég þakka þeim fyrir gestrisnina 9. fehrúar, óska ég þeim til liamingju með Blá- fjallaskálann sinn. Ikon. Eftir að við höfðum livílt okk- Ur um stund og fengið okkur kaff isopa, þrömmuðum við suð- ur dalinn og lögðum á hratt- ann. Nógur snjór var í skarðinu, sem notað var til uppgöngunn- ar, en flestum fannst það langt <>g gangan erfið. Eina bótin var, að við áttum eftir að fara það niður, og hvaða skíðamaður vinnur það ekki til að brjótast upp brekkurnar, til þess að bruna niður á eftir. Þegar upp úr skarðinu kom, lágu Bláfjöllin fram undan, snævi þakin og böðuð i hinni hækkandi febrúarsól. Skíðafær- ið var ágætt, nýfallinn snjór of- an á harðfenni. Við höfðum ekki gengið lengi, er við heyrðum glaða hlátra, hróp og köll. Hérna var það, sem dalbúarnir héldu sig. Og áður en okkur varði, vor- Um við komin að skiðaskála, sem fæst okkar höfðu séð áður. Skáli þessi var bvggður í kyrr- þev í sumar af sex Ármenning- 7 TÍana/jÁf/iýhtia&oti

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.