Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2020, Blaðsíða 29
Sérblað28. febrúar 2020 KYNNINGARBLAÐ
BÓSAL INNFLUTNINGUR:
Flytur inn hjólhýsi og
vörubíla og allt þar á milli
Bósal ehf. er mest í innflutningi á hjólhýsum, húsbílum, vörubílum, vinnuvélum, vinnubílum,
tengivögnum, rútum, fólksbílum,
raf- og hybridbílum, jeppum og raun
öllu í þessum geira. „Ég er í beinum
samskiptum við marga af helstu
framleiðendum og get boðið betri
verð en umboðin í mörgum tilfellum.
Til dæmis eru hjólhýsin frá mér um
700.000–1.400.000 krónum ódýrari
en hjá umboðunum. Í vörubílum og
lúxusbílum getur munað nokkrum
milljónum. Ég get pantað flestar gerðir
af nýjum MAN og Mercedes-Benz
vörubifreiðum sem og fólksbifreiðum,“
segir Bóas Eðvaldsson hjá Bósal.
Bóas hefur verið í bransanum í hátt
í 25 ár. „Ég bjó lengi í Danmörku og
Þýskalandi og kom heim 2009. Þá
höfum við kona mín búið á Seyðisfirði
og rekum þar einnig tvö gistiheimili,
Studioguesthouse og Nordmarina
guesthouse, svo að við höfum nóg
pláss fyrir gesti og viðskiptavini.“
„Til gamans má geta þess þar sem
að snjóar nánast daglega hér í vetur
þá verð ég að grobba mig aðeins að
MAN-vörubifreiðarnar 8×8, sem rutt
hafa einn erfiðasta fjallveg á landinu,
Fjarðarheiðina á milli Seyðisfjarðar
og Egilsstaða, með góðum árangri
í mörg ár eru sérpantaðir hjá okkur.
ÞS verktakar, Þröstur Stefánsson
var með bláan MAN sem mokaði
heiðina í um 10 ár og svo keypti Ylur
á Egilsstöðum, Sigþór Halldórsson,
nýjan MAN hjá mér í fyrravetur sem
ryður nú sinn annan vetur. Sá bíll er
rauður og sést ágætlega í snjónum
oftast nær. Ég sérpantaði einnig einn
öflugasta snjómoksturbíl landsins,
Mercedes-Benz 8×8, fyrir Haka í
Neskaupstað, Svein Einarsson, sem
ruddi Oddskarðið, milli Neskaupstaðar
og Eskifjarðar, í tíu ár. Oddskarðið er
mjög erfiður fjallvegur en sem betur
fer eru komin flott göng í dag sem
er bylting fyrir Norðfirðinga og fyrir
okkur Austfirðinga alla. Síðan hafa
farið snjóruðningsbílar frá okkur á
Vopnafjörð, Raufarhöfn, Akureyri,
Patreksfjörð, Hólmavík og víðar.“
Hjólhýsasumar 2020
Fólk er þegar byrjað að panta
hjólhýsi og húsbíla fyrir sumarið og
Bóas mælir með að það sé gert
fyrr en seinna til að fá þann búnað
sem fólk vill. „Ég get útvegað bíla og
hjólhýsi með stuttum fyrirvara, eða
allt að tveggja vikna fyrirvara, en þá
er um standard eða lagervöru að
ræða sem er oft á tíðum ekki með
þann búnað sem hentar íslenskum
aðstæðum 100%. Ég er mjög mikið
í því að sérpanta hjólhýsi og húsbíla
með aukabúnaði eins og betra
miðstöðvarkerfi, sterkari öxla og
stærri eða sterkari dekk og margt
fleira sem hentar betur fyrir íslenskar
aðstæður.
Burðargeta hjólhýsa er mjög
lítil í standard húsi og húsin oft
fulllestuð þegar gaskútar og annar
útilegubúnaður er komin í þau. Þar
af leiðandi getur verið meira um
sprungin dekk og önnur vandamál.
Það getur verið erfitt að fá hjólhýsi
af lager með þeim búnaði sem
Íslendingar vilja, enda að miklu leyti
framleidd fyrir lönd þar sem ekki
þarf að hugsa um vonda vegi eða
kulda á íslenskum sumarnóttum. Þá
er sjaldnast um að ræða 12 volta
rafgeymakerfi í húsum erlendis. Það
eru því þónokkur atriði sem þarf
að huga að við kaup og pöntun á
hjólhýsum og bílum.“
Fáðu afhent fyrir austan, sunnan
eða erlendis
Afhendingarmöguleikar á öllum
vörum frá Bósal eru mismunandi
eftir því sem hentar hverjum og
einum. „Ég get ýmist afhent fyrir
austan, sunnan, norðan eða vestan,
jafnvel erlendis ef það hentar frekar.
Margir af okkar viðskiptavinum byrja
sumarfríið hér fyrir austan. Einnig
hef ég afhent viðskiptavinum hjólhýsi
og bíla erlendis á númerum til að
byrja fríið þar og koma svo með
Norrænu heim. Ég reyni eftir bestu
getu að veita góða þjónustu og
flestir viðskiptavinir eru, að ég held,
afar sáttir.“
Nánari upplýsingar á vefsíðunni
bosal.is
Fylgstu með á facebook: Bósal
innflutningur
Bósal, Hafnargötu 28, 710
Seyðisfirði
Sími: 777-5007