Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.05.1968, Blaðsíða 13

Íþróttablaðið - 01.05.1968, Blaðsíða 13
Kurt Bendlin — og 8319 Ein óvæntasta íþróttafrétt ársins 1967 var fréttin um heimsmet í tugþraut, sem sett var í Heidelberg í Þýzkalandi dagana 13. og 14. maí. Rétt xun það bil, að keppnin var að hefjast utanhúss víðast hvar í álfunni, setti 24 ára gamall stúdent við Iþróttaháskólann í Köln stór- kostlegt heimsmet í einni erfiðustu keppnisgrein frjálsíþróttanna, sjálfri tugþrautinni. Til þess að ná meðaltalinu 832 stigum út úr 10 greinum dugar engin meðalmennska, enda sést það bezt á tölunum: 100 m hlaup: 10,6 sek., langstökk: 7,55 m, kúluvarp: 14,50 m, hástökk: 1,84 m, 400 m hlaup: 47,9 sek., llO m grindahlaup: 14,8 sek., kringlukast: 46,31 m, stangarstökk: 4,10 m, spjótkast: 74,85 m og 1500 m hlaup: 4:19,4 mín. Og hver er svo þessi ungi afreksmaður, sem sýndi þessa miklu fjölhæfni við hlaup, köst og stökk ? Hann heitir Kurt Bendlin og er fæddur í þorpinu Massort í Prússlandi, en flúði ungur að árum ásamt móður sinni og 6 systkinum vestur á bóginn. Faðir hans dó skömmu eftir, að hann var látinn laus úr 10 ára stríðsfanga- vist hjá Rússum, og það var því oft úr litlu að moða á hinu nýja heimili f jölskyldunnar í Malente í Slésvík-Holstein. Kurt varð því snemma að taka til höndum, og verzlunarnámi, sem hann hóf, gat hann aldrei lokið, því að hann varð að fara í byggingavinnu til þess að auka við hinar litlu tekjur f jölskyldunnar. En tilviljunin kom Kurt á þá braut, sem lá í áttina að því marki, sem hann náði í maí í fyrra, tugþrautarheimsmetinu. Þegar hann var við verzlunarnámið, kynntist hann Hans-Heinrieh Sievert, fyrrverandi heimsmethafa í tugþraut, og gamli maðurinn fyllti strákinn eldmóði. Sievert lifði það að sjá þennan unga mann fara 19 ára gamlan í fyrstu tugþraut sína, og sá gamli lýsti aðdáun sinni sterkum orðum, enda þótt árangurinn væri ekkert sérstaklega framúrskarandi, 5399 stig eftir stigatöflunni frá 1952. En Sievert gamli reyndist sannspár, þegar hann sagði, að „þessi drengur mundi ná langt.“ Kurt Bendlin vann sig jafnt og þétt upp á tindinn, en varð að þola bæði gleði og vonbrigði eins og aðrir íþróttamenn. Eitt er sameiginlegt öllum þýzku tugþrautar- mönnunum, sem lengst hafa náð á þjálfara- skeiði Friedels Schirmers. Þeir hafa orðið að leggja á sig meira erfiði en beztu menn í flest- um öðrum greinum, og oft hefur álagið orðið líkamanum um megn. Þannig hafa veikustu hlekkirnir í keðjunni Kurt Bendlin verið hnén, og í marzmánuði 1966 virtist keppnisferli hans lokið, því að þá varð hann að ganga undir upp- skurð á báðum hnjám. Margur hefði nú talið, að hann mætti vel við una, þótt ekki keppti hann oftar, því að árið 1965 hafði hann orðið Þýzkalandsmeistari með 7848 stigum og náð bezta árangri heims 1 fimmtarþraut með 4016 stigum (7,47—77,42— 21,8—44,53—4:43,7). En Kurt lét sér það ekki nægja, og aðeins 14 mánuðum eftir hina vandasömu skurðaðgerð, sem Schneider, frægur læknir í Köln, fram- kvæmdi, var Kurt Bendlin tilbúinn til keppni á nýjan leik, en þá voru liðnir 20 mánuðir frá 177

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.