Morgunblaðið - 15.02.2020, Side 2

Morgunblaðið - 15.02.2020, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2020 Stiklað er á stóru um aðdraganda stofnunar Hæstaréttar, auk þess sem fjallað er um athöfnina hinn 16. febrúar 1920, þegar fyrsta þinghald fór fram í Hæstarétti. 10 Merkisstund í sögu þjóðarinnar 15.02.2020 15 | 02 | 2020 HÆSTIRÉTTUR Í HUNDRAÐ ÁR Útgefandi Árvakur Umsjón Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Blaðamenn Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Auglýsingar Bylgja Björk Sigþórsdóttir bylgja@mbl.is Forsíðumyndina tók Eggert Jóhannesson af glugga í dómsal Hæstaréttar, en þar er vitnað í frásögn Brennu-Njálssögu. Kærar þakkir fá Hæstiréttur Íslands, Arnþór Gunnarsson sagnfræðingur og Gunnar G. Vigfússon, ljósmyndari. Prentun Landsprent ehf. Eftir Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, dómsmálaráðherra Í þjóðfrelsisbaráttu Íslendinga á 19. öld var ein krafan sú að æðsta dómsvaldið yrði flutt til landsins. Það var eðlileg og rök- rétt krafa. Sjálfstætt og óháð dómsvald er samofið kenningunni um þrískiptingu ríkis- valdsins sem var grundvöllur frelsishreyfinga á Vesturlöndum á tíma sjálfstæðisbarátt- unnar. Hæstiréttur Danmerkur fór með úr- slitavald í íslenskum málum allt til ársins 1920. Íslendingar bjuggu við þrjú dómstig fram að þeim tíma því niðurstöðum Landsyfirréttar mátti skjóta til endanlegs dóms í Kaupmanna- höfn Hæstiréttur Íslands var stofnaður á grund- velli sambandslaganna frá 1918 og er ein helsta táknmynd fullveldisins sem Íslendingar fengu á því ári. Þar kom efnislega fram að Hæstiréttur Danmerkur héldi stöðu sinni sem æðsti dómstóll í íslenskum dómsmálum uns Ís- lendingar tækju ákvörðun um að stofna eigin hæstarétt. Íslendingar biðu ekki boðanna. Frumvarp var lagt fram á Alþingi sumarið 1919 og það varð að lögum nr. 22/1919. Hæsti- réttur tók til starfa 16. febrúar 1920. Með lögunum um Hæstarétt Íslands urðu mikil kaflaskipti. Úrslitadómsvald í íslenskum málum var flutt til landsins; áfrýjunardóm- stóllinn, Landsyfirréttur, var lagður niður og ákveðið var að málflutningur fyrir hinum nýja dómstóli skyldi vera munnlegur. Þótt mikil samstaða væri um stofnun réttarins og menn litu á hann sem mikilsverðan áfanga í sjálf- stæðisbaráttunni var greinilegt af umræðum í fjölmiðlum á þeim tíma að ýmsir voru uggandi um stöðu hans og óttuðust að hann yrði mjög vanbúinn í samanburði við Hæstarétt Dan- merkur. Var ekki aðeins verið að bæta tveim- ur dómurum við þrjá dómara Landsyfirrétt- arins og breyta nafninu? Hinn mikilvægi varnagli, Hæstiréttur Danmerkur, yrði ekki lengur til staðar. Stærsti kostur hans væri fjarlægðin frá mönnum og flokkadráttum á Ís- landi. En, fjarlægðin var reyndar einnig stærsti ókosturinn við að hafa æðsta dómstól ís- lenskra mála í Kaupmannahöfn. Dómendur höfðu ekki vald á tungumálinu á dómskjöl- unum sem varð því að þýða yfir á dönsku. Þá voru samgöngur stirðar og gat komið fyrir að 5-6 ár liðu frá dómi Landsyfirréttar til end- anlegrar niðurstöðu Hæstaréttar. Staðreyndin var því sú að mjög fáum málum var í raun skotið til Danmerkur. Vissulega bjó Hæstiréttur Íslands lengi við erfið skilyrði. Dómurum var t.d. fækkað niður í þrjá í sparnaðarskyni aðeins örfáum árum eftir stofnun réttarins og þeir urðu ekki aftur fimm fyrr en tveimur áratugum síðar. Hat- rammar deilur hafa á stundum blossað upp um skipan dómara og um niðurstöður ein- stakra mála. En, Hæstiréttur hefur eigi að síð- ur áunnið sér álit og traust landsmanna og býr nú við hin ágætustu skilyrði. Enginn þarf að efast um sjálfstæði hans sem æðsta handhafa einnar af þremur greinum ríkisvaldsins. Þegar við fögnum 100 ára afmæli Hæsta- réttar Íslands hefur sú meginbreyting orðið á stöðu hans að dómstigin eru aftur orðin þrjú líkt og þau voru fyrir stofnun hans. Nýr áfrýj- unardómstóll, Landsréttur, tók til starfa fyrir tveimur árum. Með stofnun hans var Hæsta- rétti skapað svigrúm til að gegna hlutverki sem æðsti dómstóll þjóðarinnar. Í því felst að hann tekur til meðferðar mál þar sem mik- ilvæg og vandasöm lögfræðileg viðfangsefni eru til úrlausnar. Með stofnun Landsréttar var einnig brugðist við veikleika í íslensku dómskerfi er sneri að endurskoðun dóma á áfrýjunarstigi vegna meginreglunnar um beina og milliliðalausa sönnunarfærslu. Það voru ekki síst athugasemdir frá Mann- réttindadómstól Evrópu (MDE) sem leiddu til stofnunar Landsréttar. MDE hefur haft marg- vísleg og jákvæð áhrif á íslenskan rétt enda er hann stefnumarkandi við túlkun á ákvæðum mannréttindasáttmálans (MSE) sem hefur lagagildi hér á landi. Nefna má að það var fyr- ir áhrif MDE að fullur aðskilnaður varð loks á milli framkvæmdavalds og dómsvalds í héraði fyrir 30 árum. Áhrif dómsins hafa verið marg- vísleg síðan og enn lætur hann til sín taka. Fyrir efri deild dómsins er til meðferðar mál er varðar skipun dómara við Landsrétt. Mörg- um þykir sem neðri deild dómsins hafi hafnað niðurstöðu Hæstaréttar Íslands án fullnægj- andi rökstuðnings. Málinu var því skotið til efri deildar dómsins. Endanlegrar niðurstöðu er vonandi að vænta áður en langt um líður og hún verður tekin til skoðunar af íslenskum stjórnvöldum hver svo sem hún verður. Þótt margt hafi þróast til betri vegar í störf- um og starfsumhverfi Hæstaréttar á liðnum árum og áratugum verður ekki hjá því komist að nefna hve seint og illa hefur reynst að tryggja jafnræði kynjanna meðal dómara rétt- arins. Á 100 ára afmælinu eru aðeins 2 dóm- arar af 7 konur. Karlar voru áður mun fleiri en konur í hópi lögfræðinga. Sú staða hefur gjörbreyst. Konur eru nú mjög áberandi á meðal lögmanna, dómara og kennara í laga- deildum háskólanna. Vonandi kemur því til þess fyrr en síðar að jafnrétti kynjanna verði tryggt hvað varðar dómaraskipun við æðsta dómstól þjóðarinnar. Hæstiréttur Íslands er sem fyrr táknmynd fullveldis þjóðarinnar en það er ekki síður mikils um vert að hann sé táknmynd réttarör- yggis, frelsis og friðhelgi borgaranna. Hæstiréttur Íslands 100 ára Morgunblaðið/Hari Morgunblaðið ræddi við Markús Sigurbjörnsson, fyrrverandi forseta Hæstaréttar, í tilefni af hundrað ára afmælinu, og var farið yfir feril hans í dómnum, þar sem hann sat í rúmlega 25 ár og dæmdi í tæp- lega 5.000 málum. Forréttindi að fylgjast með samfélaginu af þessum stað 8 Þorgeir Örlygsson, forseti Hæsta- réttar, ræddi við Morgunblaðið um feril sinn og framtíð réttarins eftir að hann varð að fordæmisgefandi dómstól árið 2018. 4 Vilji almennings að búa vel að Hæstarétti Morgunblaðið fékk fjóra fulltrúa hinna ýmsu þátta lög- fræðinnar til þess að rita heillaóskir og afmælis- hugvekjur í tilefni af hundrað ára af- mæli Hæstaréttar. 12 Heillaóskir og ávörp til Hæstaréttar Guðrún Erlendsdóttir, fyrrverandi hæstarétt- ardómari, var fyrsta konan til að taka sæti sem dómari við Hæstarétt. Hún segir hina dóm- arana hafa tekið sig fljótt í sátt og að Hæsti- réttur verði áfram traust stoð samfélagsins. 6 Sáu fljótt að ekki var verra að fá skoðanir hins kynsins

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.