Morgunblaðið - 15.02.2020, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2020
Stiklað er á stóru um aðdraganda stofnunar Hæstaréttar,
auk þess sem fjallað er um athöfnina hinn 16. febrúar
1920, þegar fyrsta þinghald fór fram í Hæstarétti.
10
Merkisstund í sögu þjóðarinnar
15.02.2020
15 | 02 | 2020
HÆSTIRÉTTUR
Í HUNDRAÐ ÁR
Útgefandi
Árvakur
Umsjón
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Blaðamenn
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Auglýsingar
Bylgja Björk Sigþórsdóttir
bylgja@mbl.is
Forsíðumyndina tók Eggert
Jóhannesson af glugga í dómsal
Hæstaréttar, en þar er vitnað í
frásögn Brennu-Njálssögu.
Kærar þakkir fá Hæstiréttur
Íslands, Arnþór Gunnarsson
sagnfræðingur og Gunnar G.
Vigfússon, ljósmyndari.
Prentun
Landsprent ehf.
Eftir Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur,
dómsmálaráðherra
Í
þjóðfrelsisbaráttu Íslendinga á 19. öld var
ein krafan sú að æðsta dómsvaldið yrði
flutt til landsins. Það var eðlileg og rök-
rétt krafa. Sjálfstætt og óháð dómsvald er
samofið kenningunni um þrískiptingu ríkis-
valdsins sem var grundvöllur frelsishreyfinga
á Vesturlöndum á tíma sjálfstæðisbarátt-
unnar. Hæstiréttur Danmerkur fór með úr-
slitavald í íslenskum málum allt til ársins 1920.
Íslendingar bjuggu við þrjú dómstig fram að
þeim tíma því niðurstöðum Landsyfirréttar
mátti skjóta til endanlegs dóms í Kaupmanna-
höfn
Hæstiréttur Íslands var stofnaður á grund-
velli sambandslaganna frá 1918 og er ein
helsta táknmynd fullveldisins sem Íslendingar
fengu á því ári. Þar kom efnislega fram að
Hæstiréttur Danmerkur héldi stöðu sinni sem
æðsti dómstóll í íslenskum dómsmálum uns Ís-
lendingar tækju ákvörðun um að stofna eigin
hæstarétt. Íslendingar biðu ekki boðanna.
Frumvarp var lagt fram á Alþingi sumarið
1919 og það varð að lögum nr. 22/1919. Hæsti-
réttur tók til starfa 16. febrúar 1920.
Með lögunum um Hæstarétt Íslands urðu
mikil kaflaskipti. Úrslitadómsvald í íslenskum
málum var flutt til landsins; áfrýjunardóm-
stóllinn, Landsyfirréttur, var lagður niður og
ákveðið var að málflutningur fyrir hinum nýja
dómstóli skyldi vera munnlegur. Þótt mikil
samstaða væri um stofnun réttarins og menn
litu á hann sem mikilsverðan áfanga í sjálf-
stæðisbaráttunni var greinilegt af umræðum í
fjölmiðlum á þeim tíma að ýmsir voru uggandi
um stöðu hans og óttuðust að hann yrði mjög
vanbúinn í samanburði við Hæstarétt Dan-
merkur. Var ekki aðeins verið að bæta tveim-
ur dómurum við þrjá dómara Landsyfirrétt-
arins og breyta nafninu? Hinn mikilvægi
varnagli, Hæstiréttur Danmerkur, yrði ekki
lengur til staðar. Stærsti kostur hans væri
fjarlægðin frá mönnum og flokkadráttum á Ís-
landi.
En, fjarlægðin var reyndar einnig stærsti
ókosturinn við að hafa æðsta dómstól ís-
lenskra mála í Kaupmannahöfn. Dómendur
höfðu ekki vald á tungumálinu á dómskjöl-
unum sem varð því að þýða yfir á dönsku. Þá
voru samgöngur stirðar og gat komið fyrir að
5-6 ár liðu frá dómi Landsyfirréttar til end-
anlegrar niðurstöðu Hæstaréttar. Staðreyndin
var því sú að mjög fáum málum var í raun
skotið til Danmerkur.
Vissulega bjó Hæstiréttur Íslands lengi við
erfið skilyrði. Dómurum var t.d. fækkað niður
í þrjá í sparnaðarskyni aðeins örfáum árum
eftir stofnun réttarins og þeir urðu ekki aftur
fimm fyrr en tveimur áratugum síðar. Hat-
rammar deilur hafa á stundum blossað upp
um skipan dómara og um niðurstöður ein-
stakra mála. En, Hæstiréttur hefur eigi að síð-
ur áunnið sér álit og traust landsmanna og býr
nú við hin ágætustu skilyrði. Enginn þarf að
efast um sjálfstæði hans sem æðsta handhafa
einnar af þremur greinum ríkisvaldsins.
Þegar við fögnum 100 ára afmæli Hæsta-
réttar Íslands hefur sú meginbreyting orðið á
stöðu hans að dómstigin eru aftur orðin þrjú
líkt og þau voru fyrir stofnun hans. Nýr áfrýj-
unardómstóll, Landsréttur, tók til starfa fyrir
tveimur árum. Með stofnun hans var Hæsta-
rétti skapað svigrúm til að gegna hlutverki
sem æðsti dómstóll þjóðarinnar. Í því felst að
hann tekur til meðferðar mál þar sem mik-
ilvæg og vandasöm lögfræðileg viðfangsefni
eru til úrlausnar. Með stofnun Landsréttar
var einnig brugðist við veikleika í íslensku
dómskerfi er sneri að endurskoðun dóma á
áfrýjunarstigi vegna meginreglunnar um
beina og milliliðalausa sönnunarfærslu.
Það voru ekki síst athugasemdir frá Mann-
réttindadómstól Evrópu (MDE) sem leiddu til
stofnunar Landsréttar. MDE hefur haft marg-
vísleg og jákvæð áhrif á íslenskan rétt enda er
hann stefnumarkandi við túlkun á ákvæðum
mannréttindasáttmálans (MSE) sem hefur
lagagildi hér á landi. Nefna má að það var fyr-
ir áhrif MDE að fullur aðskilnaður varð loks á
milli framkvæmdavalds og dómsvalds í héraði
fyrir 30 árum. Áhrif dómsins hafa verið marg-
vísleg síðan og enn lætur hann til sín taka.
Fyrir efri deild dómsins er til meðferðar mál
er varðar skipun dómara við Landsrétt. Mörg-
um þykir sem neðri deild dómsins hafi hafnað
niðurstöðu Hæstaréttar Íslands án fullnægj-
andi rökstuðnings. Málinu var því skotið til
efri deildar dómsins. Endanlegrar niðurstöðu
er vonandi að vænta áður en langt um líður og
hún verður tekin til skoðunar af íslenskum
stjórnvöldum hver svo sem hún verður.
Þótt margt hafi þróast til betri vegar í störf-
um og starfsumhverfi Hæstaréttar á liðnum
árum og áratugum verður ekki hjá því komist
að nefna hve seint og illa hefur reynst að
tryggja jafnræði kynjanna meðal dómara rétt-
arins. Á 100 ára afmælinu eru aðeins 2 dóm-
arar af 7 konur. Karlar voru áður mun fleiri
en konur í hópi lögfræðinga. Sú staða hefur
gjörbreyst. Konur eru nú mjög áberandi á
meðal lögmanna, dómara og kennara í laga-
deildum háskólanna. Vonandi kemur því til
þess fyrr en síðar að jafnrétti kynjanna verði
tryggt hvað varðar dómaraskipun við æðsta
dómstól þjóðarinnar.
Hæstiréttur Íslands er sem fyrr táknmynd
fullveldis þjóðarinnar en það er ekki síður
mikils um vert að hann sé táknmynd réttarör-
yggis, frelsis og friðhelgi borgaranna.
Hæstiréttur Íslands 100 ára
Morgunblaðið/Hari
Morgunblaðið ræddi við
Markús Sigurbjörnsson,
fyrrverandi forseta
Hæstaréttar, í tilefni af
hundrað ára afmælinu,
og var farið yfir feril
hans í dómnum, þar
sem hann sat í rúmlega
25 ár og dæmdi í tæp-
lega 5.000 málum.
Forréttindi að
fylgjast með
samfélaginu af
þessum stað
8
Þorgeir Örlygsson, forseti Hæsta-
réttar, ræddi við Morgunblaðið um
feril sinn og framtíð réttarins eftir
að hann varð að fordæmisgefandi
dómstól árið 2018.
4
Vilji almennings að
búa vel að Hæstarétti
Morgunblaðið fékk
fjóra fulltrúa hinna
ýmsu þátta lög-
fræðinnar til þess
að rita heillaóskir
og afmælis-
hugvekjur í tilefni
af hundrað ára af-
mæli Hæstaréttar.
12
Heillaóskir
og ávörp til
Hæstaréttar
Guðrún Erlendsdóttir, fyrrverandi hæstarétt-
ardómari, var fyrsta konan til að taka sæti sem
dómari við Hæstarétt. Hún segir hina dóm-
arana hafa tekið sig fljótt í sátt og að Hæsti-
réttur verði áfram traust stoð samfélagsins.
6
Sáu fljótt að ekki var verra
að fá skoðanir hins kynsins