Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2020, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.2. 2020
08.00 Strumparnir
08.25 Blíða og Blær
08.45 Stóri og Litli
08.55 Dóra og vinir
09.20 Skoppa og Skrítla á
póstkorti um Ísland
09.35 Dagur Diðrik
10.00 Mæja býfluga
10.10 Latibær
10.35 Zigby
10.45 Lína langsokkur
11.10 Ævintýri Tinna
11.35 Lukku láki
12.00 Nágrannar
13.45 The Dog House
14.35 Ultimate Veg Jamie
15.10 You, Me & Fertility
16.00 American Woman
16.25 Heimsókn
16.53 60 Minutes
17.41 Víglínan
18.26 Veður
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.55 Sportpakkinn
19.10 Trans börn
19.55 McMillions
20.50 Silent Witness
21.50 The Sinner
22.35 Prodigal Son
23.20 The Outsider
00.10 Springfloden
ÚTVARP OG SJÓNVARP
Sjónvarp Símans
RÚV
Rás 1 92,4 93,5 Omega
N4
Stöð 2
Hringbraut
18.00 Að Norðan
18.30 Meira en fiskur
19.00 Eitt og annað af bílum
19.30 Þegar
20.00 Eitt og annað úr Eyja-
firði
20.30 Eitt og annað af bílum
Endurt. allan sólarhr.
18.30 Ísrael í dag
19.30 Jesús Kristur er svarið
20.00 Omega
21.00 Tónlist
22.30 Gegnumbrot
23.30 Tónlist
24.00 Joyce Meyer
20.00 Heilsugæslan (e)
20.30 Heyrnin (e)
21.00 Kíkt í skúrinn (e)
21.30 Bókahornið (e)
22.00 Heilsugæslan (e)
22.30 Heyrnin (e)
23.00 Kíkt í skúrinn (e)
12.00 Everybody Loves Ray-
mond
12.20 The King of Queens
12.40 How I Met Your Mother
13.05 A Million Little Things
13.50 The Good Place
14.15 The Bachelor
14.15 For the People
16.15 Malcolm in the Middle
16.35 Everybody Loves Ray-
mond
17.00 The King of Queens
17.20 How I Met Your Mother
17.45 Solsidan
18.10 Amazing Hotels: Life
Beyond the Lobby
19.05 Pabbi skoðar heiminn
19.40 A.P. BIO
20.10 This Is Us
21.00 Law and Order: Special
Victims Unit
21.50 Wisting
22.35 Love Island
23.20 Perpetual Grace LTD
00.15 The Handmaid’s Tale
01.05 The Capture
01.50 Blue Bloods
06.55 Morgunbæn og orð
dagsins.
07.00 Fréttir.
07.03 Tríó.
08.00 Morgunfréttir.
08.05 Á tónsviðinu.
09.00 Fréttir.
09.03 Samtal.
10.00 Fréttir.
10.05 Veðurfregnir.
10.15 Bók vikunnar.
11.00 Guðsþjónusta í Guðríð-
arkirkju.
12.00 Hádegisútvarp.
12.20 Hádegisfréttir.
12.40 Veðurfregnir.
13.00 Sögur af landi.
14.00 Víðsjá.
15.00 Glans.
16.00 Síðdegisfréttir.
16.05 Úr tónlistarlífinu.
17.25 Orð af orði.
18.00 Kvöldfréttir.
18.10 Íslenska mannflóran.
18.50 Veðurfregnir.
18.53 Dánarfregnir.
19.00 Óskastundin.
19.40 Orð um bækur.
20.35 Gestaboð.
21.30 Fólk og fræði.
22.00 Fréttir.
22.05 Veðurfregnir.
22.10 Á reki með KK.
23.10 Frjálsar hendur.
24.00 Fréttir.
00.05 Næturútvarp Rásar 1.
07.15 KrakkaRÚV
08.50 Disneystundin
08.51 Dóta læknir
09.14 Sígildar teiknimyndir
09.21 Músahús Mikka – 5.
þáttur
09.45 Krakkafréttir vikunnar
10.05 Heimssýn barna
11.00 Silfrið
12.10 Lestarklefinn
13.05 Menningin – samatekt
13.35 #12 stig
13.55 Söngvakeppnin 2020
15.00 Söngvakeppnin í 30 ár
15.55 Okkar maður – Ómar
Ragnarsson
16.55 Joanna Lumley í Japan
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 KrakkaRÚV
18.01 Stundin okkar
18.25 Innlit til arkitekta
19.00 Fréttir
19.30 Veður
19.40 Íþróttir á sunnudegi
20.00 Landinn
20.30 Hljómskálinn
21.05 Brot
21.55 Smámyndasmiðurinn
22.50 Laugardagsfár: Besta
diskómyndin
24.00 Rauði dregillinn
01.00 Óskarsverðlaunahátíðin
2020
14 til 16 Tónlistinn Topp40
Eini opinberi vinsældalisti Íslands er sendur út á
K100 alla sunnudaga. Siggi Gunnars telur niður 40
vinsælustu lög landsins.
16 til 19 Pétur Guðjóns
Pétur Guðjónsson hækkar í gleðinni og fylgir hlust-
endum K100 síðustu metrana í fríi helgarinnar síð-
degis á sunnudögum. Góð tónlist og létt spjall á
K100.
Mikil gleði og
hamingja ríkti hjá
starfsmönnum
bráða-
móttökunnar
sem fengu á
föstudaginn af-
hentar öskjur
fullar af ham-
ingjuvörum og
þakkir fyrir vel unnin störf undir miklu álagi frá Ísland
vaknar, morgunþætti K100.
„Við erum ótrúlegur hópur sem vinnum hérna. Við
erum ótrúlega flott og lausnamiðuð og bíðum bara
eftir því að einhver komi og bjargi þessu ástandi,“
sagði Ragna Gústafsdóttir deildarstjóri á bráða-
móttökunni og ein þeirra sem tóku við verðlaununum.
„Ég á ekki til orð. Okkur hlýnar um hjartarætur að
fólk skuli hugsa svona fallega til okkar. Þetta er alveg
ótrúlegt,“ sagði hún og þakkaði kærlega fyrir hlýhug í
garð starfsmanna.
Mikil gleði og hamingja
París. AFP. | Hópur manna, sem
gefið er að sök að hafa svikið tug-
milljónir evra út úr frægu fólki og
auðugu með því að þykjast vera ráð-
herra, fór fyrir dóm í París á þriðju-
dag. Notuðu mennirnir Skype og síli-
kongrímu til að villa á sér heimildir.
Svikahrapparnir þóttust vera
Jean-Yves Le Drian, sem þá var
varnarmálaráðherra Frakklands, en
er nú utanríkisráðherra. Meðal fórn-
arlambanna var auðmaðurinn Aga
Khan, sem er andlegur leiðtogi is-
maili-múslima, greinar af meiði sjíta.
Véluðu þeir hann til að láta 20 millj-
ónir evra (2,7 milljarða króna) af
hendi rakna.
Flókinn lygavefur
Svindlið hófst árið 2015. Eftirherman
hringdi myndsímtal til rúmlega 150
manna, meðal annars í leit að fé til að
fjármagna „leynilega aðgerð“ – ým-
ist lausnargjald eða aðgerðir gegn
hryðjuverkamönnum – með loforði
um endurgreiðslu frá franska ríkinu.
Þrír einstaklingar létu blekkjast.
„Ég vona að réttlætið nái fram að
ganga og tryggja að þessir glæpa-
menn fái makleg málagjöld,“ sagði
hinn raunverulegi Le Drian við
franska fjölmiðla áður en réttar-
höldin hófust og bætti við að sér of-
byði meint misnotkun á nafni sínu.
Tveir fransk-ísraelskir menn, Gil-
bert Chikli (54 ára) og Anthony
Lasarevitsch (35 ára), eru taldir hafa
skipulagt svindlið. Árið 2015 dæmdi
franskur dómstóll Chikli í sjö ára
fangelsi að honum fjarverandi fyrir
svipað svindl 2005 og 2006. Þá sveik
hann milljónir evra út úr frönskum
bönkum og fyrirtækjum. Þóttist
hann ýmist vera yfirmaður þeirra,
sem hann hringdi í, eða njósnari.
Í þeim réttarhöldum var fyrrver-
andi stjórnandi í bankanum Credit
Lyonnais spurð hvernig Chikli hefði
farið að því að fá hana til að afhenda
gerókunnugum manni eina milljón
evra á salerni í bar í París.
Fyrst hefði maður, sem kynnti sig
sem forseta Credit Lyonnais, hringt í
hana og sagt henni að leyniþjón-
ustumaður myndi hafa samband og
hún ætti að hlýða öllum hans fyrir-
mælum.
Njósnarinn hefði útskýrt að hann
væri að vinna að máli, sem snerist
um peningaþvætti og hryðjuverk og
hún ætti að yfirfæra féð á sig til þess
að brjóta glæpahring á bak aftur.
Konan sagðist hafa verið undir
þrýstingi í vinnunni og ekki viljað
misstíga sig.
Einstaklega mjúkmáll
Alls tókst Chikli þá að svíkja út 60,5
milljónir evra (8,4 milljarða króna).
Tókst að endurheimta 52,6 milljónir
evra (7,3 milljarða króna). Hann
sagði í viðtali við franska sjónvarpið
árið 2010 að hann væri ekki glæpa-
maður og fléttur hans væru leikur.
Sumir væru mjúkmálir og aðrir ekki
og hann hefði með sínum einstaka
hæfileika náð í háar fjárhæðir.
Chikli var handtekinn ásamt Las-
arevitsch í Úkraínu árið 2017. Á sím-
um þeirra fundust myndir af sílikon-
grímu af Alberti II. Mónakóprinsi,
sem benti til að nýtt svindl væri í
undirbúningi.
Alls eru sjö manns ákærðir í mál-
inu. Aga Khan mun hafa millifært 20
milljónir evra til Póllands og Kína.
Þrjár millifærslur voru frystar, en
ein hvarf upp á 7,7 milljónir evra
(einn milljarð króna).
Nokkru síðar var tyrkneski við-
skiptajöfurinn Inan Kirac narraður
til að millifæra 42 milljónir evra (5,8
milljarða króna) til að borga lausn-
argjald að því er honum var talin trú
um fyrir tvo blaðamenn í gíslingu í
Sýrlandi.
Meðal annarra reyndu þeir einnig
að hafa fé út úr Ali Bongo, forseta
Gabon, og erkibiskupinum í París, en
án árangurs.
Chikli og Lasarevitsch neita ásök-
ununum. Árið 2015 var gerð bíó-
mynd, Je Compte Sur Vous (Ég
treysti á þig), byggð á svindli Chiklis.
Teikning af Anthony Lasaravitsch og Gilbert Chikli úr réttarsal. Þeir þóttust
vera einn af ráðherrunum úr frönsku ríkisstjórninni til að svíkja út fé.
AFP
ÞÓTTIST VERA RÁÐHERRA OG SVEIK ÚT STÓRFÉ
Mjúkmáll loddari
fyrir dómstólum
Hrapparnir sviku féð út í nafni Jean-
Yves Le Drian utanríkisráðherra.
AFP