Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.02.2020, Síða 2
Hvað er að frétta?
Allt gott! Við erum að
fara aftur að stað með
sýninguna Konur og Krín-
ólín sem var sýnt í Iðnó fyrir
nokkrum árum en verður nú í
Þjóðleikhúskjallaranum.
Hvaða sýning er þetta?
Við erum þarna hópur kvenna yfir fimmtugu úr leiklist-
inni sem rekjum söguna á tískusýningarpalli á einum
klukkutíma, aldir aftur í tímann. Helga Björnsson, fræg-
ur hönnuður frá París, kom til liðs við okkur. Hún er með
töfrafingur og á ótrúlegt safn af ofboðslega fallegum föt-
um, meðal annars krínólínkjóla.
Hvað er krínólín?
Það er svona grind sem er sett undir kjóla og þeir verða
eins og rjómatertur; ekki hægt að setjast í þessu. Virki-
legur pyntingarklæðnaður!
Þannig að þið eruð á sviðinu að tala um
hversu óþægilegt er að vera í þessu?
Já, nákvæmlega! Og það er fjörug músík, grín og tískusýning,
innan gæsalappa. Ég er elementið sem er að útskýra málið og
er í Hagkaupssloppnum.
Færð þú ekki að vera í krínólíni?
Nei! Og ég tek einmitt agnarlítið fýlukast í sýningunni út af því.
Ég fæ ekki að vera á pöllunum. Við förum í gegnum tískuna og
endum á níunda áratugnum því við erum allar sammála að eftir
það hafi ekkert gerst í tískunni. Við köllum þetta sko tískugjörn-
ing.
Er uppselt?
Já, það er uppselt á fyrstu þrjár helgarnar en við erum að
bæta aukasýningum við!
EDDA BJÖRGVINSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.2. 2020
Hvernig líst þér á þína menn? Heldurðu að þeir fari alla leið?“Hversu oft ætli ég hafi fengið þessa spurningu undanfarnar tværvikur. Til að eyða strax öllum misskilningi eru menn ekki að tala um
körfuboltalið Los Angeles Lakers (það er eina liðið sem ég held með sem hef-
ur getað eitthvað í vetur). Nei, menn eru að spyrja um íslenska bárujárns-
bandið Dimmu sem tók upp á þeim ósköpum að skrá sig til leiks í undan-
keppni Evrópumeistaramótsins í búningahönnun, lýsingu og sviðsframkomu
sem fram fer í Hollandi í vor. Þið megið alveg kalla það Júróvisjón.
Spurningin lýsir dæmalausri fá-
fræði. Menn vita að ég er málmhaus
inn að beini og gefa sér fyrir vikið að
ég haldi upp á Dimmu. Málmur sé
bara málmur. Svo einfalt er það hins
vegar ekki. Að kalla Dimmu mína
menn er svolítið eins og að óska
aðdáanda Duran Duran til hamingju
með nýju Wham-plötuna. Bara af
því að hann er með sítt að aftan.
Hygg að því yrði ekkert allt of vel
tekið, allra síst í Bolungarvík.
Fyrir þá sem ekki eru í poppinu
skulum við taka annað dæmi. Það
bregst ekki þegar KA tekur upp á
því að vinna til verðlauna að mér er
óskað innilega til hamingju hér syðra. Bara af því að ég er Akureyringur.
Sem grjóthörðum Þórsara eru allir sigrar KA mér á hinn bóginn ákaflega
þungbærir. Capiche?
Nú hef ég ekkert á móti Dimmu; sveitin hefur á að skipa svölum gaurum
og músíkölskum. Einu sinni var ég í jarðarför, þar sem Stefán Jakobsson
söng og gerði það af miklu listfengi. Allur sá flutningur var í raun mjög
áhrifamikill. Frábær söngvari, Stefán. Tónlist Dimmu fellur á hinn bóginn
ekki að mínum smekk. Mjúkmálmur af þessu tagi á ekki nægilega mikið er-
indi árið 2020. Því miður. Hefði gert sig betur fyrir þrjátíu árum eða svo.
Vildum við breiða út íslenska málmmenningu um álfuna hefði verið nær að
tefla fram böndum á borð við Une Misère, Auðn, Kontinuum eða Misþyrm-
ingu, svo dæmi sé tekið. Þær eru mun framsæknari og skipta meira máli í
heildarsamhenginu. Sé þó enga þeirra ljá máls á slíkum gjörningi.
Upp á árangur í Hollandi hefði þó líklega verið best að dusta rykið af
Drýsli; sem gerði garðinn frægan í Dynheimum og víðar á níunda áratug síð-
ustu aldar. Fyrir því ágæta bandi fór enginn annar en goðsögnin úr Júró-
heimum, Eiríkur Hauksson. „Eurovision Nation“ eins og Sylvía Nótt kallaði
hjörðina hefði án efa tekið honum með kostum og kynjum. Í enn eitt skiptið.
Sendum Drýsil
í Dimmustað
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’ Að kalla Dimmumína menn er svolítiðeins og að óska aðdáandaDuran Duran til
hamingju með nýju
Wham-plötuna.
Sigurveig Þrastardóttir
Ég held með honum Daða.
SPURNING
DAGSINS
Hver fer í
Eurovison
fyrir
Íslands
hönd?
Markús Karlsson
Daði. Ég held með honum.
Auður Sara Þrastardóttir
Guð, ég hef ekki heyrt nein lög!
Karl Jóhann Bridde
Gagnamagnið. Þau hefðu átt að
komast síðast.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri og
umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Ásdís Ásgeirsdóttir
Konur og Krínólín er
sýnt í Þjóðleikhús-
kjallaranum um
helgina og um næstu
helgi. Konur streyma
fram í klæðum mis-
munandi tímabila og
eru í gleðikasti.
Miðar fást á tix.is.
Tísku-
gjörningur
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is
skotbómulyftara
AG línan frá Manitou býður meðal
annars upp á nýtt ökumannshús
með góðu aðgengi og útsýni.
HANNAÐUR TIL AÐ
VINNA VERKIN
NÝ KYNSLÓÐ
• DSB stjórntakkar
• JSM stýripinni í fjaðrandi armi
• Stýrð stjórnun og hraði á
öllum glussahreyfingum
• Virk dempun á bómu
SÍGILDIR SUNNUDAGAR
KLASSÍSK TÓNLEIKARÖÐ
Svítur og valsar
úr austri og vestri
Tríó Sírajón
23. febrúar kl. 16
Nánar á harpa.is/sigildir