Hreyfing - 01.06.1993, Side 1
Ljósmyndarinn - Jóh. Long.
ÁRANGURSRÍK
HEILSUVIKA
amtökin ÍFA stóðu fyrir heilsuviku dagana 20.-26.
maí sl. Góð þátttaka var víða um land. Hér skulu
nefnd dæmi um vel heppnaðar aðgerðir þessa
viku.
Efnt var til 200 metra sundkeppni um land allt, Lands-
bankahlaups og afmælismóts Fimleikasambands ís-
lands í Laugardalshöll. Þá kynntu margar Iíkamsræktir
starfsemi sína og göngudagur fjölskyldunnar var hald-
inn í samstarfi við Ferðafélag íslands. Einnig kynnti
Badmintonsambandið sína íþrótt í TBR húsinu.
Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra efndi til leikja á
gervigrasinu í Laugardal og sundleikfimi í Sundhöllinni.
Hvort tveggja tókst mjög vel. Þá má nefna hjóladag í
Laugardal, trimmhópar kynntu sína starfsemi og í
Kringlunni var margt að gerast þessa viku. Heilsuvikan
endaði svo á Hversdagsleikum miðvikudaginn 26. maí
þar sem Reykjavíkurborg keppti við Nithsdale í
Skotlandi og Akureyri við ísraelsku borgina Asqelon.
Keppnin gekk út á það að fá hlutfallslega flesta íbúa til
að taka þátt í skipulögðum aðgerðum dagsins.
KVENNAH LÁUP19. JÚNÍ
þróttasamband ís-
lands og ÍÞRÓTTIR
FYRIR ALLA halda ár-
legt Kvennahlaup 19. júní
nk. Er búið að skipuleggja
hlaup á yfir 50 stöðum víðs
vegar um landið. Þessi um-
fangsmikla aðgerð er mögu-
leg að þessu sinni vegna
myndarlegs framlags Sjóvá-Al-
mennra, en fyrirtækið stendur
straum af meginhluta kostnað-
ar vegna hlaupsins.
Á síðasta ári var slegið met hvað
þátttöku varðar og er vonandi að
Hlaupið verður á yfir 50 stöðum víöa um
land. Takmarkið er að 10.000 konur taki
þátt í hlaupinu!
það met verði slegið í ár. Þá var
hlaupið á 17 stöðum á landinu
og tóku um 7.000 konur þátt
í hlaupinu. Nú er takmarkið
að 10.000 konur gangi,
skokki eða hlaupi og eru all-
ar konur hvattar til þátttöku.
Umbótanefnd ÍSÍ í kvenna-
íþróttum, í samvinnu við ýmis
sérsambönd ÍSÍ, verður með
íþróttadaga 17.-27. júní, tileinkaða
kvennaíþróttum. Markmið þeirra er
að vekja athygli á íþróttaiðkun
kvenna og að fá fleiri konur til að
taka þátt í íþróttum.
Þessir fyrirtæki
eru aðal styrktar-
aðilar ÍFA
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
SJÓVÁ-ALMENNAR
Skeljungur hf.