Hreyfing - 01.06.1993, Síða 2

Hreyfing - 01.06.1993, Síða 2
Samtökin voru stofnuð 24. maí 1992 að tilstuðlan íþróttasambands Is- lands. Markmið þeirra er að virkja til samstarfs, auk sambandsaðila ÍSÍ, sem flest samtök, stofnanir, fyrir- tæki, starfshópa og einstaklinga er láta sig varða hollustu og heilbirgði. Samtökin bjóða félögum sínum upp á afslátt í viðskiptum við ýmsa aðila, m.a. sportvörubúðir, líkamsræktar- stöðvar, íþróttahús, dansstaði og sjúkraþjálfara. Samtökin ÍÞRÓTTIR FYRIR ALLA standa reglulega fyrir fjöldasamkom- um, t.d. göngudögum, fyrirtækja- keppnum, heilsuvikum, æfinga- hlaupum, fjölskyldugöngum o.s.frv. Árgjaldið í ÍFA er 1000 kr. fyrir einstakling, 800 kr. á mann fyrir 3- 10 manna hópa og 600 kr. á mann fyrir 11 -50 manna hópa. Allar nán- ari upplýsingar um aðild að samtök- unum gefa starfsmenn á skrifstofu. I stjórn IFA eru: Sigrún Stefánsdóttir, formaður, Ragn- ar Tómasson, Edda Hermannsdóttir, Hilmar Bjömsson og Ómar Einarsson. Varastjórn skipa: Ólafur Þorsteinsson, Guðmundur Sigurðsson, Unnur Stef- ánsdóttir, Óttar Guðmundsson og Ragna Lára Ragnarsdóttir. Starfsmenn ÍÞRÓTTA FYRIR ALLA eru Kristján Þór Harðarson, fram- kvæmdastjóri, Anna Gísladóttir og Helga Guðmundsdóttir. Skrifstofa samtakanna er til húsa í íþróttamið- stöðinni í Laugardal og er opin alla virka daga frá kl. 08:00 til 17:00. Síminn er 91 -813377 og bréfsími 91 - 38910. ý^HREYFINd Útgefandi: Samtökin ÍÞRÓTTIR FYRIR ALLA Póstfang: íþróttamiðstööin í Laugardal, 104, Reykjavík. Ritstjóri: Kristján Þór Harðarson, ábm. Umbrot: Rita hf. Prentun: Prentsmiðja Frjálsrar fjölmiðlunar hf. Umsjón: Athygli hf, Brautarholti 8, sími 623277. Dr. Sigrún Stefánsdóttir, formaður ÍFA: VIO EICUM AÐEINS EINN LÍKAMA Fyrsta fréttabréf landssamtakanna ÍÞRÓTTIR FYRIR ALLA sér nú dags- ins ljós. Samtökin voru stofnuð vorið 1992 og eru þau þegar komin í röð stærstu eininga innan íþróttasambands íslands. Aðalstyrktaraðil- ar ÍFA eru Sjóvá-Almennar, Olíufélagið Skeljungur og Landsbanki íslands. Stuðningur þessara aðila hefur verið ómetanlegur við að hrinda starfsemi samtakanna af stað. Alþingi hefur samþykkt heilbrigðis- áætlun sem gildir fram til ársins 2000. Þar segir að efla þurfi að- stöðu almennings til íþróttaiðkana með því m.a að byggja ný íþrótta- hús og leggja sérstakar gangbrautir í þéttbýli. Hvort tveggja fellur full- komlega að markmiðum samtak- anna ÍÞRÓTTIR FYRIR ALLA og munu þau beita sér fyrir því að þeim verði náð sem allra fyrst. Á undanförnum árum hefur orðið hugarfarsbreyting meðal almenn- ings á íslandi. Þeir, sem hlaupa um göturnar eru ekki lengur álitnir furðufuglar. Þess í stað eru þeir Iitn- ir öfundaraugum af þeim sem ekki stunda reglulega líkamsþjálfun. Gíf- urleg þátttaka í Reykjavíkurmara- þoni sannar best þessa breytingu sem orðið hefur á stuttum tíma. Þar hleypur fólk til að ná góðum tíma, fólk sem hleypur til að hafa gaman af því, fólk sem hleypur til þess að vera með og fólk sem hleypur til að varðveita heilsuna. Landssamtökin ÍÞRÓTTIR FYRIR ALLA vilja reyna að ná til þess fólks í land- inu sem enn Iætur sér nægja að öfunda þá sem eru farnir að hreyfa sig. En þau vilja líka styðja við bak þeirra sem þegar hafa áttað sig á gildi góðrar hreyfingar og hollrar fæðu. Fyrsta starfsár samtakanna hefur verið helgað göngu - sem er góð og holl íþrótt. Ganga þrisvar í viku, 20 mínútur í senn, er góð byrjun á nýju og betra lífi. Það hafa allir efni á því að ganga en enginn hefur efni á að vanrækja eigin líkama. Hann er ekki hægt að úrelda eins og gamlan togara. Og það er ekki hægt að kaupa nýjan. Stjórn samtakanna þakkar landsmönnum fyrir mikilvægan stuðning við myndun samtakanna og stefnir að því að árið 2000 verði ÍFA orðið að sam- tökum allra landsmanna. Með kveðju; Dr. Sigrún Stefánsdóttir formaður ÍFA 2

x

Hreyfing

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hreyfing
https://timarit.is/publication/1456

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.