Fréttabréf Íþróttasambands Íslands - 01.02.1983, Síða 1

Fréttabréf Íþróttasambands Íslands - 01.02.1983, Síða 1
1. tölubl. 1. árg. FRÉTTABRÉF ÍÞRÓTTASAMBANDS ÍSLANDS Febrúar 1983 Ávarp forseta ISI Um leið og ég fylgi hinu nýja fréttabréfi ÍSÍ úr hlaði með nokkrum orðum, vil ég nota taekifærið og senda íþróttafólki, forystumönnum íþróttamála og velunnurum íþróttahreyfingarinn- ar um land allt, beztu kveðjur á nýbyrjuðu ári, með von um, að nýja árið megi verða íslenzkri íþróttahreyfingu til heilla. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um nauðsyn þess, að sambandsaðilum ÍSÍ, og öðrum þeim, sem áhuga hafa á málefn- um ÍSf, sé gefinn kostur á að fylgjast sem bezt með störfum framkvæmdastjórnar ÍSf. Af þeirri ástæðu ákvað framkvæmda- stjórnin fyrir skemmstu að gangast fyrir útgáfu fréttabréfs, sem væntanlega mun koma út 6-8 sinnum á ári. Starfsemi fsf er mjög viðamikil og hefur vaxið hröðum skrefum hin síðustu ár, enda koma ný verkefni til á hverju ári, sem takast verður á við. Það er von framkvæmdastjórnarinnar, að með þessu fréttabréfi verði bætt úr brýnni þörf um auknara upplýsingastreymi um störf framkvæmdastjórnar og nefnda, sem starfa á hennar vegum, en verið hefur. Auk þess er ætlunin að birta í fréttabréfinu það áhugaverðasta, sem berst frá sambandsaðilum. Alfreð Þorsteinsson, ritari ÍSf, hefur fallizt á að ritstýra Frétta- bréfi (Sf fyrst um sinn, og heiti ég á sambandsaðila ÍSÍ að vera honum innan handar með upplýsingar og fréttir af starfsemi sinni. Sveinn Björnsson, forseti ÍSÍ. 50% hækkun á fjárlögum Á fjárlögum fyrir árið 1983 fær ÍSÍ kr. 6 milljónir, sem er 50% hækkun frá fjárlagafrumvarpinu 1982. Þetta er nokkru minni hækkun en ÍSÍ fór fram á, en sótt var um kr. 7,2 milljónir. Engu að síður má ÍSÍ vel við una, því að þessi hækkun er meiri en al- mennt gerist í fjárlögunum hjá öðrum aðilum milli ára. Er óhætt að segja, að ÍSl’ hafi notið velvilja og skilnings ríkisstjórnar og Al- þingis síðustu ár, sem sést bezt á því, að framlög Alþingis til ÍSÍ frá 1980 hafa hækkað um tæp- lega 430%. Verulegur hluti þess- arar fjárveitingar rennur til styrkt- ar sérsamböndum og héraðs- samböndum innan (SÍ. fd Á tólfta hundrað nýttu sér flug- samning á sl. ári Sem kunnugt er, gerðu ÍSÍ og Flugleiðir samning um afslátt á ferðalögum íþróttafólks í milli- landaflugi. Tók samningurinn gildi um áramótin 1981-82. Nú liggja fyrir tölur um það hversu margt íþróttafólk nýtti sér þennan samning, en samtals voru það 1109. Þessi nýting verður að telj- ast góð, þegar það er haft í huga, að tvö stærstu sérsamböndin innan fsf, þ. e. KSf og HSÍ, stóðu utan við samninginn. Stóraukin getraunasala Á aðalfundi Getrauna, sem haldinn var í desembermánuði sl., kom fram, að sala á get- raunaseðlum hefur vaxið gífur- lega á undanförnum misserum. Kom fram, að salan á síðasta starfsári hafði aukizt um meira en 100% milli ára. Var selt fyrir 13,2 millj. kr. á móti 6,4 millj. króna árið þar á undan. Virðist stefna í enn meiri söluaukningu á þessu ári. Hagnaður ÍSÍ af Getraunum var 1,250 millj. kr. Stjórnarfor- maður Getrauna er Gunnlaugur J. Briem, fulltrúi ÍSÍ í stjórninni, en framkvæmdastjóri er Sigur- geir Guðmannsson.

x

Fréttabréf Íþróttasambands Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Íþróttasambands Íslands
https://timarit.is/publication/1458

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.