Fréttabréf Íþróttasambands Íslands - 01.02.1983, Qupperneq 2
FRÉTTABRÉF
ÍSÍ
Útgefandi ÍSÍ, ritstjóri og
ábyrgðarmaður: Alfreð Þorsteins-
son. Skrifstofa ÍSl, Iþróttamið-
stöðinni í Laugardal, sími 83377,
pósthólf 864.
Fréttir af innra starfi Iþrótta-
hreyfingarinnar virðast ekki
eiga eins mikið upp á pali-
borðið hjá fjölmiðlum og frétt-
ir af kappleikjum og mótum.
Það er að sumu leyti skiljan-
legt, en þó er misvægið allt of
mikið I þessum efnum. Sann-
leikurinn er sá, að ýmsar
ákvarðanir, sem teknar eru á
fundum íþróttahreyfingarinn-
ar, og aldrei er getið I fjölmiðl-
um, geta haft miklu meira
fréttagildi en frásagnir af ein-
stökum íþróttaviðburðum.
Fyrir bragðið sleppur íþrótta-
forystan við nánast alla gagn-
rýni, umræðan um störf
hennar er á núlipunkti, og
hætta er á því, að hún ein-
angrist. Þessi þróun er ekki í
neinum takt við aukinn áhuga
fjölmiðla á íþróttum, sem á
síðustu árum hafa stóraukið
rúm sitt fyrir íþróttaefni í blöð-
um og ríkisfjölmiðlum. Iþrótta-
fréttamenn fjölmiðlanna eru
margir hverjir góðir pennar
og birta skemmtilegar frá-
sagnir frá kappleikjum og
mótum. En ábyrgð og skylda
þeirra nær miklu lengra. Án
skorinorðrar umræðu um
stefnu og ákvörðunartöku í-
þróttahreyfingarinnar er
hætta á stöðnun, sem engum
er til góðs. Um þetta verða
bæði íþróttafréttamenn, og
vitaskuld einnig íþróttafor-
ystumenn, að vera sér með-
vitandi, því að íþróttir varða
ekki aðeins afreksmenn held-
ur og hinn breiða fjölda al-
menníngs, sem stundar
íþróttir sér til gagns og
ánægju.
Gistiaðstaða fyrir íþróttahópa
í hinni nýju byggingu íþróttai
Sl. haust hófust framkvæmdir
við nýbyggingu Isl I Laugardal.
Hér er um að ræða þriggja hæða
hús og er grunnflötur þess 490
m2, en rúmmál 4180 m3. Bygg-
ingameistari að húsinu er Magn-
ús Jensson. Er áætlað, að 1.
áfanga, sem miðast við að
steypa húsið upp og gera það
fokhelt, verði lokið fyrir næstu
áramót.
Enginn vafi er á því, að hið
nýja húsnæði á eftir að gerbreyta
allri aðstöðu ÍSÍ til hins betra. Á
1. hæð verður upplýsingaþjón-
usta, auk gistiaðstöðu, sem ætl-
uð er íþróttahópum utan af lands-
byggðinni og erlendis frá. Verður
þar um að ræða 12 tveggja
manna herbergi með baði. Á 2.
hæð verður m. a. kennslustofa,
fyrirlestrasalur, morgunverðar-
salur, eldhús, geymslur og
aðstaða fyrir kennara og
fræðslufulltrúa (SÍ. Á 3. hæð
verður skrifstofa ÍSl með tilheyr-
andi aðstöðu fyrir starfsmenn,
fundarsalur ÍSl og annar fyrir
Olympíunefnd. Þessa tvo sali er
síðan hægt að sameina I einn, ef
ÍSÍ heiðrar einstakiinga og félög
Eftirtaldir aðilar hafa verið
heiðraðir frá því að síðasta
íþróttaþing var haldið í septem-
ber 1982.
Björgvin Schram, fv. for-
manni KSÍ var gefin áletruð bók I
tilefni 70 ára afmælis hans 30.
okt. 1982.
Gunnar Sigurðsson, stjórnar-
maður í ÍBR og stjórn Getrauna
var sæmdur heiðursorðu ÍSl í til-
efni 60 ára afmælis hans 15. okt.
1982.
Umf. Tindastóli fékk áletraða
bréfapressa ÍSÍ í tilefni 75 ára
afmælis þess 29. okt. 1982 og I
tilefni þessa var Heiðbjört
Björnsdóttir, eini eftirlifandi
stofnenda félagsins sæmd
heiðursorðu ÍSÍ og Páll Ragn-
arsson formaður félagsins
sæmdur gullmerki (SÍ.
Ungmennafélagi íslands var
gefin áletruð eftirmynd úr postu-
líni af fálka í tilefni 75 ára afmælis
20. nóv. 1982. I tilefni þessa af-
mælis var Pálmi Gíslason, for-
maður UMFl sæmdur gullmerki
(Sí.
Steinn Guðmundsson, fv. for-
maður Fram var sæmdur gull-
merki ÍSl í tilefni 50 ára afmælis
hans 13. nóv. 1982.
Kristján Benediktsson. borg-
arfulltrúi var sæmdur gullmerki
ÍSÍ I tilefni 60 ára afmælis hans
12. jan. 1983.