Fréttabréf Íþróttasambands Íslands - 01.02.1983, Síða 3
i í Laugardal
sambandsins
um stóra fundi er að ræða. Þá er
gert ráð fyrir, að á þessari hæð
verði komið á fót íþróttaminja-
safni. Lyfta er af jarðhæð húss-
ins. Að öðru leyti er gert ráð fyrir,
að hreyfihamlaðir eigi greiðan
aðgang um allt húsið.
í byggingarnefnd eru Gísli
Halldórsson, Sveinn Björnsson
og Þórður Þorkelsson. Þess má
geta, að félagsheimilasjóður hef-
ur samþykkt að styrkja byggingu
hússins.
Gamlar myndir
í eigu og vörzlu ÍSÍ eru ýmsar
fágætar Ijósmyndir frá íþrótta-
mótum fyrri ára. Er nú fyrirhugað
að koma betra skipulagi á þetta
safn. Vitað er, að víða um land
eiga menn í fórum sínum gamlar
Ijósmyndir, sem tengjast íþrótt-
um með einum eða öðrum hætti.
Áríðandi er, að þessar myndir
glatist ekki, því að þær geta haft
sögulegt gildi. Það eru því tilmæli
ÍSÍ til þeirra, sem kynnu að hafa
slíkar myndir undir höndum, að
hafa samband við Hermann
Guðmundsson, framkvæmda-
stjóra ÍSÍ, í síma 83377. Áríðandi
er, að öllum tiltækum upplýsing-
um varðandi þessar myndir, sé
haldið til haga.
Útbreiðslustyrkir ÍSÍ
Til fróðleiks og upplýsingar SKÍ
birtist hér á eftir listi um út- SSÍ
breiðslustyrki til héraðssam- STl
banda og sérsambanda á árinu samtals
145.353.-
89.372,-
46.819.-
1.400.000.-
Héraðssambönd:
UMSK 36.010.-
UMSB 16.650,-
HSH 10.540,-
UDN 8.330,-
HHF 10.070,-
HVÍ 9.060,-
HSS 9.300.-
USVH 14.150,-
USAH 13.270,-
UMSS 9.210,-
UMSE 13.360,-
HSÞ 15.880.-
UNÞ 7.360,-
UlA 15.070,-
USÚ 9.230,-
usvs 10.000,-
HSK 18.120,-
Is 22.180,-
ÍBK 18.990,-
ÍBH 67.470.-
ÍA 14.990,-
ÍBÍ 12.880.-
ÍBS 16.170,-
UÍÓ 9.080,-
ÍBV 20.210,-
ÍBA 55.720,-
ÍBR 176.700,-
Samtals 640.000,-
Styrkupphæð
BLÍ 68.027,-
BSÍ 84.246,-
BTl 66.189,-
FRÍ 132.448.-
FSÍ 71.653,-
GLI 47.834,-
GSÍ 66.050,-
HSl 142.585,-
JSI' 56.016,-
KKÍ 96.168,-
KSl 171.958.-
lsí ^60.749,-
Nýjar íþróttagreinar
Ávallt skjóta upp kollinum nýj-
ar íþróttagreinar. I nágrannalönd-
unum eiga margs konar íþrótta-
greinar, sem tengjast vélknúnum
ökutækjum, vaxandi vinsældum
að fagna. Sumar þeirra hafa bor-
izt hingað til lands og eru iðkaðar
hér af miklu kappi. I nágranna-
löndunum eru þessar greinar
innan íþróttasambandanna með
eigin sérsambönd. Nýlega
mættu á fundi framkvæmda-
stjórnar ÍSÍ tveir fulltrúar frá Bif-
reiðaklúbbi Reykjavíkur, þeir Pét-
ur Kristjánsson og Ön/ar Sig-
urðsson, en þeir höfðu óskað
viðræðna við framkvæmda-
stjórnina um væntanlega
inngöngu bifreiðaíþrótta í ÍSÍ. Eru
þau mál til athugunar. Þá má
geta þess, að hestamenn hafa
sótt um inngöngu í ISl, en víða
eru starfandi íþróttadeildir innan
hestamannafélaga.
Fulltrúar flokkanna
Sl. haust skrifaði fram-
kvæmdastjórn ÍSÍ þingflokkum
stjórnmálaflokkanna bréf og ósk-
aði eftir því, að þeir tilnefndu full-
trúa af sinni hálfu til að vera
tengiliðir við ÍSÍ vegna samskipta
ÍSÍ við Alþingi. Þingflokkarnir
brugðust skjótt við þessari beiðni
ÍSl og tilnefndu strax fulltrúa. Al-
þýðubandalagið tilnefndi Skúla
Alexandersson, Alþýðuflokkur-
inn tilnefndi Eið Guðnason,
Framsóknarflokkurinn tilnefndi
Jóhann Einvarðsson og Sjálf-
stæðisflokkurinn Matthías Á.
Mathiesen.