ÍSÍ fréttir - 15.01.1992, Blaðsíða 6
FRÉTTABRÉF ÍSÍ
HÓTEL ÍSÍ b
ÍSÍ rekur segir hótel með 13 tveggja manna herbergjum og eru öll með sturtu. Nú stendur
til að setja síma og sjónvarp inn á herbergin og innan tíðar verður settur upp gervihnatta-
móttökudiskur. Hótelið er mjög vel í sveit sett fyrir íþróttahópa þar sem það er svo nálægt
helstu íþróttamannvirkjum Reykjavíkur. Verð fyrir gistingu hefur ávallt verið stillt í hóf
fyrir íþróttahópa og þó að þjónusta verði aukin er stefnt að því að halda verði í lámarki.
Fundaraðstaða |
Nú í dag eru til staðar 2 fundarsalir sem
leigðir eru út til sambandsaðila fyrir fundi
og ársþing. Þessir salir eru nokkuð vel
útbúnir til að halda slíka fundi og þá einnig
til námskeiðahalds. Fyrir hendi er mynd-
bandstæki, sjónvarp og myndvarpi sem er til
reiðu fyrir þá sem vilja halda námskeið.
Töflufundir. |
Eins og áður greinir er góð aðstaða til að
halda fundi og þá ekki síst fyrir lið sem eru
að fara í keppni að mæta og fara yfir leik-
skipulagið og jafnvel skoða videomynd af
andstæðingunum. Félög ættu að kynna sér
þessa aðstöðu nánar. Þess má geta að
stuðningsklúbbur íslenska landsliðsins í
knattspy mu K-120 kom alltaf saman fyrir og
eftir landsleiki síðasta sumar. Var rætt um
væntanlegan landsleik og að honum loknum
var rætt um hvað var vel gert og hvað fór
úrskeiðis. Reynslan sýndi að sú aðstaða
sem ÍSÍ býður uppá er mjög hentug. Þá er
þessi aðstaða hentug fyrir árshátíðir,
herrakvöld og aðrar þær uppákomur sem
félög standa fyrir.
6