Vísbending - 21.03.2016, Page 1
ÍSBENDING
Vikurit um viðskipti og efnahagsmál
21. mars 2016
11 . tölublað
34. árgangur
ISSN 1021-8483
Geðsveiflur forstjórans
ann fyrsta mars síðastliðinn var
bandarískur forstjóri ákærður fyrir
að hafa staðið fyrir ólöglegu sam-
ráði milli tveggja orkufyrirtækja á árunum
2007 til 2012. Fyrirtækin höíðu komið sér
saman um það hvort þeirra myndi senda
inn lægra tilboð í útboðum og láta svo hitt
félagið njóta afrakstursins. Forstjórinn, Au-
brey McClendon, sagði ásakanirnar fráleit-
ar. Þótt hann stýrði stóru jarðgasfyrirtæki
var hann þekktari fyrir að vera stór hluthafi
í NBA-körfuboltaliðinu Oklahoma City
Thunder. Hann var einbeittur í yfirlýs-
ingu sem hann sendi út sama dag: „Allir
sem þekkja mig og viðskiptaferil minn vita
að ég gæti ekki verið sekur um að brjóta
samkeppnislög. Ég hef unnið allt mitt líf í
því að skapa störf í Oklahóma, styrkja hag-
kerfi ríkisins og skaffa Bandaríkjamönnum
næga og ódýra orku. Ég er hreykinn af
þeim árangri sem ég hef náð á þessu sviði
og mun berjast fyrir því að hreinsa nafn
mitt og sanna að ég er saklaus.“
Forstjórinn átti að mæta á lögreglustöð-
ina klukkan 10 morguninn eftir. Hann
var kominn í vinnuna snemma og sendi
tölvupóst til kunningja síns eitthvað á þessa
leið: „Gaman að hitta þig í gærkvöldi."
Þeir höfðu hist á skyndibitastað. I kjölfar-
ið skaust McClendon út í bílinn sinn, ók
út á fáfarinn veg og steig bensínið í botn.
Skyndilega sveigði hann til vinstri og
negldi bílnum á brúarstólpa á 140 km/klst.
hraða. Þar endaði ævi þessa athafnamanns.
Forstjórar eru líka fólk
Kannski finnst einhverjum þetta skiljan-
legt, maðurinn hafði lent í miklum mót-
byr. Kannski vissi hann upp á sig sökina
og vildi ekki enda í fangelsi. Almenning-
ur virðist oft halda að þeir sem stjórna
fyrirtækjum séu illa innrættir harðjaxlar
sem ekkert bíti á. f raun eru þeir auðvitað
mannlegir, ekki bara þegar þeim verður á í
messunni heldur líka þegar þeir verða fyrir
gagnrýni.
Flestir skilja að menn kunni að brotna
niður við módæti. Erfiðara er að átta sig
á því að forstjórar sem samstarfsmenn líta
upp til og hafa notið velgengni geta átt
við ýmis geðræn vandamál að etja. Sum
eru ekki þess eðlis að þeir séu óstarfhæfir
og stundum geta þau jafnvel hjálpað fyrir-
tækjunum, að minnsta kosti um tíma.
Onnur verða hins vegar til þess að spilla
árangri bæði forstjóranna og fyrirtækjanna
sem þeir stjórna. Langoftast bitna veik-
indin á fleirum en þeim einum.
Hnöttinn af brautinni
Sigurður Sigurðsson skáld frá Arnarholti
orti vel um geðsveiflur sem margir kannast
við, flestir auðvitað fremur hjá öðrum en
sjálfum sér. Kvæði hans /dag er ég ... er
eins og lýsing á því hvað gerðist fyrir og eft-
ir hrun. I fyrsta erindinu er sögumaður rík-
ur: „Gakk þú í sjóðinn og sæktu þér hnefa,
unz sál þín er mettuð og barmafull.“ Strax
í því næsta hefur allt snúist á verri veg og
hann er „snauður og á ekki eyri, ölmusu-
maður á beiningaferð."
Gleðin tekur svo völd og skáldið ætlar
að „dansa til morguns við hverja sem er.“
En skjótt skipast veður í lofti og strax í
næsta erindi er hann reiður við allt og alla
og ætlar að „hengja og skjóta’ alla helvít-
is þrjóta." Kannski hann hefði mætt á
Austurvöll eins og svo margir. En í lokin er
hann þreyttur og spyr: „Hvar er nú öll mín
forna glóð?“
Þessar snilldarvísur Sigurðar eru ágæt
Iýsing á sveiflunum sem lýst er hér á eftir.
Stjórnendur eru auðvitað ekki einir um að
sveiflast upp og niður, en veikindi þeirra
hafa áhrif á marga aðra.
Jayne W. Barnard skrifaði um sálar-
flækjur forstjóra1. Hann nefnir fimm þætti
sem einkum hrjái þá: Sjdlfidýrkun, ofur-
bjartsýni, reiði, ótta og þunglyndi. Við þetta
mætti auðvitað bæta ofhotkun dfengis og
annarra fíkniefna. Oll þessi einkenni geta
menn séð hjá þekktum stjórnendum (þó
ekki öll samtímis). Auðvelt væri að vitna
til slíkra manna hér á landi, en lesendum
er látið eftir að velta fyrir sér hvaða ís-
lendingar í fremstu röð gætu þjáðst af þess-
um einkennum.
Sjálfsdýrkun
Forstjórar eru flestir metnaðarfullir menn
og það að menn hafi náð á toppinn gefur
til kynna að þeir hafi ákveðna hæfileika
umfram aðra. Margir þeirra eru ríkir og
hafa fengið margs kyns viðurkenningar.
Hjá sumum Ieiðir velgengnin til eins kon-
ar Messíasarkomplex, þ.e. þeim finnst
þeir geta tjáð sig um öll möguleg mál sem
sérfræðingar, jafnvel þó að þeir hafi enga
þekkingu á því sviði. Stundum getur þetta
hjálpað fyrirtækjunum sem þeir stjórna.
Forstjórarnir hafa skýra framtíðarsýn og
telja að þeir séu einmitt réttu aðilarnir til
þess að leiða hópinn til fyrirheitna lands-
ins. Þeir sækjast stöðugt eftir hrósi og raða í
kringum sig já-mönnum.
Auðvitað hefur sjálfsdýrkun líka nei-
kvæðar hliðar. Forstjórarnir hætta að virða
almennar umgengnisvenjur, þeir gera lítið
úr samstarfsmönnum, öskra á þá, skella
famh. d bls. 2
1 Geðsveiflur stjórnenda Stundum hjálpar það j l ^ Er ísland of lítið? A Gróa á Leiti er oft á
X hafa auðvitað alvarlegar : £| fyrirtækjunum að stjórnendur j \ J Hannes H. Gissurarson j Ý ferðinni. Ef ekki, þurfum
afleiðingar fyrir þá og líka j séu öðruvísi en fólk flest, en j sýnir að smæðin er ekki j við stundum að ýta henni
fyrirtækin sem þeir stjórna. j það skaðar starfsmenn. alltaf galli. af stað.
VÍSBENDING • Il.TBL. 2016 1