Austri


Austri - 20.06.1985, Blaðsíða 2

Austri - 20.06.1985, Blaðsíða 2
2 AUSTRI Egilsstöðum, 20. júní 1985. Útgefandi: Kjördæmissamband framsóknarmanna á Austurlandi Skrifstofa Austra Kaupvangi 6, 700 Egilsstaðir, pósthólf 73 © 97-1984 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón Kristjánsson Framkvæmdastjóri: Þórhalla Snæþórsdóttir Blaðamenn: Sveinn Herjólfsson, Magnús Þorsteinsson, Magnús Einarsson og Benedikt Vilhjálmsson Auglýsinga- og áskriftarsími: 97-1984 Áskrift kr. 50.- á mánuði. Lausasöluverð kr. 15,- Prentun: Héraðsprent sf. Egilsstöðum © 97-1449 Er sjálf- stæðis- baráttunni lokið? í vikunni voru liðin fjörutíu og eitt ár frá stofnun lýðveldisins. Þá rætt- ust hugsjónir þeirra manna sem sáu og skildu að mikið afl bjó í þjóðinni. Afl sem aðeins yrði leyst úr læðingi á grundvelli frelsis og trúar á eigin mátt. Jón Sigurðsson minnti ávallt á, að stjórnarfarslegt frelsi dygði skammt, þjóðin yrði að skilja og sýna að hún gæti séð sér farborða í efna- legu og atvinnulegu tilliti. Þeir sem börðust á tímum harðæris og er- lendrar áþjánar höfðu þá trú, að þjóðinni væri þetta ekki aðeins kleift, heldur væri það eina leiðin til betra lífs fyrir komandi kynslóðir. Lífs sem þeir sjálfir vildu njóta en urðu að láta sér nægja að sjá í draumum sínum og hugsjónum. Við er nú lifum höfum séð draumana rætast. Okkur ber sú skylda að varðveita sjálfstæði þjóðarinnar og skila landinu betra til komandi kyn- slóða með sama hugarfari og forfeður okkar gerðu. Við höfum efnalegu skilyrðin til þess, þeir höfðu aðeins trúna og eldmóðinn. Það steðja margar hættur að smáþjóð. Hver og ein getur skert frelsi hennar og að lokum kann frelsið sem barist var fyrii um aldir að hverfa á augabragði. Við fslendingar erum hér engin undantekning og þurfum því sífellt að halda vöku okkar. Sjálfstæði er meðal annars falið í efnalegu, atvinnulegu og alþjóðlegu frelsi, ásamt fullu forræði yfir nýtingu auðlinda og auðlegð lands og þjóðar. Það er meiri ástæða nú en oft áður til að meta þær hættur, sem að okkur steðja og yfirvega af raunsæi hvort í þeim felist eitthvað er skerðir eða getur veikt sjálfstæði okkar. Við erum efnalega sjálfstæð þjóð, en með miklar erlendar skuldir. Mikil verðmæti standa vissulega á móti skuldunum, en það er ekki pægi- legt. Margur einstaklingurinn hefur misst eigur sínar jafnvel þótt hann hafi átt verðmætar eignir á móti skuldunum. Ef hann hefur sýnt gáleysi og sá er lánaði misst á honum trú var það nægilegt til að illa fór. Eins er með þjóðir. Því þurfum við að vanda sérhverja fjárfestingu og draga úr skuldasöfnun erlendis. Með því að safna frekari eyðsluskuldum munum við auka ráðstöfunartekjurnar um stund en í reynd hefta framfarasókn okkar og komandi kynslóða. Lífsgæðakapphlaup er byggir á skulda- söfnun er því hættulegt sjálfstæðinu. Menning Islendinga gerði sjálfstæðisbaráttuna mögulega. Á erfiðustu tímum lagði þjóðin rækt við tungu og bókmenntir. Menningararfinn höfum við varðveitt enda þótt erlendra áhrifa gæti víða. Nú er menning- arleg einangrun nánast óþekkt. Nútímatækni færir þjóðirnar nær hvor annarri. Aðeins það dáðasta og sterkasta getur lifað í því ölduróti. Þótt menningin sé ávallt í hættu, höfum við sýnt það og sannað að aðrar þjóðir hafa í mörgu meira til okkar að sækja en við til þeirra. Atvinnulegt sjálfstæði var höfuðmarkmið frumherjanna. Yfirráð er- lendra manna í atvinnulífinu leiddi af sér kúgun og umkomuleysi. Með vaxandi alþjóðlegum viðskiptum og bættum viðskiptaháttum hafa við- horf vissulega breyst en það verður að sýna varkárni í að treysta á atvinnu- rekstur erlendra aðila. Allar líkur benda til að alþjóðlegt samstarf í at- vinnurekstri fari vaxandi á næstu áratugum. Virk yfirráð íslendinga eru forsenda slíks samstarfs, þ.e. að okkar áhrif og ítök séu ráðandi þannig að ekki sé unnið gegn hagsmunum landsins. Það er erfitt fyrir smáþjóð að halda alþjóðlegu sjálfstæði. Stórveldin vilja ráðskast með mál annarra og hervæðast sífellt í nafni friðar og frelsis. Með þátttöku í Sameinuðu þjóðunum og í samstarfi við Norðurlanda- þjóðirnar hefur tekist að auka alþjóðleg áhrif okkar. Við eins og margar aðrar smáþjóðir höfum gengið í varnarbandalag vegna ástands alþjóða- mála. Ef stórveldin bæta sambúð sína og draga úr vígbúnaði yrðu slík bandalög óþörf og áhrif smáþjóðanna myndu aukast. Einir stöndum við varnarlausir gegn herjum erlendra þjóða og því hljótum við fyrst um sinn að treysta á samstarf við vestrænar þjóðir í vamarmálum. Ávallt verðum við að stefna að því að verá engum háðir í þeim efnum. Eftir langa baráttu höfum við náð yfirráðum yfir auðlindum hafsins. Sá sigur var ný meginstoð í sjálfstæði okkar. En vandi fylgir vegsemd hverri. Ekki er nóg að ráða yfir auðlindunum, það verður að gæta þeirra. Skógunum var eytt og þótt eldiviðurinn hafi bjargað mörgum voru enn fleiri sem liðu hörmungar vegna þeirrar skammsýni. Með gáleysi má auð- veldlega eyða fiskimiðunum á altari lífsgæðakapphlaupsins. Meðferð auðlindanna og nýting þeirra er því mikilvægasti þátturinn í sjálfstæðis- málum þjóðarinnar. Sjálfstæðisbaráttunni er því ekki lokið. Baráttan mun ávallt halda áfram. Framsýni, virðing fyrir því sem við eigum og umhyggja fyrir kom- andi kynslóðum mun verða ráðandi um það hvernig fer. Við eigum mikla skuld að gjalda. Sú skuld verður aðein&goldin með því að sérhver íslend- ingur vinni sífellt að því að styrkja stoðir sjálfstæðisins. Einstaklingarnir geta gert það með misjöfnu móti og hver á sínu sviði en samvinna fjöldans ræður þó mestu um niðurstöðuna. HalldórÁsgrímsson. Frá UMFÍ Frá golfvellinum á Eskifirði. Á þessu ári — ári æskunnar— leggur UMFÍ höfuðáherslu á sumarbúðastarf fyrir æskufólk og eru þegar all mörg ung- mennafélög og sambönd búin að skipuleggja og auglýsa búðir á sumri komanda. I sumar, 26. júní, mun UMFÍ senda stóran hóp íþróttafólks á landsmót dönsku ungmennafé- laganna — DDGU — í Odense, en á þessu móti eru skráðir alls um 25000 þátttakendur. Göngudagur UMFÍ verður 22. júní 1985. Þá leggur UMFÍ ríka áherslu á trjárækt og ræktunarstarf víðs- vegar um landið og miðar við að gróðursetja eina trjáplöntu á hvern félagsmann sem eru um 26200. Verkefnið „Eflum íslenskt" er sífellt í brennidepli. Félagsmálanámskeið UMFÍ eru í fullum gangi og eru að megin markmiði til miðuð við að þjálfa fólk í félagsstörfum og kynna fólki uppbyggingu félags- hreyfinga og hefur reynst mörgum manninum gott vega- nesti á félagssviðinu. Eins og allir vita starfar UMFf með miklum og fjölþættum hætti í öllum sveitum landsins. Þetta starf kostar töluvert fé þó ómæld vinna sé unnin í sjálfboðavinnu. Allt þetta starf og meira til kallar á aukið fjármagn og þess vegna er efnt til landshappdrættis. Sala miðanna stendur aðeins yfir í 2 mánuði eða í júní og júlí mánuði, þvi dregið verður 1. ágúst 1985. Miðinn kostar kr. 150,- og fæst hjá öllum ungmennafélögum og á skrifstofu UMFl að Mjölnisholti 14, 3. hæð. Vinningar eru alls 50 talsins og sá eigulegasti 100.000 kr. virði og eins og áður er getið verður dregið 1. ágúst 1985. Fréttatilkynning. Auðunn Bragi Sveinsson: Fáein kveðjuorð Góðir Breiðdælingar og aðrir Austfirðingar! Nýlega er lokið dvöl okkar hjóna á Austfjörðum, sem varaði í fimm ár. Þennan tíma stundaði ég kennslu á tveimur stöðum. Síðustu tvo vetur hef ég kennt í Staðarborg- arskóla í Breiðdal. En nú erum við komin til Reykjavíkur. Margs er að minnast, þegar litið er til baka, og það hverfur ekki að sinni úr huganum. Ekki sé ég eftir þessum árum, þau hafa verið gefandi fremur en hitt. Kennsla er nefnilega alhliða starf. Og ekki vildi ég nú hafa fremur stundað verslunarstörf á liðinni starfsævi, eins og mér var ætlað forðum, en kennslu og skólastjórn. Faðir minn vildi nefnilega að ég gengi í Samvinnuskólann og yrði versl- unarmaður. Fjarri fer því þó, að ég lasti verslunarstörf. Þau voru bara ekki fyrir mig. Þegar ég kom á Austurland haustið 1980, hafði ég ekki fyrr litið þann landshluta. Og það verð ég að segja, að þar er ein- stök náttúrufegurð. Margt er þar að sjá í landslagi, sem ekki ber fyrir augu annars staðar á land- inu. Fjöllin þar eru sér á parti. Dyrfjöllin eru fræg. í Breiðdal eru einnig mörg sérkennileg fjöll. Og sérkennilegt er þar, og raunar víðar austanlands, hvernig berg- lögum fjallanna hallar inn til landsins. Fyrr á tíð átti ég erfitt með að læra röð fjarða á Aust- fjörðum en nú er ég, held ég, orð- inn viss á henni. Ekkert jafnast á við kynni af landinu. Þannig lærum við best landafræði. Þetta var um landið. En fólkið er vitanlega sá þátturinn, sem raunar allt snýst um. Á því veltur allt. Mörgum höfum við kynnst á þessum árum. Flest eru þau kynni ánægjuleg. Og hafi ein- hver ekki uppfyllt glæstustu vonir, er best að gleyma þeim. Þau eru ekki þess virði að dragn- Auðunn Bragi Sveinsson. ast með þau. Ég nefni engin nöfn í þessu sambandi. Sakna ég svo einskis, þegar horfið er frá Aust- fjörðum til stórborgarinnar við Faxaflóa? Jú, mikil ósköp. Ég sakna ákaflega margs, barn- anna ekki síst. Ég þakka þeim kærlega fyrir samvinnuna þessi ár. Ég man þau öll. Að lokum þetta: Þökk fyrir öll kynnin á liðnum árum, kæru Austfirðingar. Vonandi eigum við eftir að hitta sum ykkar síðar. Lifið heil. Auðunn Bragi Sveinsson. Pistillinn Benedikt Vilhjálmsson Undanfarna daga hefur aðalmál fjölmiðla verið bjórfrum- varp svokallað. Tæpast hefur verið útvarpað svo frétt að ekki hafi verið minnst á það. Önnur al- varlegri mál hafa horfið ( skuggann. Útvarpslagafrumvarpið fylgir þarna fast á eftir og nú er svo komið að það er svo til runnið í gegnum þingið þótt afkvæmið virðist talsvert vanskapað. Það sem vekur mesta furðu í allri umræðunni um bjórinn er hversu erfitt þetta mál ætlar að reynast og að þingmenn skuli orðnir það slappir að þeir treysta sér ekki til að taka ákvörðun í þessu smámáli. Þingmaður, sem ekki getur gert upp hug sinn í þessu máli, er ekki fær um að gera upp hug sinn í stærri og veigameiri málum. Slíkur þing- maður á ekki að sitja á Alþingi ís- lendinga, hann hefur ekki þá reisn og þá dómgreind sem til þarf og Alþingi setur ofan við að slíkir menn skuli sitja þar. Með þessum orðum er ekki verið að taka afstöðu með eða móti bjór heldur lýsa þau hneykslun á vinnubrögðum sem viðgangast á hinu háa Alþingi og vanþóknun á þeim þingmönnum sem af ein- hverjum óskiljanlegum ástæðum virðast ekki vera í stakk búnir til að axla þá ábyrgð sem fylgir því að taka ákvarðanir. Slíka menn er ekki hægt að nota úti í atvinnu- lífinu og þá varla á Alþingi þar sem menn hljóta að verða að hafa þor og getu til að taka skynsamlegar ákvarðanir og standa síðan eða falla eins og menn með þeim ákvörðunum sem þeirtaka. Hafa þessirmenn gert sér grein fyrir því hvað þjóð- aratkvæðagreiðsla um þetta smámál kostar þjóðarbúið? Benedikt Vilhjálmsson.

x

Austri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austri
https://timarit.is/publication/792

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.