Austri


Austri - 26.06.1986, Side 4

Austri - 26.06.1986, Side 4
4 AUSTRI Egilsstöðum, 26. júnl 1986. Ævintýraleg ferð tii Færeyja Aðdragandi ferðarinnar f síðustu viku gafst Austra kostur á að senda mann til Fær- eyja í boði Vest-Norden til að kynna sér ferðamál í Færeyjum. Ferðin var farin í boði Vest-Nor- den en að henni stóðu einnig Ferðamálasamtök Austurlands, Flugleiðir og Smyril-Line. Full- trúum tveggja landsmálablaða var boðið auk fuiltrúa frá ferðaskrif- stofum. Þeir sem fóru þessa ferð voru Reynir Adólfsson frá Ferða- málasamtökum Austurlands og var hann fararstjóri hópsins, Andri Hrólfsson frá Flugleiðum, Ragn- heiður Stefánsdóttir frá ferðaskrif- stofunni Úrval, Guðmundur Guðmundsson frá Ferðaskrifstofu Akureyrar, Hermann Sveinbjörns- son frá dagblaðinu Degi, Akureyri og Jón Ingi Einarsson frá Austra. Tilgangur ferðarinnar var að kynna sér aðstæður fyrir ferða- menn í Færeyjum og upp á hvað eyjarnar hafa að bjóða ferða- mönnum. Til Færeyja var flogið með Flugleiðum þriðjudaginn 10. maí og var lent á flugvellinum í Vogi um kl. 11. Kynnisferð um Straumey og Austurey Þegar hópurinn kom út úr flug- stöðvarbyggingunni í Vogi var farið að svipast um eftir bifreið þeirri sem átti að aka okkur um eyjarnar svo og leiðsögumanni. Kom þá í Ijós að leiðsögumaður- inn var ung og elskuleg stúlka sem talaði ágæta íslensku enda hafði hún búið á íslandi. Vísaði hún okkur að áætlunarbifreið af stærstu gerð og var ekki laust við að mönnum fyndist hún nokkuð stór fyrir sex manna hóp frá (s- landi, en þegar inn í bifreiðina kom gekk alveg yfir mannskapinn. Hér var engin venjuleg rúta á ferðinni, fremst voru sæti fyrir um 20 manns, þá voru sæti fyrir átta þannig að fólk sat gegnt hvert öðru og hafði borð á milli sín, þá kom eldhús og síðan salerni með steypibaði, þarfyrir aftan kom svo setustofa fyrir um það bil 10 manns og var hægt að hafa diskóljós í henni og einnig var þar sjónvarp og myndbandstæki. Allur búnaður í bifreiðinni var hinn glæsilegasti. Forvitnin kom auð- vitað upp í landanum og spurðum við hvort allir hópferðabílar í Fær- eyjum væru svona glæsilegir, en auðvitað var svarið nei, hér vorum við komin í bíl sem hafði verið keyptur frá Danmörku og var áður einka hópferðabifreið danska auðjöfursins Simons Spies. Var nú ekið af stað í einstaklega góðu veðri og farið með ferju til Vest- manna á Straumey, var nú ekið um Straumey og það sem vakti mesta athygli auk fallegs lands- lags og snyrtilegrar byggðar var mikill fjöldi fiskeldisstöðva, sem virtust alls staðar vera í hverjum firði og vík. Komið var að Saksun, þar er 300 ára gamall bóndabær sem er til sýnis. í bænum var síðast búið 1947 og sögðu Færeyingar að mjög hollt væri að búa í þessum Bærinn í Saksun. húsum því hjónin sem þar bjuggu síðast urðu 97 og 98 ára gömul. Þá var ekið til baka að brú sem er yfir á Austurey. Brú þessi, sem byggð var 1979, er eina brúin sem liggur yfir Atlantshafið og tengir hún saman Straumey og Austurey. Var nú ekið að Eiði nyrst á Aust- urey og farið þar á hótelið og borðað brauð með ekta færeysku áleggi svo sem skerpukjöti. Þegar farið var frá Eiði þá lá leiðin til Gjógv. Þar er stórkostlegt að sjá bátahöfn sem er þar frá náttúr- unnar hendi, einnig er þar búð sem er yfir 100 ára gömul og í dag er þar enn notast við gömlu hlut- ina, aðeins bæst við frystikista og nýr peningakassi. í Gjógv skoð- uðum við einnig mjög skemmtilegt nýtt farfuglaheimili, Gjáargarð og er það allt innréttað í gömlum fær- eyskum stíl. Nú var degi farið að halla og var því ekið til Þórshafnar. ingar mikið lært af Færeyingum í þeim efnum. Undraðist maður þegar ekið var um nýleg iðnaðar- hverfi að hvergi skyldi sjást svo mikið sem eitt einasta bílhræ hvað þá annað drasl. í Þórshöfn gistum við á nýlegu mjög glæsilegu hóteli, Hótel Borg. Hótelið er ákaflega nýtískulegt og sérkennilega byggt þannig að þetta stóra hús fellur inn í lands- lagið með grasi vöxnu þaki sínu. Herbergin þar voru mjög skemmti- leg og þjónusta og þrifnaður til fyrirmyndar. Eftir að hafa borðað kvöldverð með formanni og framkvæmda- stjóra Ferðamálaráðsins horfðum við á kynningarmynd sem gerð hefur verið um Færeyjar. Daginn eftirdvöldum við í Þórs- höfn og ræddum við fólk sem starfaraðferðamálum. í hádeginu bauð Ferðamálaráð Færeyja til hádegisverðar á Hótel Hafnia og Höfnin í Gjógv gerð frá náttúrunnar hendi. Þórshöfn í Þórshöfn búa nú um 13000 manns. Þar hefur mikið verið byggt á undanförnum árum og staðurinn breitt úr sér. Eitt af ein- kennum Þórshafnar er eins og annarra færeyskra bæja, snyrti- mennskan og gætum við íslend- voru þar auk okkar íslendinganna, Jakop Haraldsen, formaður Ferðamálaráðsins, framkvæmda- stjóri þess Jákup Veyhe, hótel- stjórar bæði Hótels Borgar og Hótels Hafnia svo og fulltrúar þeirra sem vinna að ferðamálum í Færeyjum. Ekki er of sagt að mikið hafi Höfnin í Þórshöfn. verið lagt í máltíð þessa. Glæsi- legt borð beið okkar með öllum hugsanlegum kræsingum. Þar sem mönnum ofbauð alveg úr- valið á borðinu var hótelstjórinn í Hafnia spurður kurteislega að þvr hversu margir réttir væru á borðum. Upplýsti hann þá að rétt- irnir væru 28 og gaf hann okkur þá lista yfir þá til minningar um þessa stórkostlegu máltíð. Ef maður vildi aðeins gefa mönnum hugmynd um hvað á borðum var þá má nefna, graflax, síld, soðinn lax, skelfisk, gellur, mismunandi tegundir af pylsum, skerpukjöt, ræst kjöt, spik og harðfisk, en hér er aðeins nefndur lítill hluti þeirra rétta sem fram voru bornir. Eðli- lega tók þetta borðhald nokkuð langan tíma og var rætt um ferða- mál undir borðum. Að því loknu var Hótel Hafnia skoðað, en það er mjög snyrtilegt hótel með ágæt- um herbergjum og auk þess er það mjög vel staðsett í bænum. Nú var farið að líða að brottför en síðasta klukkutímann ók Sámal Bláhamar, framkvæmda- stjóri ferðaskrifstofunnar Tora, okkur um bæinn og sýndi eftir því sem tíminn leyfði. Það merkasta sem við sáum í þeirri ferð var Norðurlandahúsið í Þórshöfn. Kom það mönnum skemmtilega á óvart hversu glæsilegt húsið var og allt fyrirkomulag úthugsað þannig að húsið býður upp á hina ótrúlegustu möguleika. Norræna Þá var komið að lokum þessarar dvalar okkar í Þórshöfn og blasti nú það glæsilega skip Norræna við okkur og hófst þar með heim- förin. Norræna var í sinni fyrstu ferð í sumar og hafði hún tafist vegna slæms veðurs frá Bergen. Annars sögðu Færeyingar okkur að yfirleitt mætti stilla klukkuna eftir komutíma Norrænu. Ekki spilltu verðurguðirnir fyrir okkur heimsiglingunni því skipið bók- staflega hreyfðist ekki, enda sjór alveg sléttur alla leiðina. .Segja má að ekki þurfi menn að láta sér leiðast um borð í Norrænu, sér- staklega ekki ef þeir vilja stunda skemmtanalífið því mjög glæsi- legir salir eru um borð í henni, þó aðsókn að þeim hafi ekki verið mikil þetta kvöld sem við vorum þar um borð, enda farþegar frekar fáir eða um 400 og þar af mjög fáir íslendingar. Heimsiglingin gekk mjög vel og var allur aðbúnaður um borð eins og hann getur best verið og allt J. M. Restorff, hótelstjóri Hafnia og hiaðborðið með 28 réttum. NðftftÖNA Norröna við bryggju á Seyðisfirði.

x

Austri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.