Austri


Austri - 16.02.1995, Qupperneq 1

Austri - 16.02.1995, Qupperneq 1
Hraðpökk- unarkerfí tekið í notk- unhjá Borgey Engar athugasemdir við starfsleyfi Loðnuverksmiðju Eskifjarðar Engar athugasemdir bárust til Hollustuvemdar ríkisins varðandi starfsleyfi Loðnuverksmiðju Eski- fjarðar. Að sögn Jóhanns Guð- mundssonar hjá Hollustuvernd vom engar athugasemdir komnar inn á borð til hans þegar Austri hafði samband við hann á mánu- daginn en fresturinn til að gera at- hugasemdir varðandi verksmiðjuna rann út 5. febrúar sl. Jóhann bjóst við því að formlegt starfsleyfi yrði gefið út mjög fljótlega. Búið var að endurnýja verksmiðjuna á Eskifirði að stórum hluta og er hún í dag ein fullkomnasta loðnuverksmiðjan á landinu og framleiðir hágæða mjöl. Einnig var byggt þak yfir loðnuþró- arrýmið. MM Það var heldur léttari brúnin á skipverjum á loðnubátnum Alberti GK 31 þegar þeir komu til Reyðarfjarðar sl. fimmtudag. Albert var með um 700 tonn af loðnu í þessari veiðiferð. Loðnan veiddist út af Hvalbak en siglingin til Reyðarfjarðar tók um fjóra tíma. Strákarnir sögðu Ijósm. Austra að þetta vœri að koma (um helgina fannst stór loðnutorfa austar), þó svo að enn vanti upp á að hægt sé aðfrysta loðnufyrir Japansmarkað, hrognafyllingin var um 12% en þarf að vera um 15%. Þó var eitthvað fryst fyrir önnur lönd í Asíu sem ekki krefjast eins mikillar hrognafyllingar og Japansmarkaður. Austramynd: MM Hjá Borgey var nýlega tekið í nokun í vinnslusal hraðpökkunar- kerfi fyrir loðnu og síld og hafa verið settar upp tvær línur. Hrað- pökkunarkerfið er algjörlega sjálf- virkt og mjög afkastamikið. Afurð- unum er pakkað í stóra plastpoka sem ýmist fara í pönnur eða í 10 kg. öskjur og síðan beint til fryst- ingar. Tækið hannaði Olafur Magn- ússon, útgerðarstjóri hjá Borgey og er það smíðað í Landsmiðjunni. Rafkerfið í búnaðinum er hannað og unnið hjá Samey en vogir koma frá Marel. AÞ Síðastliðinn föstudag samþykkti stjórn og trúnaðarmannaráð Verka- lýðs- og sjómannafélags Fáskrúðs- fjarðar að boða til verkfalls hjá Kaupfélagi Fáskrúðsfirðinga frá og með 17. febrúar. Að sögn Eiríks Stefánssonar formanns verkalýðsfé- lagsins slitnaði upp úr viðræðunum við Kaupfélagið á föstudagsmorgun- inn og var samþykkt hjá verkalýðs- félaginu að vinnustöðvunin yrði tímabundin í tvær vikur frá og með 17. febrúar ef samningar nást ekki Byggingu parhúss fyrir Þroska- hjálp á Reyðarfirði miðar vel. Þetta er fyrsta húsið sem Þroskahjálp byggir á Reyðarfirði. Það er bygg- ingarfyrirtækið Húsiðjan hf. á Eg- ilsstöðum sem sér um bygginga- framkvæmdir. Verkið var boðið út sl. haust, en gert var ráð fyrir að önnur íbúðin yrði kláruð að þessu sinni ásamt sökkli undir hina íbúð- ina. Tilboðið hljóðaði upp á tæpar 7,2 milljónir. Kostnaðaráætlun var 9.1 milljón. Að sögn Magnúsar Ástráðssonar hjá Húsiðjunni miðar verkinu vel en samkvæmt samningi á að afhenda íbúðina í desember. MM A myndinni eru þeir Jón Kr. Jónsson, Magnús Ástráðsson og Amór S. Einarsson en þeir hafa verið að reisa parhúsið fyrir Þroskahjálp í vetur. fyrir þann tíma. Vinnustöðvunin nær til hraðfrystihússins og loðnufryst- ingar auk verslana. Kaupfélag Fá- skrúðsfirðinga er stærsti vinnuveit- andinn á Fáskrúðsfirði. Fundur hefur verið boðaður í dag 16. febrúar á Egilsstöðum með sáttasemjara sem kemur austur gagngert til að reyna að leysa deiluna, en þá verður ekki nema einn sólarhringur í boðað verkfall. Ef af verkfalli verður, mun það koma sér mjög illa fyrir Kaupfé- lagið þar sem loðnufrysting er í Ung kona frá Ghana pakkar síld úr tœkinu í 10 kg öskjur til útflutnings. Mynd: SA þann veginn að hefjast. Verkalýðs- og sjómannafélögin á staðnum sömdu fyrr á þessu ári við Goðaborg og Sólborgu. MM Nýlega var byggt yfir þróarrýmið á Eskifirði Þar með komast fuglar ekki lengur í hráefnið. og þakið með þeim stærri á Austurlandi. Austram. MM iC ’WÍS-*- KHB selur 5 fasteignir á Borgar- fírði eystra Kaupfélag Héraðsbúa hefur selt 5 fasteignir til Borgar hf. á Borgar- firði eystra. Borg hf. er hlutafélag sem er að mestu í eigu Borgarfjarð- arhrepps. Stjómir félagana undirrit- uðu kaupsamninginn síðastliðinn fimmtudag í Hreppstofunni á Borg- arfirði. Kaupverð er að mestu greitt með yfirtöku áhvílandi veðlána. Eft- ir þessa sölu á kaupfélagið aðeins eina fasteign á Borgarfirði sem er verslunarhús félagsins á staðnum. Að sögn Magnúsar Þorsteinssonar oddvita Borgarfjarðarhrepps er ekki búið að ákveða hvað verður gert við þessar eignir, sem eru frystihús, fiskverkunarstöðin Kögur, síldar- verksmiðja og söltunarstöð. Þrjú ár era síðan síðast var unnið í frysti- húsinu. Mögulegt er að þessar eign- ir verði seldar eða leigðar út. Kaup- félagið mun hafa leigt eitthvað af þessum húsum heimamönnum að undanfömu. MM Stefnir í verkfall á Fáskrúðsfirði Byggingu fyrir Þroskahjálp miðar vel

x

Austri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.