Austri - 19.09.1996, Side 8
öryggi Jafnþrýstibúnaður
Stundvfsi
Þjónusta
Þægindi
Ávallt þrír í áhöfn
Aukin þjónusta
Vetraráætlun
15 ferðir á viku
Vetraráætl un
mán.-laug. morgun/kvöld
f i m. morgun. / miðd. / kvöld
sun. hádegi/kvöld
15 feráir á viku
FLUGLEIÐIR
Þjóðbraut innanlands
Hundar leita að fólki
240
Fyrirhuguð er uppsetning á 240 m
háu útsendingarmastri fyrir lang-
bylgju á Eiðum. Þetta er hluti af end-
umýjun á langbylgjukerfi Ríkisút-
varpsins. Ætlunin er að kaupa tvo
nýja langbylgjusenda, annan til upp-
setningar á Eiðum og hinn á Gufu-
skálum.
Mastrið sem er nú á Eiðum er
u.þ.b. 75 m hátt og mannvirkið sem
fyrirhugað er að setja upp því umtals-
vert meira. Betra er að hafa mastrið
hærra þar sem styrkur útsendingar-
innar eykst og sú orka sem í haná fer
nýtist betur.
Búnaður mastursins er keyptur frá
Harris Corp. Brodcast Division í 111-
inois, Bandaríkjunum. Þeir framleiða
Hver man ekki eftir lögreglu-
hundinum Rex? Hann er feikilega
klár og aðstoðar eiganda sinn við
úrlausn hinna erfiðustu mála.
En það er ekki bara í sjónvarpinu
sem hundar nýtast við úrlausn erf-
iðra viðfangsefna. Notkun leitar-
hundar við björgunarstörf hér á
landi er sífellt að aukast og hafa
hundamir heldur betur sannað gildi
sitt.
Nú stendur yfir námskeið í þjálf-
un leitarhunda við Eiða á Héraði.
Þama er samankomið fólk úr öllum
landsfjórðungum með hunda sem
hlotið hafa mismikla þjálfun. Þjálf-
arar eru þrír Skotar sem hafa víð-
tæka reynslu í þessum efnum.
Hundarnir eru þjálfaðir í víða-
vangsleit og er námskeiðið, að sögn
Baldurs Pálssonar, björgunarsveitar-
m mastur á Eiðum
sendana sem hingað koma en loftnet-
in fá þeir frá undirverktaka. Að sögn
Kristjáns Benediktssonar, verkfræð-
ings hjá RÚ V, varð nokkur rekistefna
vegna útboðsins á þessum búnaði.
Þrjú fyrirtæki buðu í hann, tvö banda-
rísk og eitt franskt. Eins og áður sagði
var tilboði annars bandaríska fyrir-
tækisins tekið og urðu Frakkamir lítið
hrifnir af því. Þeir kærðu útboðið til
ESA, sem er eftirlitsstofnun með út-
boðum o.fl. á evrópska efnahags-
svæðinu. Þar var kæran að vísu ekki
tekin til greina, en lögfræðileikur
þessi tafði verkið hins vegar nokkuð.
I sumar var svo gengið til samn-
inga við Harris Corp. og er hugsan-
legt að verkið hefjist í haust eða fyrri
hluta næsta árs.
Hæð mastursins gerir það að verk-
um að hætta getur skapast fyrir flug-
umferð. „Oll möstur geta verið hættu-
leg fyrir flugumferð, sama hvar þau
em. Við emm hins vegar með sam-
þykki flugmálayfirvalda fyrir þessu
mastri á þessum stað, að því tilskildu
að það verði fullnægjandi lýsing á
því,“ segir Kristján. Flugmálastjóm er
hins vegar ekki búin að útfæra ná-
kvæmlega hvemig ljósabúnaði mast-
ursins skuli háttað. A síðustu árum
hefur verið farið út í að setja upp hvít
blikkandi ljós á möstur og er ekki
ólíklegt að sú leið verði farin.
Uppsetning mastursins er talsvert
fyrirtæki og þar sem veður em oft vá-
lynd í ársbyrjun er ekki líklegt að
veður leyfi framkvæmdir þá. Þó getur
verið að byrjað verði á einhveni jarð-
vinnu í haust.
Fellabæ
Sími 471 1623
Fax 471 1693
Ný Garðey
frömuðar, eitthvert hið stærsta sem
haldið hefur verið í víðavangsleit.
Þjálfað er eftir sérstöku kerfi sem
Skotamir hafa lagt mikla rækt við.
Valgeir Rúnarsson, Björgunar-
sveitinni Ingólfi, segir að þjálfað sé
í öllum stigum úttektar. C- úttekt er
grunnþjálfun, B-úttekt er millistig
þar sem hundar eru skráðir á
vinnulista og A-út- __________
tekt fá útkallshund-
ar sem hlotið hafa
toppþjálfun. A
þessu námskeiði er
mest af C- og B-
hundum og ætti að
vera hægt að kalla
út hluta þessara
hunda eftir nám-
skeiðið.
Þarna eru t.d.
tveir hundar af
Seyðisfirði, en þar
hafa ekki verið stað-
settir leitarhundar
hingað til.
Á námskeiðinu eru 25
manns og 19 hundar.
Leitarhundum hefur
fjölgað á undanförnum
árum, meðal annars
vegna þeirra atburða sem
gerst hafa á Vestfjörðum.
Steinar Gunnarsson,
Skagfirðingasveit, segir
að allflest kyn séu nýtileg
sem leitarhundar. Algeng-
ust séu þýskir fjárhundar,
labrador og border-collie.
Á þessu námskeiði eru tveir ís-
lenskir fjárhundar og virðast þeir
koma bærilega út þó að of snemmt
sé að meta það. Steinar segir að
ræktun þeirra þurfi að bæta til að
þeir verði hæfari til þessa starfa, en
hæfileikar hvers einstaks hunds séu
þó misjafnir.
Garðey hf. á Höfn í Homafirði
hefur keypt nýtt skip. Skipið er tæp
200 tonn og var keypt af Jökli á
Raufarhöfn. Það er ekki alveg
ókunnugt á Höfn, en þar hefur það
verið áðurog hét þá Ásgeir Guð-
mundsson og var í eigu Guðmund-
ar Eiríkssonar.
Skipið er smíðað 1965 í Austur -
Þýskalandi. Það fer nú á línuveið-
ar. Garðey hf. átti áður Andey og
var kvótinn af því skipi færður yfir
á nýju Garðeyna, auk þess kvóta
sem var á gömlu Garðeynni.
Nýr slökkvibíll á Höfn
Slökkviliðið Hornafjarðar hefur
eignast nýjan slökkvi- og björgunarbíl.
Keyptur var Benz- sendibíll, fjórhjóla-
drifinn, og síðan byggt inn í hann á
staðnum. Ragnar Imsland, eldvarnar-
eftirlits maður, sá að mestu um það
verk.
í bílnum eru klippur, reykblásarar,
loftpúði, rafstöð, reykköfunartæki,
slöngur, stútar og allt tilheyrandi. I
bílnum eru búningar fyrir átta manns
og fjögur sett af reykköfunartækjum.
Þá er vatnsdæla framan á bílnum og á
henni tvö 2 V2 tommu úttök.
Slökkviliðið átti fyrir einn Scania-bíl
með 10.000 lítra vatnstanki og er mið-
að við að þessir tveir bílar verði sendir
út fyrstir ef sinna þarf slökkvistörfum.
Auk þess eru tveir forngripir í flotan-
um, gamall Bedford og Chevrolet ‘41.
Nýi bíllinn er í raun viðbót við flot-
ann, þó að verið sé að afskrifa Bedfor-
dinn smám saman. Þessi bíll er líka vel
búinn til ýmissa björgunarstarfa.
Steinþór Hafsteinsson, slökkviliðs-
stjóri, segir að sem betur fer hafi lítið
verið um útköll upp á síðkastið. Þau
hafi hins vegar farið upp í 10 á ári þeg-
ar mest er. Svæðið sem sinna þarf er
talsvert stórt, öll Austur-Skaftafells-
sýsla. Dælur eru staðsettar bæði í Ör-
æfum og Suðursveit. Á Fagurhólsmýri
er dæla, auk þess sem þar er gamall
Bedford, en ef fara þarf t.d. í Skaftafell
frá Höfn er það um 140 km leið. I aust-
urátt er svo lengst að fara um 50 km. í
sveitunum er einnig varalið til taks og
er hugmyndin að það geti haldið eldi
niðri á meðan liðið frá Höfn kemst á
staðinn.
Mikill munur er fyrir íbúa Austur-
Skaftafellssýslu að fá þennan bfl, sér-
staklega þar sem enginn tækjabíll var
fyrir í sýslunni.
-4'
HRAÐ mynd
Egilsstöðum, sími 471-1777
Opnunartími:
mánud. - fimmtud. kl. 9-12:10 og 12:50-18.
Föstud. kl. 9-12:10 og 12:50-19.
Laugard. kl. 10-14.
Eitt verð - margir moguieikar
‘:/\z