Austri - 13.02.1997, Blaðsíða 8
Öryggi
Stundvísi
Þjónusta
Þægindi
Ávallt þrír í áhöfn
Aukin þjónusta
Helgarfargjöld fyrir hópa frá Reykjavík
Munið Gjugg í Borg og Bæ
15 ferðir á uiku
Þjóðbraut innanlands
Afmæl-
issundið
vinsælt
Þáttakendur í afmælissundinu,
sem Sundlaug Egilsstaða heldur í
tilefni af 50 ára afmæli bæjarins, eru
nú komnir á annað hundraðið. Fékk
hundraðasti þátttakandinn, Erla Sig-
rún Einarsdóttir, óvænt afhentan
Skrifstofa
ASA til
Eski-
fjarðar
Um síðustu áramót flutti Al-
þýðusamband Austurlands
bækistöðvar sínar frá Neskaup-
stað til Eskifjarðar, þar sem það
hefur opnað skrifstofu í húsi
Verkalýðsfélagsins Árvakurs að
Botnabraut 3. Skrifstofan er
opin fyrir hádegi frá mánudegi
til föstudags, nema á miðviku-
dögum, en þá er hún einnig
opin eftir hádegi. Auk Sigurðar
Ingvarssonar, forseta ASA,
vinnur á skrifstofunni ritari í
hálfu starfí.
Hreinn Halldórsson, forstöðumaður íþróttamannvirkja, afhendir Erlu Sigrúnu Ein-
arsdóttur, hundraðasta þátttakandanum íafmælissundinu, blómvönd.
blómvönd af þessu tilefni. Afmæl-
issundið hefur aukið til muna sund-
áhuga bæjarbúa. Mæting í morgun-
sund er svipuð og verið hefur, en
aðsókn hefur stóraukist seinni part
dags og á kvöldin. Afmælissundið
hófst 1. febrúar og stendur til 24.
maí. Verða nöfn allra sem mæta í
sund 50 sinnum eða oftar sett í sér-
stakan pott og úr honum dreginn
verðlaunahafi.
Norðfjarðar-
kirkja 100 ára
Norðfjarðarkirkja er 100 ára um
þessar mundir. Hún var vígð
snemma árs 1897 og sunnudaginn
16. feb. kl. 14:00 verður haldin há-
tíðarguðsþjónusta í tilefni af þess-
um tímamótum.
Séra Sigurður Sigurðsson,
vígslubiskup í Skálholti, mun
predika, Ingveldur Hjaltested
syngja einsöng og Halldóra Hall-
dórsdóttir leika á þverflautu. Fleiri
góðir gestir eru væntanlegir þenn-
an sunnudag og má þar m.a. nefna
séra Svavar Stefánsson, sem var
sóknarprestur í Norðfirði um
margra ára skeið.
Að lokinni guðsþjónustu verður
kirkjukaffi í safnaðarheimilinu og
sjá safnaðarkonur og kvenfélags-
konur um það.
Verið að bora um
Starfsmenn Jarðborana hf. standa
í heilmiklum framkvæmdum hér á
Austurlandi um þessar mundir. Nú
er verið að bora eftir neysluvatni á
Reyðarfirði, en hola sem þar er fyr-
ir er orðin 32 ára gömul og södd líf-
daga, að sögn ísaks Ólafssonar bæj-
arstjóra.
Þá ætla fiskvinnslufyrirtæki á
staðnum, Kambfell og SR-mjöl, að
láta bora fyrir sig holur í sjó, en Ás-
geir Margeirsson, tæknistjóri Jarð-
borana, segir að fyrirtæki láti víða
bora slíkar holur fyrir sig. Einnig
stendur til að bora slíkar holur í
Neskaupstað og á Eskifirði. Fisk-
vinnslufyrirtækin vantar sjó til að
fleyta loðnu og sfld í gegnum flokk-
unarlínumar hjá sér.. Ekki samræm-
ist kröfum nútímans að taka sjóinn
úr flæðarmálinu, en með bomn fæst
hann síaður og hreinn. Holurnar,
sem verið er að bora hér nú, em 20
sm víðar og 18-20 m djúpar.
Ásgeir segir þessa tækni vera
orðna vel þróaða og mun fljótlegra
að bora en áður. Um 1-2 dagar fara í
borun hverrar holu og kostar hver
hola í kringum 350 þús. kr., fyrir
utan skatt.
Séu borholumar vel nýttar, endast
þær, að sögn Ásgeirs, nánast um
aldur og ævi, þ.e. þangað til að jarð-
fræðin á svæðinu fer eitthvað að
breytast, eða úrkoma breytist vem-
lega. Líftími mannvirkisins sjálfs er
hins vegar 2-4 áratugir, því að rörin
í holunum tærast.
Leitað hefur verið að jarðhita í
Austur-Skaftafellssýslu og segir
Ásgeir að menn telji rétt að kanna
aðstæður betur á nokkmm stöðum.
“Víða á Austurlandi mun verða
leitað að jarðhita, þegar tímar líða,”
segir Ásgeir.
Kortagerð-gervi-
tungl
Verkfræðistof-
an Hönnun og
ráðgjöf hefur ný-
lega tekið í notk-
un ný GPS-mæli-
tæki til landmæl-
inga. Tækin bjóða
upp á nýja og
áður óþekkta
möguleika við
kortagerð og
landmælingar og
mun meiri ná-
kvæmni en áður
hefur þekkst.
Björn Sveins-
son, starfsmaður
Hönnunar og ráð-
gjafar, segir tækið
virka þannig að
það nemi merki
frá gervihnöttum,
minnst 3-4 í einu
og allt upp í 7-8,
eftir því hve mörg
tungl sjáist. Tvö
eða fleiri tæki em
notuð í einu og sé
eitt þeirra í þekkt-
um GPS-punkti,
er hægt að ná
þessari miklu nákvæmni í hæð og
staðsetningu á punktum. Það þýðir
að skekkjur verða mjög litlar. Hægt
er að nota tækið bæði til að leiðrétta
loftmyndir og eins til að kortleggja,
en þá geta menn t.a.m. sett tækið á
fjórhjól og ekið um landið sem á að
kortleggja. Punktar em teknir, t.d. á
5 sek. fresti og út frá því er hægt að
Bergsteinn Hilmar Metúsalemsson og Björn Sveinsson,
starfsmenn HOR, að stilla tœkið góða. Austram. sbb.
búa til líkan af landinu, reikna hæð-
arlínur o.s.frv.
Björn vildi láta það koma fram,
að vænta má að loftnet þessi sjáist í
notkun á stöðum hér á Austurlandi í
náinni framtíð og mælist til þess að
menn komi ekki nálægt þeim, þar
sem þeir geta þá skyggt á merki frá
gervitunglunum og eyðilagt mæl-
inguna.
Tæki þessi eru framleidd af
Trimble Navigation í Bandaríkjun-
um, en það fyrirtæki er þekkt fyrir
framleiðslu á siglingatækjum.
Jarðboranir hf. eru víða að bora
eftir neysluvatni, leita að jarðhita,
gera rannsóknir í grjótnámi o..s.frv.
Fyrirtækið á 8 bora og em 4 í gangi
innanlands þessa dagana og einn í
útlöndum. Hann er á Asóreyjum við
bomn eftir neysluvatni.
r
\
olís
Fellabæ 1
Sími 4711623
Fax471 1693 _y
% Eldhús- og baðinnréttingar Trésmiðja
* Fataskápar Guðna J. Þórarinssonar
Másseli, sími 471-1093
* Útihurðir o.fl.
Ódýrasta frainköllun á Austurlandi
Kynnið ykkur tilboðin
O klst. Strax 1.254 kr. (24 myndir) á Royal pappír
H RAÐ mijná dagar Hagkvæmt 990 kr. (24 myndir) á Royal pappír
o dagar Ódýrast 690 kr. (24 myndir)
Ljósritum myndir. Stækkum - minnkum í lit og svarthv.
- einnig á boli og glærur_____
Egilsstöðum, sími 471-1777
Opnunartími:
Mánud. - fimmtud. kl. 9-12:10 og 12:50-18.
Föstud. kl. 9-12:10 og 12:50-19.
Laugard. kl. 10-14.
Gottverð
Kodak gœði
Þinnhamr
Nýtið ykkur afsláttarkortin
L L ‘ - w
s t 6 u t c| •[ y e- f o s s s