Austri


Austri - 15.01.1998, Blaðsíða 2

Austri - 15.01.1998, Blaðsíða 2
2 AUSTRI Egilsstöðum, 15. janúar 1998 Ný stefna í vegamálum Vegaáætlun hefur verið lögð fram á Alþingi. Að þessu sinni telst framlagning hennar til meiri tíðinda en venjulega vegna þess að nú er gert ráð fyrir að langtímaáætlun verði til umræðu sem markar stefn- una í vegagerð til ársins 2010. Vegaáætlunin er því tvíþætt. Annars vegar endurskoðun næstu fjögurra ára, og skipting verkefna á það tímabil. Hins vegar langtímaáætlun þar sem gert er ráð fyrir að nálg- ast verkefnið með nýjum hætti. Skipting á einstök verkefni árið 1998 liggur fyrir, en árið 1999 er gert ráð fyrir að ný skipting taki gildi sem byggist á nýjum skilgreiningum verkefna. Það er fólgið í því í fyrsta lagi að leggja bundið slitlag til allra þétt- býlisstaða sem telja yfir 200 íbúa, og tengja nálæga byggðakjama með fleiri en 1000 íbúa, endurbæta ferðamannaleiðir með mikilli um- ferð, endurbyggja brýr sem ekki þola fullan Evrópu þunga, breikka vegi með mikla umferð til þess að auka umferðaröryggi, endurbyggja hættulega kafla og breikka brýr á vegum með mikilli umferð. Kostnaður við þessar aðgerðir er mestur á Austurlandi, Norður- landi eystra og Vestfjörðum. Reiknað er með því að á áætlunartímabilinu verði nokkrum fjár- munum óskipt til þess að auka sveigjanleika í áætluninni. Sömuleið- is að hægt sé að færa, tímabundið, úr stórverkefnum til annarra að- kallandi verkefna. Fyrir Austurland myndi samþykkt vegaáætlunarinnar þýða að lok- ið yrði, á áætlanatímabilinu, tengingu norður í land að Jökuldal með- töldum og um Vopnafjarðarheiði, og tengingu um Fjarðaleiðina suð- ur um land. Nauðsyn er einnig að bæta vegasambandið um Breið- dalsheiði og ekki er hægt að skilja við þetta mál án þess að fyrir því sé séð með þeim möguleikum sem sveigjanleiki áætlunarinnar felur í sér. Inn í þessum áætlunum er gert ráð fyrir áframhaldandi framlögum til jarðgangnarannsókna, en að jarðgangnagerð sé sjálfstæð ákvörðun sem myndi þá krefjast ákvarðana um fjáröflun fyrir utan þann ramma sem lagður er í áætluninni. Ahersla skal lögð á það að vinna ber áfram að því að ákveða hvar skal hefja jarðgangnagerð á Austurlandi og samþykkt breyttra áherslna í almennri vegagerð á ekki að breyta neinu þar um. Með þessum fyrirvara um jarðgangnagerð og vegagerð um Breið- dalsheiði er ljóst að langtímaáætlun ef hún verður samþykkt og eftir henni farið horfir til framfara fyrir Austurland. Það er afar mikil- vægt að haldið sé við þær áætlanir sem upp eru settar, hvað varðar framkvæmdamagn þótt utanaðkomandi ástæður geti valdið því að ástæða sé til áherslubreytinga. Því er nauðsyn að áætlunin verði af- greidd nú í vetur á Alþingi, og það er ljóst að ekki er eftirsjá fyrir Austfirðinga að hinni gömlu skiptingu vegafjár milli kjördæma og mál til komið að nýjar áherslur komi til. J.K. Framsóknarfélag Egilsstaða Félagsfundur í Framsóknarfélagi Egilsstaða verður haldinn í Austrahúsinu (fundarsalur í kjallara) laugardaginn 17. janúar 1998 kl.: 13:00 Dagskrá: 1. Sveitarstjórnarkosningar í vor (Hvernig skal standa að uppstyllingu á framboðslista) 2. Önnur mál Fundurinn er opinn öllum sem áhuga hafa á málefninu. Fólk úr öllum sveitarfélögum sem sameinast er hvatt til að mæta. Stjórnin Karlar verða að leyna karl- mennsku sinni í starfínu - umhverfið er orðið svo mjúkt! Nú stendur yfir námskeið í Kenn- araháskóla íslands um karlmennsku í grunnskólum. Það eru karlkyns nemendur á þriðja ári í skólanum sem sækja námskeiðið, en hug- myndin að því er komin frá Jóni Guðmundssyni, kennara á Hall- ormsstað. Körlum fer mjög fækkandi í kennarastétt og nú em tæplega 20% nemenda í KHI karlar. Flestir bera því við að laun kennara séu svo slæm og það sé aðalástæða þess að þeir vilji ekki fara í kennslu, en svo em aðrir sem halda því fram að fleira hangi á spýtunni. Umhverfið í grunnskólum landsins sé orðið þannig að karlar eigi erfitt með að vera þeir sjálfir, séu nauðbeygðir til að samsamast því mjúka umhverfi sem meirihluti kennara, konur, hafi skapað þar. Bent er á að nemendur hafi ekki gott af því að alast upp við einslitt kynjaumverfi, þar sem annað kynið sé í miklum meirihluta og munurinn á framkomu karla og kvenna sé lítill. Auk þess sem fyrirmyndir t.d. bama einstæðra mæðra séu nánast eingöngu konur á meðan þau eru á leikskóla og svo í gmnnskóla. Hvað er karlmennska? Jón Guðmundsson segir menn að sjálfsögðu leggja mismunandi merkingu í hugtakið karlmennsku og það flæki málið. „Ég var í við- tali á Bylgjunni um daginn og for- málinn að því var þannig að kunn- ingi minn hélt að það ætti að fara að tala við einhvem jaxl. Svo kom ég bara og það fannst honum ekki mikið karlmenni. Karlar verða að vera sýnilegri. Kennari í skóla þarf ekkert að fara í felur með það þó hann hafi áhuga á jeppum, skytteríi, enska boltan- um eða öðru sem konum finnst oft bara vera framlenging af bernsk- unni. Það er eins og þær séu með hin stóm vandamál heimsins á sín- um herðum, af því að karlinn taki aldrei ábyrgð á þeim. Hann er alltaf að leika sér.“ Jón segir þessa umræðu líka tengjast stöðu stráka í grunnskólum, menn spyrji sig hvort það væri t.d. betra fyrir baldna stráka að vera hjá karlkennara en konu. Myndu þeir frekar samsama sig honum? Fela jeppatal Einar Sveinn Ámason, skólastjóri Gmnnskólans í Neskaupstað, hefur skoðað þessi mál nokkuð, þar sem hann var í karlanefnd Jafnréttisráðs, en segist ekki hafa geta rökstutt mál sitt með neinum vísindalegum nið- urstöðum. „Það er nokkuð ljóst að kynin glíma ólíkt við einstaklinga, og þá er ég ekki að dæma hvort er betra eða verra, en nálgunin er ólík. Það þýðir að kennsluaðferðir verða alltaf svolítið öðmvísi." Hann tekur undir að leið kvenna við kennslu hafi orðið ofan á og það geti verið erfitt fyrir karlkennara að vera orfur- seldur mati kvenna á hvemig eigi að gera hlutina. Þetta eigi sérstaklega við um þá sem kenna yngri bömum, þar sem konur hafa í flestum tilfell- um séð um kennslu barna á fyrri skólastigum. Það hefur heyrst að skortur á karl- fyrirmyndum í skólakerfinu hefti stráka í gmnnskólunum, geri þeim erfiðara að aðlaga sig að skólanum. „Maður veit ekkert um þetta. Mæð- ur hafa alið upp stráka alla tíð, og menn geta deilt um hvort þeim hefur tekist það vel eða illa. Ég vil alls ekki gera lítið úr gæðum kvenkenn- ara, því þær hafa nú haldið skólun- um gangandi.“ Hann segir að ung- lingsstrákar sem hafa komist upp með að vaða yfir allt og alla veigri sér frekar við því að vaða yfir karl- kennara, sem kannski láti ekki bjóða sér jafn mikið og konumar. „Það er ofboðslega óhollt fyrir stráka að komast upp með valdbeitingu.“ Karlar flýja gjarnar úr kennara- starfinu vegna launa, þó að það sé varla eina skýringin á fækkun í stétt- inni. „Það er mikill galli fyrir karla að kvennalaunum skuli vera haldið niðri, það heldur okkur úti á vinnu- markaðnum þar sem við vinnum langan vinnudag, kannski í tvöföldu starfi. Því fáum við ekki að njóta þess að vera með bömunum okkar?“ Einar segist sammála því að karl- ar í kennarastétt séu farnir að fela ýmislegt sem flokkast undir hefð- bundna karlmennskuskilgreiningu, s.s. jeppatal o.fl. „Það em allt aðrar umræður hér í Nesskóla en t.d. upp í Verkmenntaskóla þar sem karlar em í miklum meirihluta." Hann segist ekki leggja mat á hvomm staðnum umræðan er gáfulegri, en „karlamál" séu ekki í hávegum höfð á kennara- stofum þar sem konur eru í meiri- hluta. Það vanti töluvert á að kynin hafi umburðarlyndi fyrir áhugamál- um hvors annars, best væri að þau gætu tekið fordómalaust þátt í um- ræðum, hvort sem þær fjalla um bleiuskipti eða enska boltann. Einar telur að strákar geti fengið mjög brenglaðar hugmyndir um karlmennsku ef þeir sjá enga karla í skólunum, þar sem stór hluti upp- eldisins fer orðið fram. „Maður er hræddur um þessa stráka sem skerp- ast allir í einhverju karlmennskuæði, sjá aldrei neina karlmenn nema þennan sem er með nærbuxurnar utan yfir buxumar og flýgur út um allt. Eða þá sem drepa fjölda manns með einu kjaftshöggi. Þetta eru kannski krakkar sem eiga pabba sem búa allt annars staðar á landinu og sjá þá aldrei. Hluti af bamapíun- um er vídeótækið og ég hef mestar áhyggjur af því að þau sjái aldrei karla sem bregðast við á eðlilegan hátt, og ráða meira að segja ekki við öll vandamál." Harði karlinn á erfitt uppdráttar Sigurður Friðleifsson, kennari í Vopnafjarðarskóla segir karla vera í miklum minnihluta meðal kennara skólans. Skólastjórinn er karlmaður og auk hans eru 2 aðrir karlar í 11 manna kennaraliði skólans. Hann segist sammála því að hin hefð- bundna karlmennskuímynd eigi ekki upp á pallborðið í skólastarfinu, en telur þó að starfsumhverfið skapi menn sér mikið til sjálfir í kennsl- unni. „Harði karlinn á frekar erfitt uppdráttar í skólakerfinu í dag,“ seg- ir Sigurður. „Menn verða að halda karlmennsku sinni niðri, en það er ekkert sem aftrar mér í starfi. Samt myndi ég skilja ef það gerði það hjá einhverjum karlkennumm.“ Auglýsingasími Austra er 471-1600 Margir telja að nemendur hafi ekki gott afþví að alast upp við einslitt kynjaumverfi, þar sem annað kynið sé í miklum meirihluta. Körlum fer ört fœkkandi í stétt grunnskólakennara og fyrir vikið fer að vanta sárlega karlímyndir íþessar stofnanir.

x

Austri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austri
https://timarit.is/publication/792

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.