Samtökin '78 - Sjónarhorn - 15.08.1993, Blaðsíða 3

Samtökin '78 - Sjónarhorn - 15.08.1993, Blaðsíða 3
SJÓNARHORN 3 27. júní 1993 Hýr - skýr - og greinileg eftir Margréti Pálu Ólafsdóttur f hinum stóru útlöndum hafa víst lesbíur og hommar stormað í fjöldagöngur ár eftir ár, oftast nær þann 27. júní og undir slagorðum og gunnfánum Gay Pride eða hinnar stoltu samkynhneigðar ... „Stolt samkynhneigð" er náttúr- lega slík afburða smekkleysa í þýðingu að hún ein og sér hefði getað haldið Samtökunum 78 frá fjöldagöngum á þessum alþjóð- lega baráttudegi. Síðasta sumar var alla vega látið duga að halda upp á daginn með pylsugrilli bak við hús á Lindargötunni - en ég get þó ekki fullyrt að það hafi ein- göngu verið vegna örðugleika við þýðingu á slagorðinu Gay Pride. Slík fullyrðing væri gróf ögrun við allan þann fjölda orðsins kvenna og manna sem skipa félagslista umræddra samtaka. Hýrt og skýrt bíó Árið 1993 fannst þýðing sem dugði. Hýr og skýr varð að veru- leika og nú skyldi íslenska þjóðin geta státað af Gay Pride degi eins og aðrar siðmenntaðar þjóðir. Gleði mín var umtalsverð. Grill- veislur kvaddar að sinni. Pólítísk meðvitund dregin að húni eftir að hafa verið í orlofi á ögurstundum og öðrum baráttudögum svo sem í maíbyrjun þessa árs. Mæting í Húsinu fyrir fjöldagöngu. Loforð um samkynhneigt bíó - eða var það Hýrt og skýrt bíó. Móttaka fyr- ir félagskonur og félagsmenn ásamt vinum, velunnurum, fjöl- skyldum, frændliði, stjórnmála- fólki, fjölmiðlafólki og öðru fólki í Húsinu eftir að hinni opinberu aðgerð væri lokið. Hún er eins og fískur án reiðhjóls Og við hjónumar lögðum af stað ásamt vini og velunnara, enda vik- an skipulögð með það eitt fyrir augum að taka þátt í fyrstu opin- bem fjöldagöngu lesbía og homma á Islandi. Fyrsta ánægju- stundin var að fá ekki stæði við Húsið og sú næsta að komast vart inn úr dyrunum. Allt stefndi sem sagt í alvöru fjöldagöngu og sú varð raunin. Á auglýstum tíma skondraði hópurinn af stað með bleikar veifur, bleikar blöðrur og kröfuspjöld sem undirbúnings- nefndin hafði af fyrirhyggju sinni útbúið fyrir þátttakendur. Kröfur dagsins sýndust tvíþættar; annars vegar var róið á mið félagslegra réttinda og krafist húsnæðisörygg- is, atvinnuöryggis og annars ör- yggis. Hins vegar voru flóknari kröfur hugmyndafræðilegs eðlis svo sem Maður er manns gaman og Kona án karlmanns er eins og fiskurán reiðhjóls. Fyrirgöngunni töltu þau Lilja og Árni Glóbó með nafn Samtakanna 78 á borða svo og heiti dagsins Hýr og skýr, enda er það heiti einstaklega lýsandi og opinberandi fyrir allan almenning til að glöggva sig á málefnum lesbía og homma. í ljós kom að 66 fólk hafði tekið þátt í göngunni - eða svo sagði Guðrún Gísla með þeim fyrirvara um talningu sína að hún sæi reynd- ar tvöfalt þegar hún horfði á sumar konur. Talningin var þó tekin góð og gild. Yngra fólkið í Samtökun- um var fjölmennt - gamla 68-kyn- slóðin var fámenn, enda slíkt fólk orðið aldrað og komið að fótum fram. Sami fjöldi sótti síðan sýning- una í Regnboganum á myndinni um líf Harveys Milk þar sem póli- tísk vitund og samstaða ásamt ein- urð hins Friskóska forystusauðs framkallaði gæsahúð á þeirri al- mennu félagskonu sem þetta ritar. Sú hin sama saknaði nefnilega sinna forystuáa og -sauða til að vita gjörla um kröfur Samtakanna svo vér gætum lagt vort af liði fyrir guð og ættjörðina. Með bakkasystrum og bakkabræðrum Ekki skal kampavínið lastað né heldur frammistaða bakkasystra og bakkabræðra við að koma því í hendur fólks. Að vísu var hvorki ræðuhöldum og hvatningarorðum fyrir að fara til að spilla tíma fólks við skálamar, enda ef til vill óþarft að trufla fólk við sína iðju. Loks skal nefnt að klukkan sex komust félagar að raun um að skemmtistað vantar sárlega og hið snarasta fyrir lessur og homma til að halda fagn- aðaraðgerðum áfram þegar enginn er til að annast húsvörslu. 27. júní 1993 var einstæður dagur - tímamótadagur sem gleymist engum þeim sem gekk með. Mættum við fá að ganga sem oftast og sem flest - og smátt og smátt bæta því sem upp á vantaði við þann undirbúning og óbilandi bjartsýni sem örfáir félagar sýndu með því að skipuleggja þennan dag. Takk - og til hamingju. Gústaf Gísli Þorvarðarson 1963 - 1993 Kveðjafrá Jóku og Lönu tárin eru sölt líkt og hafið sem oftast skildi okkur að mávarnir vagga letilega yfir öldunum við Hornafjarðarós líkt og frændur þeirra við Eyrarsund nú ertu kominn heim síðasta áfangann fórstu fljúgandi brosandi með blik í auga alltaf gefandi „við sjáumst“ sagði ég og þú faðmaðir mig þögull beiðstu þess sem koma skyldi en alltaf gefandi eldurinn brenndi hverja taug en flug andans hélst óskert nú ertu kominn heim elsku vinur minn nú ertu kominn heim . . . Lana Kolbrún Ljósmynd: Bára

x

Samtökin '78 - Sjónarhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtökin '78 - Sjónarhorn
https://timarit.is/publication/1491

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.