Samtökin '78 - Sjónarhorn - 15.08.1993, Qupperneq 6

Samtökin '78 - Sjónarhorn - 15.08.1993, Qupperneq 6
6 SJÓNARHORN Alkohólismi og samkynhneigð í fastri sambúð við óttann „Ég heiti Katla og ég er alkohólisti og lesbíau. Stutt setning, sögð á AA-fundi homma og lesbía segir langa sögu - sögu af djúpri þjáningu og síðar af miklum sigrum. Við höfðum þekkst í nokkur ár, ég hafði dáðst að þessari ungu, reiðu konu og fundið í henni einhvers konar samsvörun við mína eigin reiði. Svo var Katla líka orðheppnari en allt sem heppið er. En það er stundum sitthvað - heppni og hamingja. Dag nokkurn í janúar 1989 hittumst við Katla Sigurgeirsdóttir svo á með- s * ferðarstöð SAA á Sogni og hugsuðum bæði það sama: Hvað ert þú nú að gera hér? Það var þó ekki fyrr en rúmum fjórum árum síðar að við vorum bæði tilbúin að setjast niður og spjalla rækilega saman um hina leyndu þjáningu samkyn- hneigðra alkohólista og aðstandenda þeirra. „Ég veit að ég hljóma eins og rosk- in kona þegar ég segi að í nærri aldarfjórðung lifði ég lífinu í skugga fíknarinnar. Þó er ég ekki nema 34 ára gömul. Ég átti við veikindi að stríða sem lítil stelpa og 6-7 ára gömul var ég á sterkum lyfjum. Þá kynntist ég vímunni og í því ástandi fann ég fyrir öryggi og vellíðan sem ég fékk ekki annars staðar. Um fermingu stundaði ég það að lesa mértil um sjúkdóma og lyfj agjafir til að gera mér upp veik- indi og fá þau lyf sem sem ég vissi að „gerðu mér gott“. Samt gerði ég mér ekki meðvitaða grein fyrir því hvað ég var að gera fyrr en ég var komin á fullorðinsár. Hin eigin- lega þróun alkohólismans hófst mjög snemma þannig að skilyrðin fyrir stjómlausri neyslu vora fyrir hendi í upphafi unglingsáranna. Sextán ára fór ég fyrst inn á með- ferðarstofnun og þær ferðir urðu smám saman fleiri en ég hef tölu á. Frelsið flaug burt Reynsla mín sem alkohólisti og líf mitt sem lesbía - þetta tvennt er svo samtvinnað að ég verð nánast að hafa það í einu orði. Ég var í gagnfræðaskóla þegar ég átti í mínu fyrsta ástarsambandi. Við vorum jafnöldrur og þetta var sam- band án orða - án útskýringa. Það gerðist bara og þar fann ég fyrsta sinn fyrir frelsinu sem ég hef stöðugt reynt að höndla þótt það hafi hvað eftir annað flogið frá mér. Sautján ára tók ég upp sam- búð við mann, en hafði þó þann fyrirvara á við hann að það kynni að taka enda, einhvem tíma fengi ég kjark til að elska konur. Við bjuggum saman í þrjú ár og eign- uðumst dóttur, en ég yfirgaf hann til þess að taka saman við konu. Ég hélt að hún gæti gefið mér styrk til að standa við tilfinningamar en svo varð ekki, við gátum ekki fylgst að á þeirri leið og nú jókst áfengis- og lyfjaneyslan til muna. Síðan hef ég verið í samböndum við aðrar konur, stundum sambúð, en alltaf í skugga fíknarinnar. „Hörðu efnin“ komu inn í mynd- ina og árum saman hafði ég enga stjórn á lífi mínu, sóknin í vímuna stjómaði öllu, og flóttinn undan ábyrgðinni varð gegndarlaus. Það var ekki fyrr en dóttir mín varð ellefu ára að ég ákvað að gefa okkur báðum nýtt líf. Þá var líka fokið í flest skjól, engin meðferð- arstofnun vildi taka við mér leng- ur, ég varð að berjast um á hæl og hnakka, með hjálp AA og góðra vina, og það tókst. Þá var svo kom- ið að lífið var einn endalaus harm- ur - ég vissi varla lengur hvort ég var lífs eða liðin. En þama tók ég í fyrsta skipti mark á tilfinningum mínum og hlustaði á þær. Það var fyrsta batamerkið.“ Geturðu lýst samböndum þín- um við konur á þessum árum, á hverju byggðustþau viðþessarað- stæður sem þú ert að lýsa ? „Sumar kvennanna í lífi mínu hafa líka verið alkohólistar og í þeim tilfellum hafa samböndin varað lengur, vegna þess að leik- hlutverkin bundu okkur saman, hvorugur aðilinn hefur efni á að hreinsa til. En eftir að ég verð betur edrú geri ég mér grei n fyrir h vað ég átti lítið erindi í sambúð á þessum tíma - ég var fullkomlega vanhæf um að axla ábyrgð. Ekki svo að skilja að um fjöllyndi væri að ræða, því þegar sjálfsvirðingin er farin til fjandans þá höldum við oft á tíðum í það eina sem er áþreifan- legt: „Ég hef þó alltaf verið þér trú“ - hvað sem það nú merkir. En í rauninni var ég aldrei með þess- um konum, því árum saman var ég í fastri sambúð við óttann sem stöðugt fylgir vanmætti al- kohólistans og kom ævinlega í veg fyrir að ég gæti lagt það í lífið sem til þurfti.“ Endalaus skilyrði Hvers konar sambönd eru þetta þá? „Ég get varla kallað þetta ástar- sambönd þótt þau gangi undir því nafni, en vissulega elskaði ég þess- ar konur engu að síður. Meinið var bara það að þau byggðust á enda- lausum skilyrðum þar sem sektar- kenndin hafði völdin og það er einmitt það sem gerði þau sjúkleg. Það sem ræður ferðinni í svona samböndum er sektarkenndin en ekki gjöf ástarinnar, ef ég má nota svo hátíðlegt orðalag um það besta sem ég þekki. Við þetta má bæta að fjölmörg tilfinningasambönd sem við stofnum til eru tengd vímunni á svipaðan hátt þótt þau nái ekki að þróast á þann háskalega hátt sem þau gera meðal alkohólista. Víman er nefnilega svo ná- tengd ástarsamböndum okkar lesbía og homma, og hvað lesbíur snertir á sinn sérstakan hátt. Ég geri mér ekki grein fyrir hvort það sama á við um homma. En vegna fámennisins hér á landi er mikið um það sem kallað er raðsambönd milli okkar kvennanna. Hugsum okkur fjórar konur sem sitja saman í hóp og þær hafa allar verið pör hver með annarri. Við þær aðstæð- ur getur verið erfitt að vemda einkalíf sitt og hjartans mál, það er lítil virðing borin fyrir þeim, upp- lýsingastreymi er mikið og þessi gömlu sambönd eru illa eða jafn- vel alls ekki frágengin. En þetta flæði er ljótt og það leiðir af sér óöryggi svo erfitt er að treysta öðr- um. Þá emm við eins og í fjötmm og ég spyr: Hvar er frelsið? Það er helst að finna í vímunni, þar getum við svæft tilfinningarnar og við- kvæmnina. Er furða þó að svo margir ánetjist henni meðal okk- ar? I ofsanum sem tengist vímunni gerist allt svo hratt, það er varla að fólk eigi sér tilhugalíf. A örfáum dögum er sambandið orðið eld- gamalt. Við höfum lagt upp í ferð án fyrirheits, illa skóaðar, og ferðalokin verða harkaleg. Af þessu leiðir mikill harmur og ég held að það sé hluti af vítahring samkynhneigðra á Islandi, ekki síst samkynhneigðra alkohólista, því þar er vegið svo harkalega og svo lengi áður en yfir lýkur.“ Flott föt, dýrir bflar, öfgafullt örlæti Mér er það svo minnisstœtt frá þessumárumhvaðþúbarstþigvel, þú varst vel klœdd þegarþú sást úti á lífinu, örlátogþarfram eftirgöt- unum. „Alkohólistar berjast upp á líf og dauða við að halda ímyndinni út á við, þeirri ímynd að allt gangi vel. Það er ekki fyrr en maður er orðinn fársj úkuroghefur ekkert að verja að eymdin blasir fyrst við hinum. Við keyrum svo lengi á út- hverfunni til að sannfæra okkur sjálf um að allt sé í lagi og sendum skilaboð sem við ætlumst til að séu meðtekin. Því sjúkari sem ég var, því meira lagði ég á mig til að sýn- ast, gekk í dýrum fötum, keyrði iðulega á dýrum bílum og stráði peningum í kringum mig þótt eng- um peningum væri svo sem til að dreifa. í þessari sýndarveröld brýst líka út ofuráhersla á kynlíf, það er hluti af vinsældum og áhrifum, og um leið er alkohólistinn í öllum sínum einmanaleika að sanna það fyrir sjálfum sér að hann tilheyri mannkyninu. En hvað sem líður örlætinu, réttu fötunum og öllum þessum skyndikynnum þá myndar enginn tilfinningatengsl í þessu ástandi. I ástum okkar ræður ein- hvers konar jarðýtutækni sem ég beitti sjálf og sé oft líkamnast í öðmm lesbíum. Svo man ég hvernig allt þetta sjónarspil hrundi

x

Samtökin '78 - Sjónarhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - Sjónarhorn
https://timarit.is/publication/1491

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.