Samtökin '78 - Sjónarhorn - 15.08.1993, Side 8

Samtökin '78 - Sjónarhorn - 15.08.1993, Side 8
8 SJÓNARHORN Alkóhólismi og samkynhneigð Þess vegna Flestir hommar og lesbíur hafa drukkið áfengi. Mikill hluti af ✓ félagslífí samkynhneigðs fólks á Islandi fer fram í umhverfí þar sem áfengi er haft um hönd. I því umhverfí sem víman býður upp á er hægt að líta framhjá fjandsamlegum raun- veruleika með því að fá sér í glas og það gefur mörgum mann- inum nauðsynlegt hugrekki til að vera hann sjálfur. En hvers vegna drekkum við? Til að slaka á eftir leiðindi hversdagsins eða erum við á flótta? Eru kannski til aðrar skýringar? Það er laugardagskvöld á „22“. ' Allir fullir - rosa fjör - og strákurinn, sem var ekkert merki- legur fyrir tveimur glösum síðan, er bara orðinn nokkuð huggulegur. Næsta glas og hann er orðinn sæt- ur. Eitt í viðbót - nú reyni ég við hann. „Hvað segirðu? Viltu bjór?“ Bamum lokað - „eigum við að fara heim til mín?“ Vakna næsta morg- un - sjá manninn sem sefur í rúm- inu - oj bara. Ætli við höfum gert það? Jæja, að minnsta kosti náði ég í eitthvað á bamum - hvernig ætli ég geti losnað við hann, fljótt, áður en rennur meira af mér? Timbur- menn - gott að hann fór - þetta geri ég sko aldrei aftur. ALDREIAFT- UR. Hvað er eiginlega að mér - ég meinaða. Hvers konar gæja er ég farinn að taka með mér heim - eru virkilega engin takmörk fyrir vit- leysunni? Eg verð að fara gera eitt- hvað í þessu. Vikan líður. Kannski var þetta nú ekkert svo slæmt þama á laug- ardaginn. Eg hafði þó að minnsta kosti sjens! Vá, kominn föstudag- ur - skrepp í Ríkið. Kannski fer ég út um helgina, ef mig skyldi langa þá er betra að eiga eitthvað, það er svo dýrt að fá sér bjór á börunum. Eg fæ mér bara einn áður en ég fer út. Heyrðu, það er kominn laugar- dagur. Djöfull er ég búinn að vinna þessa viku - ég held ég eigi það nú inni að fá mér aðeins í glas og skreppa og kíkja á liðið. Hvað? Búinn með bjórinn sem ég keypti í Ríkinu? Þetta sem ekkert var! Er búið að minnka magnið í dósun- um, það er ekki að spyrja að helvít- is ríkisstjórninni - maður getur ekki einu sinni verið viss um að fá fullar dósir lengur. Andskotinn - nú fer ég sko út. Það er laugardagskvöld á „22“. Allir fullir - rosa fjör - og strákur- inn sem var ekkert merkilegur fyr- ir tveimur glösum síðan er bara orðinn nokkuð huggulegur. Næsta glas og hann er orðinn sætur. Eitt í viðbót. . . Sætur, sætari, sætastur Margir kannast við hringekjuna sem hér er lýst. Hún hefur snúist um áratuga skeið og kemur til með að gera svo áfram. Félagslíf homma og lesbía snerist lengi svo til eingöngu á þessari hringekju þar sem barinn varð uppspretta samskipta og veigarnar meðal á kvíðann. I tilveru samkynhneigðra varð að verja sig fyrir fjandsam- legu gildismati þjóðfélagsins með því sækja styrk í hópinn á barnum - og einnig í flöskuna. Þessi mynd hefur breyst. Síð- astliðna áratugi hefur barátta homma og lesbía fyrir mannrétt- indum sínum fært þeim frelsi til að velja. Fleiri möguleikar eru nú á félagslegum samskiptum en þeim einum sem grundvallast á stöðu við barinn og þátttöku í þeirri menningu sem þar fer fram. Eftir sem áður er barinn mikilvirkur hluti af félagslífi margra samkyn- hneigðra og veigar þær sem þar eru framreiddar, áfengi, verulegur hluti af tilveru þeirra. Þau áhrif, sem lýst var í upphafi þessara greinar og höfðu áhrif á þann sem þar stóð og upplifði vax- andi fegurð barfélaga síns í gegn- um botninn á glasinu, eru vel þekkt. Aðrar hliðar áfengisneyslu samkynhneigðra eru minna þekkt- ar. I þessari grein er ætlunin að fjalla um áfengisneyslu samkyn- hneigðra* og skoða hvernig hún hefur áhrif á líf þeirra. Hommar og lesbíur hafa, eins og aðrir þjóðfé- lagsþegnar, orðið fyrir barðinu á sjúkdómi þeim sem nefnist al- kohólismi. Um hann verður einnig fjallað og einnig um þær leiðir sem samkynhneigðir hafa leitað til bata. Rétt er rangt, rangt er rétt í lífi hverrar einustu manneskju eru forsendur sem hún verður að virða til þess að ná því takmarki að lifa í jafnvægi við umhverfi sitt. * I þessari grein er eingöngu talað um „áfengisneyslu“ samkynhneigðra. Þrátt fyrir að tekið sé til orða á þennan hátt, er að sjálfsögðu átt við neyslu allra fíkniefna þeg- ar talað er um neyslu og síðar í greininni um alkohólisma. Sumum veitist létt að laga sig að þessum forsendum en öðrum reyn- ist það erfiðara. Ein af ástæðunum fyrir þessu er sú að í forsendunum felast mismunandi kröfur. Til að standast þessar kröfur þarf einnig að fá stuðning til að geta mótað þroskabraut sína og fetað hana síð- an óhindrað. Þjóðfélagið og stofn- anir þess hvetja til ákveðinnar hegðunar. Sem verðlaun fyrir þessa hegðun er þjóðfélagsþegn- um veittur ýmiss konar stuðningur og vernd, t. d. í formi lagasetninga. Skilyrðið er hins vegar það að ein- staklingurinn haldi sig innan þess ramma sem honum er settur. Það að virða meginforsendu meiri- hluta þeirra einstaklinga sem þjóð- félagið mynda, þá forsendu að hafa sömu kynhneigð og meiri- hlutinn, verður þannig skilyrði þess að njóta margs konar stuðn- ings sem umhverfið veitir. Það er hins vegar ekki alltaf svo að einstaklingurinn virði eða geti virt allar leikreglurnar, sérstaklega þær sem óskráðar eru. Samkyn- hneigðir finna snemma fyrir þ ví að tilfinningar þeirra falla ekki að viðurkenndum gildum. Þau eru til- finningalífi þeirra framandi, en til þess að verða ekki hafnað af um- hverfinu verða samkynhneigðir að móta afstöðu sína til sjálfra sín á forsendum annarra, þ. e. forsend- um sem eru falskar fyrir hinn sam- kynhneigða einstakling. A þessu stigi lærist hommanum eða lesbí- unni að ljúga að sjálfum sér, og öðrum, um tilfinningar sínar. Jafn- framt lærist það að vantreysta hin- um réttu tilfinningum. Þær falla ekki að forsendum umhverfisins og þess vegna ályktar fólk að þær séu rangar. í stuttu máli - rétt verð- ur rangt. Það sálarstríð sem þetta mis- ræmi veldur getur orðið mann- eskjunni erfitt. Það kallar líka á einhver viðbrögð sem eru mjög mismunandi eftir hverjum og ein- um. Samkynhneigðir eru breiður hópur fólks, með mismunandi skoðanir og þarfir. Það sem sam- eiginlegt er hins vegar, er sá hæfi- leiki að geta myndað náin tilfinn- ingaleg tengsl við einstakling af sama kyni. Það er viðurkenningin á þessum hæfileika, bæði fyrir sjálfum sér og öðrum, sem er sam- eiginleg reynsla samkynhneigðra karla og kvenna. Frelsi með ábyrgð og átökum Þrátt fyrir það frelsi sem flestir hommar og lesbíur upplifa við það að viðurkenna sitt eigið sjálf, eða að koma úr felum, er þjáningin sem því fylgir oft mikil. Mann- eskjan hefur frá upphafi leitast við að deyfa þjáningar sínar og notað til þess ýmis meðöl. Eitt af þessum meðölum er áfengi. Afengi er notað í ýmsum til- gangi. Það geturbæði verið félags- legt fyrirbæri og líka lyf sem notað er til að breyta ástandi eða bæta líðan einstaklingsins sem það drekkur. Afengið losar um hömlur, það hjálpar hommanum eða lesbí- unni til að gleyma öllum tillærðu forsendunum sem ekki passa og að ná þannig tengslum við sjálfan sig og aðra á réttum forsendum. Afengið á sér hins vegar líka aðrar hliðar. Með því að tengja neyslu þess við spennuna sem felst í því að vera heiðarlegur gagnvart kynhneigð sinni skapast skilyrð- ing sem getur leitt til þess lífið sjálft verði hommanum eða lesbí- unni óbærilegt, nema þegar hann eða hún er undir áhrifum. Hómófóbían og systir hennar, Afneitunin Allir þeir sem gengið hafa í gegn- um þann hreinsunareld sem felst í því að koma úr felum, kannast við afneitunina. En hvað er afneitun? Þegar einhver atriði í lífinu verða óþægilega nærgöngul erþað eðli manneskjunnar að verja sig. Afneitun er slík vörn. „Eg meiddi mig sko ekki neitt,“ segja krakk- arnir og geyma það að fara að grenja þangað til þeir eru komnir í öruggt skjól til mömmu sinnar. Þjáningin er ekki upprætt, heldur er henni slegið á frest. Sama á við um samkynhneigða. Afneitun þess að vera hommi eða lesbía hefur á einhverju tímabili í ævi allra sam- kynhneigðra einstaklinga verið sterk og yfirgnæfandi. Þessi til- finning er ráðrík í lífi þess sem finnst hann ekki falla að neinum viðurkenndum fyrirmyndum og hún getur að mörgu leyti verið nauðsynleg til að halda lífi í heimi sem ekki gerir ráð fyrir þeim til- finningum sem samkynhneigðir bera í brjósti til sjálfra sín og ann- arra. Afneitunin á sér hins vegar aðra hlið. Hún er þroskaheftandi fyrir- bæri sem setur hindranir í líf ein- staklingsins, þannig að hann getur ekki notið tilfinninga sinna á eðli- legan hátt, heldur verður bundinn framandi gildismati umhverfis síns. Þessi afneitun á tilfinningar mótar allt atferli okkar og verður til þess að skapa tilveru þar sem flóttaleiðirnar verða að lokum nauðsynlegar til að halda lífi. Neysla áfengis er ein þessara flóttaleiða og sú sem er hvað ein- földust og fljótlegust. Lífínu er lifað í tveim- ur heimum Lífinu er sem sé lifað í afneitun, nema þegar áfengið hjálpar til að svipta henni burt. Þá verður til tvenns konar líf, líf sem hommi eða lesbía á barnum, en sem „venjulegur“ einstaklingur á öðr- um tímum. Hérna er rétt að staldra aðeins við og skoða þessa tilveru frá sjónarhóli þess sem orsakar hana - sjónarhóli hómófóbíunnar. Hómófóbía er skilgreind sem sjúkleg hræðsla við samkyn- hneigð í hvaða mynd sem hún birt- ist. Það er óhætt að segja að flestir hommar og lesbíur hafi fyrirhitt þetta fyrirbæri á lífsleiðinni á einn eða annan hátt. Það er hins vegar kaldhæðnislegt að oft á tíðum lifir hómófóbían bestu lífi í hinum samkynhneigða einstaklingi sjálf- um og verðurþar uppspretta sjálfs- fyrirlitningar og kvíða, sem ein- hvern veginn verður að bregðast við. Þessi innri hómófóbía er vafa- laust til staðar í flestum hommum og lesbíum. Hún er afleiðing inn- rætingar sem við öll urðum fyrir í uppvextinum. Það erað sjálfsögðu mjög mismunandi hvemig fólk

x

Samtökin '78 - Sjónarhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - Sjónarhorn
https://timarit.is/publication/1491

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.