Samtökin '78 - Sjónarhorn - 15.08.1993, Síða 11

Samtökin '78 - Sjónarhorn - 15.08.1993, Síða 11
Ljósmynd: Bára SJÓNARHORN 11 Samtök innan seilingar Stjórn og starfsmaður Samtak- anna 78 árið 1993. Frá vinstri: Arnbjörg Isleifsdóttir, Ingi Rafn Hauksson, Helena Önnudóttir, Reynir Baldursson, Lana K. Eddudóttir, Sveinn V. Jónasson, allt stjórnarfólk, og loks Björg- vin E. Örlygsson, húsfreyja á Lindargötunni. A myndina vantar Önnu Sigríði Sigurjónsdóttur bókavörð. Félagsmiðstöð A Lindargötu 49 er opið hús tvisvar í viku, mánudaga og fimmtudaga milli kl. 20-23. Þegar haustar verður eitt og annað á döfinni í húsinu um helgar. Leitið nánari upplýsinga í síma- tíma félagsins, mánudags- og fimmtudagskvöld. Sími: 2 85 39. AA fundir Ungliðahreyfíng Ungliðar félagsins undir 26 ára aldri hittast annað hvert sunnu- dagskvöld á Lindargötu 49. Sjón er sögu ríkari og þeir sem vilja blanda geði við ungliðana og hafa aldur til, ættu að láta sjá sig á sunnudagskvöldum. Nánari upp- lýsingar í síma félagsins á mánu- dags- og fimmtudagskvöldum. Síminn er 2 85 39. Óháð listahátíð - Brennidepill sýnir „Líf úr kviði“ Stiklað á stóru í lífshlaupi samkynhneigðra eftir Hauk F. Hannesson AA fundir eru haldnir í hverri viku á Lindargötu 49, á þriðjudags- kvöldum kl. 21 og á sunnudögum kl. 10:30 (sporafundir). A þessum tíma fer engin önnur starfsemi fram í húsinu. Þar hittast al- kohólistar á batavegi til að miðla reynslu sinni, styrk og vonum. Hér koma þeir sem eiga við áfengis- og vímuefnavandamál að stríða og eru þreyttir á því oki sem víman leggur á menn. Löngunin til að hætta neyslu er eina skilyrðið fyrir þátttöku í AA. Bókasafn Bóka- og myndbandasafn félags- ins er opið á mánudags- og fimmtudagskvöldum milli kl. 20- 23. Þar er að finna góðan bókakost, skáldskap og fræðirit. Einnig að- stoða starfsmenn bókasafnsins fúslega nemendur framhaldsskóla og háskóla sem koma þangað í gagnasöfnun og efnisleit. Töluvert hefur bæst við bóka- og mynd- bandakostinn síðustu mánuði. Kannið málin hjá Önnu bókaverði. Á Óháðri listahátíð sem haldinn var í Reykjavík í júnímánuði var meðal atriða dagskrá sem nefndist Líf úr kviði og fjallar um „sögu fósturs sem örlögin og eðlið leiða inn í heim samkynhneigðar“, eins og segir í dagskrá hátíðarinnar. Agnar Jón Egilsson tók dagskrána saman og leikstýrði. Leikendur voru Ásta Sighvats Ólafsdóttir, Sigurþóra St. Bergsdóttir, Stefán Baldur Árnason og Ásta Júlía Theodórsdóttir, sem fóru með hlutverk hins samkynhneigða ein- staklings á ýmsum aldursskeiðum. Tónlistog söngtexta samdi Kristín Eysteinsdóttir. Líf úr kviði er dagskrá sem er byggð upp á fjórum einræðum og fjalla allar um líf samkynhneigðs karlmanns frá fósturskeiði fram á miðjan aldur. Trúbadúr tengir ein- ræðumar saman með söng og gít- arspili. Sýning sú sem greinarhöf- undur sá fór fram á kaffihúsinu Café Paris og hæfir sú umgerð verkinu vel. Leikendur nýttu vel rými það sem þeir höfðu og voru þetta kvöld ófeimnir við að leita eftir þátttöku áhorfenda í sýning- unni. Fyrir vikið verður til ágeng sýning sem ekki flytur boðskap sinn eingöngu í orðum, heldur einnig með virkri nálægð. Að forminu til minnir Líf úr kviði meira á fjögur löng prósaljóð með tónlistarívafi heldur en sam- fellt leikverk. Umfjöllun um lífs- hlaup homma í formi sem þessu verður eðli málsins samkvæmt nokkuð ágripskennd í stuttri dag- skrá, en hún tekur tæpa klukku- stund í flutningi. Það er hins vegar vel unnið úr því efni sem á borð er borið og má segja að leikstjómin hafi bætt það upp sem á vantaði í sjálfan textann. Sú ráðstöfun að láta konur leika homma sem fóst- ur, homma sem er að koma úr fel- um og eldri „drottningu" heppnað- ist vel og gerði sýninguna ágengari fyrir það að áhorfendur gátu ekki alveg gert sér grein fyrir „hvers kyns var“ - var þetta kona eða karl- maður að tala? Leikendur áttu víða góða spretti. Einkum er vert að minnast flutnings Ástu Sighvats Ólafsdótt- ur í upphafseinræðu fóstursins, sem hún flutti af næmni og innlif- un. Aðrir leikarar brugðu upp myndum úr æviferli hommans og sýndu góð tilþrif, Sigurþóra í sjálfsmyndarkreppu unglingsins sem kemur úr felum, Stefán Bald- urí ástlausu barlífi drottningarinn- ar og Ásta Júlía í tilgangsleysi hommans sem er „kominn fram yfir síðasta söludag“ og nennir þessu ekki lengur. Veikasti punktur sýningarinnar var endirinn. Áhorfandinn er skil- inn eftir án þess að gera sér grein fyrir hvert leiðin liggur og skila- boðin um dauða og upprisu voru of ágripskennd til þess að mynda tengsl við meginefni dagskrárinn- ar. Sú ráðstöfun að tengja atriðin með tónlist gekk vel upp, en blær hennar og innihald söngtexta hefði oft á tíðum mátt falla betur að heildarhugsun verksins. Hvað um það, þá er hér um athyglisverða leiksýningu að ræða og er vert að óska leikstjóra sýningarinnar og höfundi Agnari Jóni Egilssyni til hamingju með framtakið. Leikhús hefur gegnt miklu hlutverki í menningu samkynhneigðra er- lendis og er ánægjulegt að sjá sýn- ingu sem „Líf úr kviði“ verða til hér á landi. Vonandi verður þar framhald á. SMÁSAGNASAMKEPPNI Tvær sögur bárust í samkeppnina um bestu smásöguna 1993 sem Sjónarhorn efndi til. Það þykir okkurekki nóg og nú boðum við nýjan skilafrest - 1. nóvember 1993! Við skorum á ykkur að lyfta hendi og setjast við tölvuna. Verðlaun í boði. Klæðskiptingar! Höldum hópinn - Stöndum saman Við höfum myndað hóp í Fyllsta trúnaðar er gætt. Reykjavíktilaðsameinast Utanáskriftin er: um áhugamál okkar og Elísa Alfreðsdóttir þarfir. Styðjum hverannan Pósthólf5279 og hveraðra! 125 Reykjavík Sjókvennadagurinn Það er orðin árviss viðburður að hinn fyrsta sunnudag í júní stendur stór hópur lesbía og homma á bakkanum í Reykjavíkurhöfn og öskrar sig hásan í rúmlega þrjár mínútur. Þessi dagur gengur undir nafninu Sjókvennadagurinn með- al hópsins en þá róa Gasellurnar sínum sexæring í kappróðri yfir höfnina. Þetta árið endurtóku Gasellumar leikinn frá því í fyrra og komu fyrstar í mark, heilum fjórðungi úr mínútu á undan næsta liði. Hvatningaróp stuðningsliðs- ins og forkonunnar voru reyndar svo kröftug að litlu mátti muna að fiskiskipið Benedikt, sem lá bund- ið við bakkann, væri róið í kaf, en farkostur Gasellana endaði ferð sína í hægri síðu þess með áhöfn- ina upp í loft. Þegar áhöfnin var komin á rétt- an kjöl og hafði tekið við viður- kenningum var skundað upp í Hús þar sem grillaðar voru pulsur og glaðst fram eftir kvöldi. Sauma- klúbburinn Gasellurnar vill hér með þakka öllu sínu stuðnings- fólki og stefnir nú að því að vinna bikarinn til eignar næsta ár og koma þar með út úr skápnum sem leitt gæti til þess að á Sjómanna- daginn 1995 verði keppt um róðr- arbikar Samtakanna 78. í bátnumfrá hægri: Bogga, Helena, Sandra, Jóhanna Ríkey, Inga, Dagný og Halla Ljósmynd: Bára

x

Samtökin '78 - Sjónarhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtökin '78 - Sjónarhorn
https://timarit.is/publication/1491

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.