Samtökin '78 - Sjónarhorn - 15.04.1994, Qupperneq 3
SJÓNARHORN
3
Tom Hanks hlýtur Oskarinn
Philadelphia
Andrew Beckett er dugandi lögfræðingur á lögmannsskrifstofu í
Philadelphia. Hann er HlV-jákvæður og þegar hann veikist af al-
næmi, setja vinnuveitendur hans honum stólinn fyrir dyrnar og
hann er rekinn. Beckett stefnir yfirboðurum sínum og málaferlin eru
eitt sóðalegt safn af fordómum, lygum og mútum. Utan við réttarsal-
inn hrópa ofsatrúarflokkar í kapp við Act-up baráttusveitir HlV-já-
kvæðra.
Þetta er kvikmyndin Philadelphia,
kvikmyndin sem nú fer sigurför
um heiminn, og þegar blaðið fór í
prentun hafði Tom Hanks hlotið
Oskarsverðlaunin fyrir túlkun sína
á Andrew Beckett - besti aðal-
leikari í karlhlutverki. Myndin
hlaut fimm tilnefningar, þar á með-
al fyrir besta frumsamda handrit.
Myndin er bæði spennandi og
raunsæ án þess að detta nokkru
sinni í gryfju væmni og tilfinn-
ingasemi, en það hefur löngum
fylgt þeim stórmyndum sem fram-
leiddar eru fyrir bandarískan millj-
ónamarkað. Samt virðist myndin
höfða til fjöldans ef marka má að-
sóknina sem hún hefur hlotið
Strax til Islands
Á dögunum hélt Stjörnubíó for-
sýningu á myndinni til styrktar
Alnæmissamtökunum á íslandi, en
það voru tilmæli frá framleiðend-
um myndarinnar til sýningarhúsa í
hverju landi að þau héldu slíkar
forsýningar til styrktar HIV-
jákvæðum. Almennar sýningar eru
nú hafnar á myndinni í Stjörnu-
bíói.
„Ég hef lesið mörg handrit að
svokölluðum „AIDS-myndum“,“
segir Tom Hanks í viðtali við Ad-
vocate, „væmnar og tárvotar sögur
sem ekki höfðu margt með raun-
veruleikann að gera, þann raun-
veruleika að sá sem veikist af al-
næmi, eldist og hrömar á stuttum
tíma og deyr. Þetta handrit er ótrú-
lega sterkt og gott.“
Veruleiki hinna sjúku
var honum framandi
Tom Hanks varð að hora sig mikið
til að geta leikið Andrew Beckett á
sannfærandi hátt. Hann er ekki
hommi sjálfur og veruleiki þeirra
sjúku var honum framandi þar til
hann undirritaði samning um leik í
myndinni. Þá komst hann í kynni
við homma sem hafa barist við al-
næmi:
„Það var bæði heillandi og
skelfilegt að heyra sögur þessara
manna. Ýmsir í kringum mig hafa
látist úr alnæmi, en enginn stóð
mérbeinlínis nærri. Sem gagnkyn-
hneigður maður lifi ég svo vernd-
uðu lífi að ég get leitt hugann frá
raunveruleikanum."
Að opna augu fjöldans
Og þama er einmitt sú áskorun
sem felst í þessari eftirminnilegu
mynd. Að opna augu fjöldans fyrir
raunveruleikanum - fyrir heimi á
tímum alnæmis. Meira að segja
hommarnir mega sumir hverjir
taka þá áskorun til sín. Nú em
tímar alnæmis.
Reporter/Advocate
Þórður Jóhann Þórisson
1961 -1993
Stig afstigi
Sem jurt er sölnar, allur æskublómi
með aldri víkur, þannig hverfa stundir
hvers lífs, um dyggð og þekking leikur ljómi
um litla hríð, en eilífð þarf ei að nefna.
Og kalli lífsins, ef að svo ber undir,
þú átt, mín sála, kvíðalaust að taka
og njóta upphafs nýrra viðfangsefna
og nýrra hátta. Sérhver byrjun lífsins
er töfmm gædd sem vernda og yfir vaka
og verja okkur mæðu dægurkífsins.
Könnum því laus við angur aðra staði,
engu bundin, fráleitt lögð í hlekki,
því heimsandinn hann fjötrar okkur ekki
til æðri stiga bendir oss úr hlaði.
Þeim sem heima hagataminn liggur
er hætt við vanans syfjulega dmnga
en aðeins sá sem frjáls á ferðir hyggur
mun forðast geta hvunndagsleikans þunga.
Og dauðinn er ekki endir á þínum fömm
en upphaf nýrra tíma og ferskra raka,
því lífsins kall mun engan enda taka.
Svo upp, mín sál, og kveð með bros á vömm.
Hermann Hesse - Heimir Pálsson íslenskaði.