Samtökin '78 - Hýraugað - okt. 2010, Blaðsíða 4
La Cage aux Folles
DROTTNINGAR, ÁST OG DRAMA
Nú er sýnd á Broadway í
New York þriðja uppfærslan
frá upphafi af söngleiknum
La Cage aux Folles. Saga
verksins hófst árið 1973 þegar
út kom í Frakklandi leikrit með
sama nafni eftir Jean Poiret.
Eftir leikritinu var síðan gerð
bíómynd árið 1978 sem
margir hafa séð og seinna
komu tvær framhaldsmyndir.
Árið 1983 rataði verkið til
Bandaríkjanna og upp á svið
á Broadway en þá höfðu þeir
Harvey Fierstein (handrit)
og Jerry Herman (lög og
söngtextar) samið þessa
söngleikjaútgáfu sem síðan
hefur verið sýnd víðs vegar
um heiminn.
Parið George (eigandi nætur-
klúbbsins La Cage aux Folles)
og Albin (dragdrottningin Zaza,
aðalstjarna klúbbsins) hafa
gengið í gegnum súrt og sætt
saman. George tók hliðarspor
eitt sinn forðum og eignaðist
soninn Jean-Michel sem hann
ól upp ásamt Albin sem gekk
stráknum í „móðurstað“. Nú
hefur Jean-Michel fundið sér
stúlku [!] til að giftast, og þá þurfa
tengdaforeldrarnir að hittast.
Foreldrar stúlkunnar, sem heitir
Anne, eru mjög siðprúð og
afturhaldssöm hjón, pabbinn er
stjórnmálamaður hvers aðal-
stefnumál er að loka öllum
sóðabúllum eins og La Cage.
Upp hefst mikill feluleikur sem
endar í skemmtilegum árekstrum
tveggja menningarheima og
jafnvel hommarnir þurfa að
takast á við eigin fordóma og
hræðslu við viðmót umheimsins.
Sýningin er uppfull af skemmti-
legum uppákomum, drottningum
af bestu sort, ást og drama.
Tónlist Jerrys Hermans er
einstaklega grípandi, einfaldar
fallegar melódíur sem auðvelt er
að fá á heilann.
Aðalleikararnir tveir, Kelsey
Grammer (Frasier), sem leikur
George, og Douglas Hodge
(Albin), voru báðir tilnefndir til
Tony-verðlauna og Douglas
fékk þau. Þeir hafa nýlega báðir
undirritað samning um að leika
áfram til 13. febrúar 2011. Allir í
leikhús!
Sýningin er
uppfull af
skemmtilegum
uppákomum,
drottningum af
bestu sort, ást og
drama
Leikritið La Cage
aux Folles var
frumsýnt 1. febrúar
1973 í Théâtre du
Palais-Royal..
Flestir muna eftir
bíómyndinni The
Birdcage með
Robin Williams
og Nathan Lane í
aðalhlutverkum en
sú mynd kom á eftir
leikritinu, frönsku
bíómyndinni og
söngleiknum.
>>> SPILA MYNDBAND
Allar þrjár
Broadway-
uppsetningarnar af
La Cage hafa unnið
til Tony- og Drama
Desk-verðlauna
í hinum ýmsu
verðlaunaflokkum.
>>> SPILA MYNDBAND
Lagið „I am what
I am“ eða „Ég er
eins og ég er“
heyrðist fyrst í
söngleiknum, flutt
af George Hearn
í hlutverki Albin/
Zaza. Diskóútgáfa
Gloriu Gaynor
af laginu kom út
seinna sama ár og
varð það fljótlega
að þeim þjóðsöng
hinsegin fólks sem
við þekkjum.
>>> SPILA MYNDBAND
„Les Cagelles“-
stelpurnar
munu heiðra
okkur á Galaballi
Samtakanna ‘78
sem haldið verður
í Iðnó 9. október
2010.
>>> NÁNAR
ÍT
A
R
E
F
N
I
I love you Phillip Morris
Saga loddara sem gerir allt til að
gefa ástmanni sínum það sem
hugurinn gæti girnst. Framsækin
mynd með samkynhneigðri
aðalpersónu. Kynhneigð hans er
þó engan veginn í aðalhlutverki í
myndinni.
Hedwig and the Angry Inch
Segir frá klikkaðri ævi Hansels
Schmidts, sem gerist Hedwig
Schmidt eftir klúðraða
kynleiðréttingaraðgerð. Rokkaður
söngleikur með áhugaverðum
ádeilum.
To Wong Fu, Thanks for
Everything, Julie Newmar
Saga þriggja dragdrottninga sem
ferðast þvert yfir Bandaríkin.
Skemmtileg ádeila á hugarástand
samkynhneigðra innan senunnar.
Er senan okkar eina athvarf, eða
hvað?
HÝRAUGAÐ MÆLIR MEÐ: Bíókvöldi með popp og kók ...
4