Harmonikublaðið - 01.12.2015, Blaðsíða 3

Harmonikublaðið - 01.12.2015, Blaðsíða 3
Harmonikublaðið ISSN 1670-200X Ábyrgðarniaðiir; Friðjón Hallgrímsson Espigerði 2 108 Reykjavík Sími 696 6422, frídjonoggudny@internet.is Prentvinnsla: Héraðsprent, Egilsstöðum, www. heradsprent. is Netfang: print@heradsprent.is Forsíða: Forsíðumyndina tók Sigurður Harðarson í sumarblíðunni í Fannahlíð í sumar. Meðal efnis: - Sagnabelgurinn -1 fréttum var þetta helst - Muna og minjasafn harmonikufélaga - Minning, Baldur Loftsson - Harmonikuball á Egilsstöðum - Einu sinni á ágústkvöldi - Harmonikufélag Rangæinga 30 ára 2015 - Sumarhátíðin í Fannahlíð - Skemmtiferð Harmonikufélags Vestfjarða til Stykkishólms - Lag blaðsins, Jónatan Olafsson - Frostpinnar að vestan -1 þá gömlu góðu daga - Haustverkin hjá FHUR Auglýsingaverð: Baksíða 1/1 síða kr. 25.500 1/2 síða kr. 16.500 ínnsíður 1/1 síða kr. 20.500 1/2 síða kr. 12.500 1/4 síða kr. 7.500 1/8 síða kr. 5.000 Smáauglýsingar kr. 3.000 Skilafrestur efnis íyrir næsta blað er 25. apríl 2016. oras Það er því miður allt of sjaldan að ungir harmonikuleikarar sjáist á harmonikumótum sumarsins. Það er helst að þeir sitja upp á sviði og leika nokkur lög, sem þeir eru jafn- vel búnir að æfa sérstaklega fyrir þetta tilefni. Það er nánast óþekkt að ungur harmo- nikuleikari sitji og spili í íslenskri sumarblíðu með öðrum á svæðinu. Það er mikill skóli fólginn í því að leika af fingrum fram og mikilvæg þjálfun fyrir eyrun og tónminnið að leika nótulaust. Þetta er að sjálfsögðu undir foreldrum komið, því ekki komast ungir harmonikuleikarar á harmonikumót án þeirra. Þar stendur trúlega stærsti hnífur- inn í kúnni. Það er því miður ákaflega sjald- gæft að foreldrar komi með unga harmo- nikuleikara á harmonikumót. Það er þó ekki óþekkt. Það er rík ástæða að leggja áherslu á þetta. Látum alla unga harmonikunem- endur vita af okkur og hvetjum foreldrana til að koma í heimsókn með unga harmo- nikuleikarann. I nokkur ár hittust ungir harmonikunem- endur á Reykjum í Hrútafirði. Þar dvöldu þeir í tvær nætur og nýttu tímann til að æfa sig undir leiðsögn og hitta aðra unga harm- onikunemendur. Gisting var næg í gamla heimavistarskólanum. Var almennt látið vel af þessu og unga fólkið naut þess að æfa sig, hitta jafn- aldra sína og hlusta á aðra harmo- nikuleikara. Nú virðist þessum kafla í harmonikusög- unni vera lokið og er það miður. Almennt er talið að kostnaður hafi öðru fremur, orðið þessari samkomu banabiti. Hvað er þá til ráða? Er þetta eitthvað sem hægt er að byggja á, þó með öðrum hætti sé? Gæti lausnin verið sú að gera þetta ódýrara með því að hafa dag eða daga á Reykjavíkur- svæðinu? Væri það athugandi að stefna öllum nemendum í harmonikuleik á svæðið og gefa þeim og kennurum þeirra tækifæri til að taka upp gamla takta frá Reykjum. Með góðri skipulagningu gæti þetta staðið frá morgni til kvölds. Með þessu sparaðist gisting að mestu, jafnvel að öllu leyti og ýmislegt yrði auðveldara í framkvæmd. Ekki væri verra að harmonikusnillingur væri til staðar, til að hafa hönd í bagga og auka enn frekar vægi atburðarins. Stjórn S.f.H.U. nöfn, netföng, heimilisföng og símanúmer: Formaður: Gunnar Kvaran alf7@mi.is Álfalandi 7, 108 Reykjavík. S: 568-3670 / 824-7610 Varaformaður: Jónas Þór Jóhannsson Brávöllum 9, 700 Egilsstaðir S: 471 1465/893 1001 Netfang: jonas.thor@simnet.is Ritari: Sigrún B. Halldórsdóttir sigrunogvilli@gmail.com Breiðabólstað, 371 Búðardalur. S: 434-1207 / 861-5998 Gjaldkeri: Sigurður Eymundsson sigeym@talnet.is Suðurlandsbraut 60, 108 Reykjavík S: 471-1333 / 893-3639 Meðstjórnandi: Frosti Gunnarsson hansdottir@simnet.is Vallargötu 3, 420 Súðavík. S: 456-4928/895-1119 Varamaður: Pétur Bjarnason peturbjarna@internet.is Geitlandi 8, 108 Reykjavík S: 456 4684 / 892-0855 Varamaður: Filippía Sigurjónsdóttir 8208834@internet.is Hólatúni 16, 600 Akureyri S: 462-5534/820-8834 f fréttum var þetta helst Framtíð harmonikumótsins Nú er lag, sem haldið hefur verið á Varmalandi í Borgarfirði undanfarin ár, gæti verið í óvissu, eftir að gamli húsmæðraskólinn var seldur nú í haust. Þetta kallar á verulegar breytingar varðandi gistingu sem verið hefur á staðnum. Hætt er við að plássi því sem nýst hefur til gistingar á harmonikumótunum verði breytt í kennslustofur, en grunnskóli hefur verið rekinn í gamla húsmæðraskólanum undan- farnin ár. Fyrr á árum var rekið Edduhótel á sumrum í húsnæðinu. Undanfarin ár hafa milli 15 og 20 manns nýtt sér gistingu í tengslum við Nú er lag. Benda má þó á, að harmonikumótin á Breiðumýri, Laugar- bakka og í Fannahlíð hafa þó komist af án gistiaðstöðu hingað til. Á næsta ári verða þrjú ár frá því að keppnin Harmonikumeistarinn var haldin. Það er því kominn tími á næstu keppni. Vonandi hafa ungir harmonikuleikarar áhuga á að taka þátt í keppninni. Þá er ekki síður mik- ilvægt að kennarar sýni keppninni áhuga. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum hafa svokallaðir hollvinir Fannahlíðar tekið svæðið á leigu dagana 1. til 3. júlí næsta sumar. Margir mega ekki til þess hugsa að þetta vinsæla harmonikumót leggist af. Ekki liggur fyrir með hvaða sniði mótið verður, en það munu vera bókstafstrúar harmon- ikuunnendur sem þarna standa á bak við. Stórtíðindi mega það teljast að Jónas Asgeir Ásgeirsson mun leika með Sinfóníuhljóm- sveit Islands í Hörpunni þann 14. janúar nk. Jónas sigraði í keppni Listaháskólans og Sinfóníunnar sem fram fór í byrjun nóvem- ber. Sigurvegarinn fékk í verðlaun þetta tækifæri. Þennan sama dag mun einnig leika einleik á flautu með hljómsveitinni, annar góðkunningi harmonikuunnenda, Sigríður Hjördís Indriðadóttir (Sirrý), sem um árabil hefur leikið á trommur á sumarhátíðunum í Fannahlíð. Hún hefur reyndar ekki síður heillað gesti þar með flautuleik. f A Heiðursfélagar SÍHU Aðalsteinn Isfjörð, Baldur Geir- mundsson, Bragi Hlíðberg, Karl Jónatansson og Reynir Jónasson. V__________________________________J 3

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.