Harmonikublaðið - 01.12.2015, Page 13

Harmonikublaðið - 01.12.2015, Page 13
Troðið dansgólf í Fannahlíð. Þannig varpað alla helgina Sirrý og Helgi heilluðu áheyrendur Það má öllum vera Ijóst að þær sumarhátíðir sem haldnar hafa verið síðustu ár í Fannahlíð og Miðgarði hefðu ekki átt sér stað ef ekki hefði komið til allt það frumkvæði og ósérhlífni sem Kjaranstaða fjölskyldan hefir sýnt, til að svo mætti verða. En endanleg ákvörðun hefir verið tekin af okkur þessum fáu sem eftir eru starfandi innan HUV að standa ekki frekar að Fannahlíðarhátíð á vegum félagsins. Þetta var reyndar fyrirhugað fyrir ári síðan, en vegna fjölda áskorana var þessi nýliðna síðasta hátíð haldin. Geir Guðlaugsson formaður greindi frá þessari ákvörðun á skemmtuninni og þar með að hún yrði ekki dregin til baka. Það bar svo til tíðinda í lok samkomunnar að menn hófu máls á því að stofna „Hollvina samtök Fannahlíðar“ með það að markmiði að halda þessum sumarmótum áfram, voru þar fremstir í flokki Sveinn Sigurjónsson og Sigurður Harðarson ljósmyndari. Ekki voru formleg samtök stofnuð og tæpast von á að svo verði þó svona væri tekið til orða í lok samkomu. En þessi Fannahlíðar hátíð tókst ákaflega vel og virðist við lauslega athugun gjaldkera hafa skilað nokkrum fjárhagslegum afgangi. Gestur Friðjónsson ritari, með örlítilli viðbótfrá ritstjóra. Akrajjall og Skarðsheiði, eins ogjjóluhiáir draumar. Myndir: Sigurður Harðarson Málninsarbúðin Sindragata 14 400 ísafiröi Sími: 456 4550 Þarf að fara að mála? Við eigum málninguna og verkfærin fyrir þig! 13

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.