Harmonikublaðið - 01.05.2016, Blaðsíða 2

Harmonikublaðið - 01.05.2016, Blaðsíða 2
Ávarp formanns Ágætu harmonikuunnendur Gleðilegt sumar og bestu þakkir fyrir liðinn vetur. Nú fer senn í hönd skemmtilegasti tími harmonikuunnenda, en það er komandi sumar og allar þær útihátíðir sem í boði verða. Vetrarstarfinu hjá harmonikufélögunum víðsvegar um landið er að ljúka og Harmo- nikudagurinn verður haldinn hátíðlegur um land allt laugardaginn 7. maí. Eg hef síðustu árin litið svo á að þessi dagur sé merki um lok vetrarstarfsins hjá harmonikufélögunum. Það er von mín að öll aðildarfélög S.I.H.U. muni láta tóna harmonikunnar hljóma sem víðast um land. Starf stjórnar sambandsins hefur verið hefð- bundið, þau verkefni sem stjórn þarf að sinna hafa ýmist verið framkvæmd eða þeim slegið á frest eða hætt við. Þar má nefna harmon- ikukeppnina sem átti að fara fram í apríl, en vegna dræmrar þátttöku var ákveðið að hætta við það verkefni. Eg er þeirrar skoðunar að þessi keppni eigi að vera fastur liður á þriggja ára fresti og ná þannig til sem flestra ung- menna er stunda harmonikuleik víðsvegar í tónlistarskólum landsins og eins hjá einka- kennurum. Sú aðferð sem við höfum notað til að koma þessari keppni á framfæri er ekki að virka og þarf því að hugsa það dæmi upp á nýtt. Það þarf að fá tónlistarskólana og kennarana er stunda kennslu í harmonikuleik til samstarfs varðandi þetta verkefni og eflaust er fleira sem betur mætti fara. Hætt var við fjáröflunardansleik, en í stað þess tók stjórn sambandsins þá ákvörðun að halda harmoniku- tónleika í Salnum í Kópavogi, laugar- daginn 5- mars. Undirritaður ásamt Guðrúnu Guðjóns- dóttur og Sigurði Eymundssyni voru fengin til að undir- búa þennan við- burð. Þarna komu fram alls níu harmonikuleikarar ásamt einum píanóleikara og léku ýmist einleik eða dúetta. Það er óhætt að segja að þarna hafi flestir af okkar bestu harmonikuleikurum komið fram og gert þessa tónleika ógleymanlega þeim er komu í Salinn þennan dag. Kynnir á þessum tónleikum var Friðjón Hallgrímsson og vil ég þakka honum fyrir hvað hann hélt vel utanum tónleikana. Það er von mín að í fram- tíðinni verði meira gert af því að halda svona tónleika fyrir þá fjölmörgu harmonikuunn- endur, sem vilja mæta og heyra í okkar frá- bæru harmonikuleikurum. Ekki var látið staðar numið við þessa tónleika, því efnt var til dansleiks um kvöldið sem tókst með ágætum. Eg vil færa þeim Guðrúnu og Sig- urði mínar bestu þakkir fyrir samstarfið við þessi verkefni. Segja má þó að skuggi hafi fallið á daginn, þegar það spurðist út að gít- arleikarinn á dansleiknum, Helgi E. Krist- jánsson hafi orðið bráðkvaddur þremur dögum síðar. Hans verður sárt saknað enda góðvinur og hjálparhella harmonikuunnenda víða um land. Hug- myndin er að gefa út geisladisk með því efni er leikið var á tónleik- unum í Salnum og vonandi verður disk- urinn tilbúinn í enda maí. Reiknað er með að þessi diskur verði gefinn út í takmörkuðu upplagi og seldur hjá aðildarfélögunum og á öllum harmonikumót- unum í sumar. Það er ákveðið að næsti aðalfundur S.I.H.U. verði haldinn í Reykjanesbæ dagana 23. - 25. september 2016. Það er Félag harmoniku- unnenda á Suðurnesjum sem ber veg og vanda af fundinum þetta árið. Eg veit að vel verður staðið að þessum fundi og það er von mín að öll aðildarfélögin sendi sinn formann og fulltrúa til þessa fundar. Eg vil að lokum leggja áherslu á að ég gef ekki kost á mér við formannskjör á næsta aðalfundi og vona ég að nýr formaður með nýjar og ferskar hug- myndir finnist til að taka við keflinu af mér. Tvö af aðildarfélögum S.f.H.U. fagna 30 ára afmæli á þessu ári og eru það Harmonikufé- lag Reykjavíkur og Harmonikufélag Vestfjarða. Eg vil óska þessum félögum til hamingju með árin öll. Að lokum vonast ég til að sumarið verði okkur öllum til gleði og ánægju og að við fjölmennum á öll harmon- ikumótin í sumar. Gleðilegt sumar, Gunnar Kvaran, formaður. Sagnabelgurinn Þetta er meðfætt Um árabil hefur Félag harmonikuunnenda í Reykjavík haldið skemmtifundi sem hluta af félagsstarfinu. Lengst af voru þeir haldnir í Templarahúsinu við Eiríksgötu. Konurnar í félaginu bökuðu fyrir fundina og seldu gestum kaffi og með því, fyrir sanngjarnt verð. Þar spreyttu margir tónlistarmenn sig og margir harmonikuleikarar stigu þar sín fyrstu skref á - s Heiðursfélagar SÍHU Aðalsteinn Isfjörð, Baldur Geir- mundsson, Bragi Hlíðberg, Karl Jónatansson og Reynir Jónasson. 2 sviði að leika fyrir hóp ókunnugs fólks. Þetta fór misjafnlega í menn og um einhverja vissi ég sem sváfu sáralítið eða jafnvel ekkert, ef þetta vofði yfir þeim. Flestir þekkja þá reynslu að það sem virkaði auðvelt fyrir hádegi, var skyndilega orðið óyfirstíganlegt vandamál stuttu seinna, þegar komið var upp á svið. Allt í einu fóru að heyrast feilnótur, sem ekki var vitað til að væru í hljóðfærinu. Það mun hafa verið rétt fyrir síðustu aldamót að til mín kom maður og bauð sig fram, ásamt vini sínum, til koma fram á skemmtifundi og flytja nokkur lög. Ætlaði annar að leika á harmoniku en hinn að syngja. Ekki var ég kunnugur þessum mönnum, en tók ekki illa í hugmyndina. Sá er talaði fyrir þá félaga var dálítið sérstakur og til marks um það, vildi hann aldrei kaupa neinar veitingar, en þegar honum voru boðnar þær, dorgaði hann tepoka upp úr vasanum og bað um heitt vatn. Annað þyrfti hann nú ekki. Talaðist svo til um að þeir kæmu fram á næsta fundi sem hugsaður var eftir mánuð. Eg sló því fram að þá gæfist þeim tími til að æfa, svo allt gengi nú vel. Svarið verður mér minnistætt. Hann leit örsnöggt á mig og sagði: „Nei, við þurfum þess ekki, þetta er meðfætt.“ Ekki man ég hvað olli, en aldrei fengum við að njóta þessara snillinga.

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.