Harmonikublaðið - 01.05.2016, Blaðsíða 10
Fréttir frá Harmonikufélagi Þingeyinga
Á aðalfundi okkar sem var haldinn í október var skipt um
þrjá í stjórn. Úr stjórn gengu Guðný Gestsdóttir og Sigurður
Leósson og voru þau Kjartan Sigurðsson og Sigríður Ivars-
dóttir kosin í staðinn. Einnig hætti Þórhildur Sigurðardóttir
sem formaður og tók Sigurður Ólafsson við formannsstöð-
unni. Árshátíð var haldin í nóvember á Breiðumýri og var
nokkuð vel mætt (70-80 manns). Þá var haldinn dansleikur,
bögglauppboð og vísnaþáttur með Kveðanda 10. janúar.
Góð skemmtun, vel mætt og hraustlega boðið í allt sem
Friðrik Steingrímsson uppboðshaldari bauð upp. Fimm
dansæfingar voru haldnar og ágætis mæting á þær. Þá tók
félagið þátt í Fikkahátíð ásamt öllum kórum í Þingeyjarsveit,
Húsavík og Mývatnssveit. Var hún haldin í Ydölum 5. mars
og var húsfýllir, um 500 manns. Tókst þetta mjög vel og
öllum til sóma sem að stóðu.
Sálubót sem œfir á Stórutjörnum
Fikkahátíð var haldin í tilefni af því að 100 ár voru í fyrra
frá fæðingu Friðriks Jónssonar (Fikka). Hann var ættaður
frá Helgastöðum í Reykjadal, en bjó á Halldórsstöðum í
sömu sveit og svo á Húsavík. Líkast til þekkja allir harmon-
ikumenn hans sögu, bæði sem harmo- nikuspilara og laga-
höfundar. Hann lærði ungur á orgel, en 1932 eignaðist hann
fyrstu harmonikuna. Hann stjórnaði áratugum saman
kirkjukórum í Lundarbrekku, Ljósavatni, Einarsstöðum,
Grenjaðarstað, Nesi og eitt ár á Húsavík. Alls 48 ár. Þá
spilaði hann á böllum vítt og breitt um Norðurland.
Kórarnir sem tóku þátt voru allir kirkjukórarnir sem Friðrik
stjórnaði, sem voru sameinaðir núna í einn í Bárðardal og
Ljósavatnsskarði og stjórnaði Dagný Pétursdóttir honum.
Einnig voru sameinaðir kórar í Aðaldal, Reykjadal og Kinn
og stjórnaði Jaan Alavere þeim. Þá voru kirkjukórarnir í
Mývatnssveit og Húsavík með sameiginlegan flutning, þó
Friðrik hafi ekki stjórnað þeim. Þeirra stjórnandi var Jörg
Sonderman. Ennfremur fluttu Sólseturkór eldri borgara á
Húsavík nokkur lög undir stjórn Steinunnar Halldórsdóttur
og Sálubót sem æfir á Stóru Tjörnum undir stjórn Jaans og
Karlakórinn Hreimur sem Steinþór Þráinsson stjórnaði. Allir
fluttu kórarnir þrjú lög hver eftir Fikka og svo allir saman
tvö lög. Var það magnaður kór um 170 manns og fengu þau
mjög góðar undirtektir. Boðið var uppá kaffiveitingar í hléi.
Dagskráin sem byrjaði kl. 20:00 tók um 3 tíma. Þá tóku
félagar úr Harmonikufélagi Þingeyinga við um kl. 11:30 og
spiluðu fyrir dansi til kl.02:00.
Texti: Siggi á Sandi. Myndir: Jónas Þór Jóhannsson
Karlakórinn Hreimur
Dalalíf
Starfsemi Harmonikufélagsins Nikkolínu
hefur verið hefðbundin í vetur. Æfingar hafa
verið haldnar að jafnaði hálfsmánaðarlega
„eftir réttir og fram til sauðburðar". Spilað
var á dvalarheimilinu Silfurtúni og hjúkr-
unarheimilinu að Fellsenda á aðventunni,
félagar spiluðu á þorrablóti að Staðarfelli og
einnig á vorhátíð á Fellsenda. Á Harmoniku-
daginn eru fyrirhugaðir tónleikar í
dvalarheimilinu Barmahlíð á Reykhólum.
Okkar stærsta verkefni er svo útihátíðin og
dansleikur að Laugarbakka í Miðfirði á þjóð-
hátíðardaginn 17. júní nk. Vonumst við til
að sjá sem flesta þar og að dansinn megi duna
vel og lengi.
Nikkolína fékk svo óvænta heimsókn um
daginn, á æfingu til okkar mætti Hlédís
Sveinsdóttir dagskrárgerðarmaður hjá sjón-
varpsstöðinni N4. Hún sér þar um þáttinn
Að vestan. Hlédís spjallaði við Melkorku
formann, stofnfélagana Halldór Þ. Þórðarson
og Guðbjart A. Björgvinsson og svo
unglambið Ríkarð Jóhannsson trommu- og
saxófónleikara, sem verður níræður í haust.
Hún myndaði einnig æfinguna, afraksturinn
má sjá þessa dagana í þættinum Að vestan á
N4.
Bestu kveðjur úr Dölum, Sigrún H.
10