Harmonikublaðið - 01.09.2017, Side 3
Harmonikublaðið
ISSN 1670-200X
Ábyrgðarmaður:
Friðjón Hallgrímsson
Espigerði 2
108 Rejkjavík
Sími 696 6422, frídjonoggudnj@internet.is
Prentvinnsla:
Héraðsprent, Egilsstöðum, ivivm heradsprent. is
Forsíða: Forsíðumjndina tók Siggi Harðar á Borg um
verslunarmannahelgina.
Meðal efnis:
- Fréttir frá Harmonikufélagi Rangæinga
- Landsmót SÍHU á ísafirði
- Flemming á Borg
- Þingeyingar á Landsmóti SIHU á Isafirði
- Nú er lag á Borg
- Sumarhátíðin á Ydölum 2017
- Itríó á landsmótinu
- Fjör í Fannahlíð
- Hvítasunnan á Borg
- Lag blaðsins eftir Þórð G. Halldórsson
- Harmonikan í Árbæ
- Frostpinnar að vestan
- Harmonikudagurinn á Breiðamýri
- í þá gömlu góðu
Auglýsingavd-ð: Baksíða 1/1 síða kr. 25.500
1/2 síða kr. 16.500
lnnsíður 1/1 síða kr. 20.500
1 /2 síða kr. 12.500
1/4 síða kr. 7.500
1/8 síða kr. 5.000
Smáaugjjsingar kr. 3.000
Skilafrestur efnis fyrir næsta blað er
25. nóvember 2017.
V__________________1____________________________J
77
W
Stjórn S.Í.H.U. nð(n, netföng,
heimilisföng og símanúmer:
Formaður: Gunnar Kvaran
alf7@mi.is
Álfalandi 7, 108 Reykjavík.
S: 568-3670 / 824-7610
Varaformaður:
Jónas Þór Jóhannsson
Brávöllum 9, 700 Egilsstaðir
S: 471 1465 / 893 1001
Netfang: jonas.thor@simnet.is
Ritari: Sigrún B. Halldórsdóttir
sigrunogvilli@gmail.com
Breiðabólstað, 371 Búðardalur.
S: 434-1207 / 861-5998
Gjaldkeri: Melkorka Benediktsdóttir
melb.ss@simnet.is
Vígholtsstöðum, 371 Búðardalur
S: 434 1223 / 869 9265
Meðstjórnandi: Filippía Sigurjónsdóttir
8208834@internet.is
Hólatúni 16, 600 Akureyri
S: 462 5534 / 820 8834
Varamaður: Pétur Bjarnason
peturbjarna@internet.is
Geitlandi 8, 108 Reykjavík
S: 456 4684 / 892-0855
Varamaður: Haraldur Konráðsson
budarholl@simnet.is
Búðarhóli, 861 Hvolsvöllur
S: 487 8578 / 893 4578
Ritstjóraspjall
Að loknu landsmóti leitar ýmislegt á huga
harmonikuunnendans. Höfum við gengið
til góðs, eins og þar stendur.
Landsmótið á Isafirði var að flestra mati vel
heppnað mót, þar sem fulltrúar félaga komu
fram og léku listir sínar á hefðbundnum
landsmótstónleikum. En landsmót er ekki
aðeins landsmót. Þau má líta á sem einskonar
uppskeruhátíð. Þau eru ennfremur hálfgert
ættarmót þar sem harmonikuættin hittist og
gleðst við gnægtaborð harmonikunnar. Þar
mátti heyra í hvað tími síðasta vetrar fór. Það
mátti líka greina þróun síðustu ára. I gegnum
tíðina hefur mátt heyra hvar hin ýmsu félög
standa og hvar áherslur þeirra liggja. Fljótt
farið yfir eru nokkur stór og nokkuð öflug
félög og önnur minni. Félög hafa byrjað og
hætt eins og gengur. Af þeim fimmtán
félögum sem nú mynda landssambandið
sendu ellefu þeirra fulltrúa. Síðastliðið sumar
heyrðum við ágætt samstarf félaga á
landsmótinu. Harmonikufélög Rangæinga
og Selfyssinga komu fram saman, með eina
hljómsveit við mjög góðar undirtektir.
Harmonikuunnendur Vesturlands tók hins
vegar ekki þátt og var það miður. Ennfremur
vantaði Skagfirðinga. Lengra er síðan
Húnvetningar og Hornfirðingar hafa sent
fulltrúa. Gestgjafarnir léku á alls oddi, þó
aldurinn sé farinn að færast yfir. Þeir hins
vegar skörtuðu einum af bestu harmo-
nikuleikurum landsins, Helgu Kristbjörgu.
Þingeyingar fóru svipaða leið með Ástu
Soffíu. En allt er þetta afstætt. Trúlega hefur
þó aldrei verið annað
eins mannaval í
harmonikulífinu á
Islandi eins og nú um
stundir. Aldrei hafa
jafnmargir Islendingar
staðið fyrir harmo-
nikutónleikum og í
sumar. Alls hafa verið
haldin sex mót í sumar,
en auk þess hafa ungir
harmonikuleikarar staðið fyrir tónleikum
víðs vegar. Itríóið kom fram á tónleikum á
Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði auk þess að
leika á landsmótinu. Þá má ekki gleyma að
tríóið lék fyrir dansi á Siglufirði og þótti
standa sig mjög vel. Asta Soffía hélt tónleika
ásamt félögum sínum frá Noregi á nokkrum
stöðum á Norðurlandi auk Hannesarholts í
Reykjavík. Flemming Viðar hélt lokatónleika
sína á hátíðinni „Nú er lag á Borg“ um
verslunarmannahelgina. Annað eins
tónleikahald er algjörlega óþekkt meðal
íslenskra harmonikuleikara. Það má því segja
að þrátt fyrir fækkun á landsmóti sé útlitið
nokkuð gott. Það má jafnvel segja aðeins
minna en mikið betra. Gæði fyrir magn. Nú
þarf aðeins að bíða þess að einhverjir af
þessum frábæru tónlistarmönnum snúi heim
til að rækta heimaakurinn. Þá væru komnir
góðir arftakar þeirra, sem staðið hafa í
farabroddi við kennslu undanfarin ár og geta
nú á efri árum, notið þess að hlusta á
árangurinn.
í fréttum var þetta helst
Fyrsta harmonikufélag landsins, Félag
harmonikuunnenda í Reykjavík, varð 40 ára
6. september. I bígerð er að efna til
kaffisamsætis þann 5. nóvember í tilefni
afmælisins. Til stendur að gera sögu félagsins
skil í næsta tölublaði.
Flemming Viðar Valmundsson hélt í lok
ágúst til Kaupmannahafnar, þar sem hann
mun verða við nám næstu þrjú árin við Hinn
konunglega tónlistarháskóla. Þar fyrir hittir
hann Jónas Ásgeir og Jón Þorstein, sem nú
eru að hefja síðasta veturinn. Helga
Kristbjörg hefur lokið námi við sama skóla.
Litlu munaði að illa færi þegar eldur varð
laus í húsbíl Svenna Sigurjóns og Kristínar
þar sem þau voru stödd í Stykkishólmi í
vikunni efir landsmótið á ísafirði. Þau voru
að taka á sig náðir þegar Kristín þóttist finna
brunalykt. Þegar út var komið sáu þau að
eldur logaði út úr vagninum aftanverðum.
Þau sluppu með skrekkinn, en Svenni
brenndist illa á vinstri hönd við að slökkva
eldinn. Hann lét það þó ekki koma í veg
fyrir að leika fýrir dansi í Fannahlíð rúmri
viku seinna. Bíllinn var hins vegar dæmdur
ónýtur.
Tónleikahald Astu Soffíu og félaga síðastliðið
sumar fór ekki fram hjá harmonikuunnendum,
þó ritstjórinn hafi ekki átt þess kost að hlýða
á. Stefnt er að grein um tónleikana í
desemberblaðinu.
Heiðursfélagar SÍHU
Aðalsteinn Isfjörð, Baldur
Geirmundsson, Bragi Hlíðberg og
Reynir Jónasson.
V___________________________________)
Kt. SÍHU: 611103-4170
3